Hoppa yfir valmynd
29. september 2020 Utanríkisráðuneytið

Lítill hluti þjóða beitir sér í þágu kvenna á tímum farsóttarinnar

Ljósmynd: © UNDP Bangladesh/Fahad Kaizer - mynd

Aðeins eitt af hverjum átta ríkjum í heiminum hefur beitt sér sérstaklega fyrir því að vernda konur fyrir hættum sem aukist hafa á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar, samkvæmt greiningu tveggja Sameinuðu þjóða stofnana, UN Women og Þróunaráætlunar SÞ (UNDP). Margar þjóðir hafa brugðist konum og stúlkum í ljósi aukins heimilisofbeldis, segir í frétt frá stofnunum.

„COVID-19 faraldurinn bitnar hastarlega á konum sem fórnarlömbum heimilisofbeldis þar sem þær eru lokaðar inni á heimilum með gerendum, þær sinna ólaunuðum umönnunarstörfum innan fjölskyldna og í samfélaginu, og úti á vinnumarkaðinum skortir þær félagslega vernd,“ segir Pmuzile Mlambo-Ngcuka framkvæmdastjóri UN Women.

Stofnanirnar hafa sett upp sérstakt greiningartól – COVID-19 Global Gender Response Tracker – til að fylgjast með því hvernig stjórnvöld í 206 löndum bregðast við til verndar konum og stúlkum á tímum farsóttarinnar, gagnvart auknu heimilisofbeldi, ólaunuðum umönnunarstörfum og til að bæta fjárhagslegt öryggi kvenna.

Eitt af hverjum fimm ríkjum hafði ekki gripið til neinna aðgerða á fyrrnefndum þremur sviðum og aðeins 12% ríkja höfðu gripið til aðgerða á þeim öllum. Tekjuhærri þjóðir voru líklegri en þær tekjulægri að hafa innleitt aðgerðir, 93% Evrópuþjóða en aðeins 63% Afríkuþjóða.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum