Hoppa yfir valmynd
24. júní 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar og Jafnvægisás ferðamála í Samráðsgátt stjórnvalda

Stefnumótun til langs tíma fyrir íslenska ferðaþjónustu er eitt af forgangsmálum Þórdísar Kolbrúnar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Nú hafa verið lögð fram í Samráðsgátt stjórnvalda tvö grunnskjöl á þessari vegferð; þ.e. Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 og Jafnvægisás ferðamála.

Framtíðarsýnin og leiðarljósið ásamt Jafnvægisás ferðamála eru hugsuð saman sem grunnur að aðgerðabundinni stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir ferðaþjónustuna til lengri tíma sem byggir á traustum gögnum sem safnað er með skipulegum og reglubundnum hætti. Hægt er að senda inn athugasemdir til 21. júlí.

Framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030

Í upphafi árs var skipaður stýrihópur sem hafði það hlutverk að setja fram drög að framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030. Lögð er fram sú framtíðarsýn að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi á heimsvísu í sjálfbærri þróun. Áhersla er lögð á að íslensk ferðaþjónusta stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld og sé þekkt fyrir gæði, fagmennsku og einstaka upplifun.

Verkefnið var unnið í samvinnu Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála. 

Jafnvægisás ferðamála

Jafnvægisás ferðamála mun veita yfirlit um ástand efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta og gefa vísbendingar um hvar úrbóta sé þörf. Þannig mun Jafnvægisásinn nýtast sem stjórntæki við mótun framtíðarstefnu Íslands sem áfangastaðar með það að leiðarljósi að stuðla að jafnvægi og sjálfbærri þróun ferðaþjónustu til lengri tíma.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum