Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 613/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 613/2021

Fimmtudaginn 24. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála bréf Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 16. nóvember 2021. Meðfylgjandi kæru var bréf Vinnumálastofnunar, dags. 12. nóvember 2021, þar sem óskað var eftir tilteknum upplýsingum frá kæranda. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 18. nóvember 2021, var óskað eftir upplýsingum frá kæranda um hvort fyrir lægi ákvörðun í máli hans hjá Vinnumálastofnun. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndarinnar 10. desember 2021. Svar barst ekki.

Með erindi, dags. 17. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá kæranda um hvort kæran frá 16. nóvember 2021 lyti að sama ágreiningsefni og fjallað var um í máli nr. 461/2021 eða hvort fyrir lægi önnur kæranleg ákvörðun. Svar barst ekki. Erindi úrskurðarnefndarinnar var ítrekað 8. febrúar 2022 en ekkert svar barst.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga segir að ákvörðun, sem ekki bindur enda á mál, verði ekki kærð til æðra stjórnvalds fyrr en málið hefur verið til lykta leitt. Ákvarðanir sem teknar eru um meðferð stjórnsýslumáls og fela ekki í sér endalok málsins, svokallaðar formákvarðanir, verða því ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar.

Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Að því virtu og í samræmi við 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga er það mat úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum