Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Nr. 6/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 8. apríl 2019

í máli nr. 6/2019

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður, Valtýr Sigurðsson hæstaréttarlögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða eftirstöðvar tryggingarfjár sem lagt var fram við upphaf leigutíma að fjárhæð 30.000 kr.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Með kæru, dags. 21. janúar 2019, beindi sóknaraðili til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við varnaraðila. Með bréfi kærunefndar, dags. 22. janúar 2019, var sóknaraðila bent á að kæran þyrfti að berast á íslensku. Með tölvupósti sendum 4. febrúar 2019 barst kæra sóknaraðila á íslensku. Með bréfi kærunefndar, dags. 5. febrúar 2019, var varnaraðila gefinn kostur á að tjá sig um efni kærunnar. Greinargerð varnaraðila ásamt fylgiskjölum barst með tölvupósti sendum 22. febrúar 2019. Kærunefnd sendi sóknaraðila greinargerð og gögn varnaraðila með bréfi, dags. 25. febrúar 2019, til upplýsingar og var sóknaraðila veittur frestur til að koma að athugasemdum. Athugasemdir sóknaraðila bárust kærunefnd með tölvupósti, sendum 8. mars 2018, og voru þær sendar varnaraðila með bréfi kærunefndar, dags. 11. mars 2019. Athugasemdir varnaraðila bárust kærunefnd með tölvupósti, sendum 18. mars 2019, og voru þær sendar sóknaraðila með bréfi kærunefndar, dagsettu sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 22. apríl 2018 til 22. apríl 2019 um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu varnaraðila á eftirstöðvum tryggingarfjár.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili segir að við upphaf leigutíma hafi sóknaraðili og meðleigjandi hennar fundið uppþvottavél á götunni og spurt varnaraðila hvort þær gætu tekið hana með í íbúðina og hvort hann gæti hjálpað þeim. Hann hafi játað því og saman hafi þau flutt uppþvottavélina í íbúðina.

Í júní 2018 hafi sóknaraðili upplýst varnaraðila að hún ætlaði að flytja út 30. september 2018 og varnaraðili þá ekkert sagt um uppþvottavélina. Í september 2018 hafi varnaraðili beðið meðleigjanda sóknaraðila um að henda uppþvottavélinni án upplýsinga um hvaða afleiðingar það gæti haft gerði hún það ekki. Varnaraðili hafi verið upplýstur um að sóknaraðili og meðleigjandi hennar ættu ekki bíl og uppþvottavélin væri of þung en þær boðist til að hjálpa honum að henda henni. Hann hafi ekki hlustað á þær og uppþvottavélinni ekki verið hent.

Tveimur dögum eftir að sóknaraðili hafi flutt út eða 2. október 2018 hafi varnaraðili endurgreitt hluta af tryggingarfénu eða 100.000 kr. Sóknaraðili hafi óskað skýringa á því og hann sagt að það væri vegna þess að uppþvottavélinni hefði ekki verið hent og að hún hefði sólarhring til að fjarlægja hana en að öðrum kosti yrðu eftirstöðvar tryggingarfjárins ekki endurgreiddar.

Þar sem varnaraðili hafi ekki varað við afleiðingunum, veitt sólarhrings frest og verið dónalegur hafi sóknaraðili ekki fjarlægt uppþvottavélina.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili segir að sóknaraðili og meðleigjandi hennar hafi þurft aðstoð við að flytja uppþvottavélina og hann hjálpað þeim án þess að krefjast greiðslu. Þegar þær hafi ákveðið að flytja út hafi hann beðið þær um að fjarlægja uppþvottavélina. Varnaraðili hafi talað við meðleigjanda sóknaraðila og sagt að yrði uppþvottavélin ekki fjarlægð þyrfti hún að greiða kostnað vegna flutnings hennar. Þar sem uppþvottavélin hafi ekki verið fjarlægð hafi varnaraðili séð um það og dregið kostnað vegna þess frá tryggingarfénu.

IV. Athugasemdir sóknaraðila

Í athugasemdum sóknaraðila segir að það sé rangt að varnaraðili hafi sagt henni eða meðleigjanda hennar að hann myndi draga kostnað vegna flutnings uppþvottavélarinnar frá tryggingarfénu. Þá hafi sóknaraðili upplýsingar um að kostnaður við að flytja uppþvottavél sé í kringum 3.000 kr. Uppþvottavélin hafi enn verið í íbúðinni í desember 2018.

V. Athugasemdir varnaraðila

Í athugasemdum varnaraðila segir að hann hafi þurft að nota tíma sinn til þess að fjarlægja uppþvottavélina. Þar að auki hafi hann þurft að biðja vini sína um hjálp. Hann hafi beðið til loka árs eftir að meðleigjandi sóknaraðila hefði samband við sig en hún ekki gert það.

VI. Niðurstaða            

Samkvæmt leigusamningi aðila greiddi sóknaraðili og meðleigjandi hennar tryggingarfé að fjárhæð 130.000 kr. við upphaf leigutíma til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi. Varnaraðili hefur þegar endurgreitt 100.000 kr. en heldur eftirstöðvunum eftir þar sem uppþvottavél var skilin eftir í íbúðinni að leigutíma loknum.

Í 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, segir að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skal hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu. Í 5. mgr. sömu greinar segir að geri leigusali kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis samkvæmt 4. mgr. skuli leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafni eða fallist á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Hafni leigjandi kröfu leigusala beri leigusala að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu leigjanda innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella skal hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar.

Óumdeilt er að leigutíma lauk 30. september 2018 samkvæmt samkomulagi aðila. Varnaraðili endurgreiddi tryggingarfé að fjárhæð 100.000 kr. 2. október 2018 en hélt eftirstöðvunum eftir á þeirri forsendu að uppþvottavél hafi ekki verið fjarlægð úr hinni leigðu íbúð við lok leigutíma. Ljóst er af gögnum þessa máls að ágreiningur var um bótaskyldu sóknaraðila en sóknaraðili hafnaði kröfu varnaraðila skriflega með tölvupósti sendum til hans 30. október 2018, eða fjórum vikum eftir að varnaraðili gerði kröfu í tryggingarféð. Þar sem varnaraðili vísaði þeim ágreiningi hvorki til kærunefndar húsamála né dómstóla innan fjögurra vikna frá þeim degi sem sóknaraðili hafnaði kröfu varnaraðila, sbr. 5. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, ber honum þegar af þeirri ástæðu að endurgreiða eftirstöðvar tryggingarfjárins.

Samkvæmt 4. mgr. og 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, ber fjárhæðin vexti frá þeim tíma þegar tryggingarféð var lagt fram og dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga, nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er leigusali skilar tryggingarfénu. Leigutíma lauk 30. september 2018 og ætla má að íbúðinni hafi verið skilað þann dag. Varnaraðila ber því að skila sóknaraðila eftirstöðvum tryggingarfjárins að fjárhæð 30.000 kr. með vöxtum frá þeim degi sem tryggingarféð var lagt fram og dráttarvöxtum frá 29. október 2018 til þess dags er hann skilar tryggingarfénu.

Ákvæði 5. mgr. 85. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, kveður á um að úrskurðir kærunefndar séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum er heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 7. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 


 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 30.000 kr. ásamt vöxtum frá þeim tíma sem tryggingarféð var lagt fram, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, til 29. október 2018 en með dráttarvöxtum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 8. apríl 2019

 

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

 

Valtýr Sigurðsson                                          Eyþór Rafn Þórhallsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum