Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2016 Utanríkisráðuneytið

Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Filippseyja undirritaður

Fulltrúar EFTA-ríkjanna og Filippseyja - mynd

Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja var í dag undirritaður í Bern í Sviss. Martin Eyjólfsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart EFTA, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd. 

„Þessi samningur EFTA-ríkjanna er fagnaðarefni; hann veitir íslenskum aðilum bættan aðgang að mörkuðum á Filippseyjum og felur í sér spennaandi tækifæri, m.a. í nýtingu jarðhita,“ segir Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.

Samningurinn kveður á um að tollar á íslenskar sjávarafurðir og iðnaðarvörur falli niður við innflutning til Filippseyja frá gildistöku samningsins eða á 5-10 ára aðlögunartímabili. Jafnframt munu ýmsar útflutningsafurðir íslensks landbúnaðar eins og lifandi hross, lambakjöt, ostar og vatn njóta tollfrelsis frá gildistöku samningsins eða að 5 árum liðnum.

Þá munu samningsaðilar lækka eða fella niður tolla af ýmsum unnum landbúnaðarvörum.Fríverslunarsamningurinn gerir ráð fyrir auknu frjálsræði í þjónustuviðskiptum, meðal annars hvað varðar orkutengdra þjónustu og jarðhita. Filippseyjar eru í öðru sæti yfir ríki heimsins hvað varðar nýtingu jarðhita og hafa íslensk fyrirtæki á því sviði komið að ýmsum verkefnum þar undanfarin ár. Samningurinn nær jafnframt til verndunar hugverkaréttinda, samkeppnismála, sjálfbærrar þróunar og ákvæða um lausn ágreiningsmála. 

Samningaviðræður stóðu yfir í tæplega eitt ár og þarf að fullgilda hann í einstökum EFTA-ríkjum og í Filippseyjum áður en hann öðlast gildi.

Frekari upplýsingar um fríverslunarsamninginn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum