Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2007 Utanríkisráðuneytið

Tvíhliða ráðherrafundir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Accra í Gana

Utanríkisráðherra ræðir við utanríkisráðherra Tansaníu
Utanríkisráðherra ræðir við utanríkisráðherra Tansaníu

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 79/2007

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, var viðstödd setningu 9. leiðtogafundar Afríkusambandsins (AU) í Accra, höfuðborg Gana, 1. júlí síðastliðinn. Ráðherra sótti áður framkvæmdaráðsfund sambandsins, sem fram fór dagana á undan. Utanríkisráðherrar aðildarríkja sambandsins sækja framkvæmdaráðsfundina en þau eru 52 talsins. Ingibjörg Sólrún átti tvíhliða einkafundi með ráðherrum rúmlega tuttugu Afríkuríkja í tengslum við dagskrá Afríkusambandsins.

Helsta umræðuefni leiðtogafundar Afríkusambandsins var sambandsstjórn Afríku. Utanríkisráðherra kynnti sér afstöðu þeirra ráðherra sem hún fundaði með og fylgdist með umræðum á fundinum. Komu fram mismunandi viðhorf ríkja sambandsins til þess hvers konar samruni sé æskilegastur og hversu hratt eigi að fara en samhljómur er um að stefna að nánari samvinnu.

Meðal þess sem rætt var á tvíhliða fundum utanríkisráðherra voru málefni Afríku almennt, tengsl Íslands og viðkomandi ríkja, þróunarsamvinna, öryggismál, staða kvenna og alþjóðaviðskipti. Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var bæði kynnt og stuðningur fjölmargra Afríkuríkja við framboðið þakkaður. Um 60% þeirra mála sem koma inn á borð öryggisráðsins varða Afríku og kynnti utanríkisráðherra sér sum þeirra frá fyrstu hendi ráðherra viðkomandi ríkja.

Meðal þeirra sem utanríkisráðherra fundaði með voru utanríkisráðherrar Eritreu og Eþíópíu. Samskipti landanna, sem háðu blóðugt og kostnaðarsamt stríð hafa verið mjög stirð og ræddu ráðherrarnir um þá stöðu, auk þess sem málefni nágrannaríkisins Sómalíu var rætt. Jarðhita er að finna í Eþíópíu og Eritreu og voru möguleikar á frekara samstarfi landanna á þeim vettvangi ræddir.

Utanríkisráðherra hitti einnig starfssystur sína frá Búrúndí, Antoinette Batumbwira, og ræddi um þær miklu áskoranir sem stjórnvöld í Búrúndí standa frammi fyrir eftir áralangt borgarastríð milli Tútsa og Hútúa. Síðasti uppreisnarhópurinn í landinu skrifaði undir vopnahlé á síðasta ári en borgarastríðið hófst 1993 og hafði m.a. ágerst vegna borgarastyrjalda í nágrannaríkjunum Rúanda og Austur-Kongó (DRC). Hundruð þúsunda flóttamanna eru á svæðinu.

Eftir að hafa átt fund með utanríkisráðherra Líberíu, George Wallace, var utanríkisráðherra boðið til fundar með forseta Líberíu, Ellen Johnson-Sirleaf. Á fundunum ræddu þær m.a. um stöðu kvenna og hvar þurfi einkum að herða baráttuna til að tryggja konum og börnum mannréttindi og frelsi. Alþjóðasamfélagið bindur miklar vonir við stjórn Johnson-Sirleaf, sem hefur einbeitt sér að útrýma spillingu og þjóðflokkaerjum í landinu.

Sameinuðu þjóðirnar starfrækja sex sérstakar friðargæslusveitir í löndum Afríku: UNMIS í Súdan, UNOCI á Fílabeinsströndinni, UNMIL í Líberíu, MONUC í Austur-Kongó (DRC), UNMEE í Erítreu og Eþíópíu og MINURSO í Vestur-Sahara.

Í tengslum við fundina í Accra átti Ingibjörg Sólrún viðræður við ráðherra frá eftirtöldum ríkjum: Botsvana, Búrkína Fasó, Búrúndí, Erítrea, Eþíópía, Fílabeinsströndin, Gabon, Gana, Kamerún, Kenía, Lesótó, Líbería, Malí, Máritanía, Mósambík, Níger, Suður-Afríka, Tansanía, Tógó, Tsjad og Úganda.



Utanríkisráðherra ásamt Afríkumálaráðherra Búrkína Fasó
Utanríkisráðherra ásamt Afríkumálaráðherra Búrkína Fasó

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum