Hoppa yfir valmynd
29. mars 2023 Utanríkisráðuneytið

Margir hafa týnt ástvinum vegna átaka í Úkraínu

Ljósmynd: Rauði krossinn - mynd

Fyrir ári setti Rauði krossinn upp sérstaka skrifstofu til að sinna þeim þúsundum fjölskyldna sem hafa týnt ástvinum vegna vopnaðra átaka í Úkraínu en fjölskyldusameiningar eru eitt helsta verkefni samtakanna.

Leitarþjónusta alþjóðaráðs Rauða krossins er eitt elsta verkefni hreyfingarinnar, en í yfir 150 ár hefur hún hjálpað fólki sem hefur orðið viðskila við ástvini sína að sameinast þeim á ný og á þann hátt hefur hún sinnt einni af grundvallarskyldum alþjóðaráðsins, samkvæmt Genfar-sáttmálanum. Leitarþjónusta alþjóðaráðs hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans til að koma fjölskyldumeðlimum aftur í samband, finna og bera kennsl á týnda einstaklinga, vernda reisn hinna látnu og mæta þörfum fjölskyldna þeirra sem eru týndir um allan heim.

Alþjóðaráð Rauða krossins opnaði sérstaka skrifstofu innan leitarþjónustu sinnar í mars 2022 til að sinna átökunum milli Rússlands og Úkraínu. Hlutverk hennar er að vera hlutlaus milliliður milli stríðandi fylkinga og draga úr þjáningu fjölskyldna sem hafa ekki fengið fréttir af afdrifum ástvina sinna vegna átakanna, annað hvort vegna þess að þeir hafa verið handsamaðir af óvinum eða vegna þess að þau misstu sambandið eftir að hafa flúið heimili sín.

Skrifstofan safnar saman, miðstýrir og sendir út upplýsingar um örlög og staðsetningu fólks sem hefur verið hneppt í varðhald eða fallið í hendur óvina sinna, hvort sem það er í hernaði eða ekki. Hún fylgist með örlögum þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra á meðan þeir eru á valdi óvina sinna, hvort sem þeir eru lífs eða liðnir, til að koma í veg fyrir að þeir hverfi og til að viðhalda fjölskyldutengslum.

Skrifstofan er staðsett í Genf og vinnur náið með öðrum aðilum innan alþjóðahreyfingar Rauða krossins um allan heim til að samhæfa aðgerðir. Hún er skipuð þverfaglegu teymi sem inniheldur fólk sem talar bæði rússnesku og úkraínsku og eru sérfræðingar á sviði fjölskyldusameininga, leitar að týndu fólki, réttarfræði, gagnastjórnunar og gagnagreiningar. Leitarþjónusta alþjóðaráðs Rauða krossins mun starfa eins lengi og þörf er á til að veita fjölskyldum upplýsingar um ástvini sína.

Nánar á vef Rauða krossins

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum