Hoppa yfir valmynd
31. mars 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 31. mars 2010

Mál nr. 21/2010                    Eiginnafn:     Maríjon

 

Hinn 31. mars kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2010:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Ritháttur nafnsins Maríjon (kvk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem í íslenskri stafsetningu er j ekki ritað á eftir í. Rithátturinn Maríjon getur heldur ekki talist hefðaður. Eiginnafnið Maríjon uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það. Hið sama á við um ritmyndina Maríjón.

Mannanafnanefnd telur hins vegar að nafnmyndin Maríon (kvk.) fullnægi skilyrðum 5. gr. mannanafnalaga. Maríon tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Maríonar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Maríjon (kvk.) er hafnað. Af þessu tilefni er eiginnafnið Maríon (kvk.) samþykkt og skal fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum