Hoppa yfir valmynd
31. maí 2010 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fordæmir árás á skipalest

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, fordæmir árás Ísraelsmanna á skipalest með hjálpargögn, sem var á leið til Gaza í nótt. Allmargir Norðurlandabúar voru um borð, Evrópuþingmenn og fulltrúar friðarhreyfinga. Samkvæmt fréttaskeytum létu að minnsta kosti 19 lífið í árásinni.

Utanríkisráðherra tekur undir kröfur, m.a. Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna, að árásin verði rannsökuð í þaula. Ekki sé hægt að þola að Ísraelar beiti ítrekað valdi með þessum hætti.

"Gaza er í raun risastórt fangelsi þar sem alþjóðalög eru brotin á íbúunum. Þessu verður að linna," sagði ráðherra. Íslensk stjórnvöld krefjast þess að Ísrael aflétti herkvínni gegn Gaza nú þegar.

Utanríkisráðherra mótmælir framgöngu Ísraela harðlega í bréfi til utanríkisráðherra Ísraels og hafa stjórnvöld óskað eftir fundi vegna málsins með sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi sem starfar í Osló. Þá fagnar ráðherra því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ætli að taka málið til umfjöllunar í New York síðar í dag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum