Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 6/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. janúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 6/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110060

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 24. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Verði ekki fallist á það er þess krafist í öðru lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 25. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 2. september 2020 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom þar fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 20. júní 2019. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma frá 21. júní 2019 til 20. júní 2022 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 8. júní 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 23. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 9. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 10. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 24. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 14. desember 2020 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni til kærunefndar vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað varðar málavexti. Þar kemur fram að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að líkamleg heilsa hans væri góð en að andleg heilsa hans væri mjög bágborin. Frá komu hans til Íslands hafi kæranda þó farið að líða betur. Kærandi hafi greint frá því að stríðið og aðstæður hans í heimaríki hafi haft slæm áhrif á heilsu hans en hann hafi ungur að aldri horft upp á lík fólks og líkamshluta þess á götum úti og hafi það gert hann óttasleginn og hræddan um eigið líf.

Kærandi hafi greint frá því að aðbúnaður hans í Grikklandi hafi verið slæmur og ef hann yrði sendur aftur þangað myndi ekkert bíða hans þar nema líf á götunni. Kærandi hafi dvalið þar í landi í um tvö og hálft ár. Eftir að hann hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi hann engan stuðning fengið, hvorki félagslegan né fjárhagslegan. Kærandi hafi búið með bróður sínum en eftir að honum hafi verið veitt vernd hafi honum verið gert að yfirgefa staðinn. Kærandi hafi þá búið á götunni en stundum hafi hann stolist til að gista hjá bróður sínum en þurft að fara snemma morguns því annars hafi bróðir hans átt á hættu að missa húsnæðið. Þá hafi kærandi ekki haft aðgang að menntun né fengið atvinnu eða tækifæri til að komast af einn síns liðs. Kærandi hafi fengið 50 evrur í framfærslu frá grískum yfirvöldum fram að 18 ára aldri. Sá peningur hafi verið fenginn bróður hans sem hafi séð fyrir honum á þeim tíma. Eftir að kærandi hafi náð 18 ára aldri hafi hann hins vegar fengið 150 evrur fyrir tveggja mánaða tímabil en eftir það hafi allur fjárstuðningur við hann stöðvast. Kærandi hafi greint frá því að hann teldi sig ekki hafa atvinnuleyfi í Grikklandi en þar væru engin atvinnutækifæri og atvinnuleysi mikið. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi tínt upp plastpoka af götunni, ásamt bróður sínum og sett þá í vél sem hafi gefið matarmiða til baka. Síðar hafi kæranda verið meinaður aðgangur að vélinni vegna þess að hann væri flóttamaður. Bróðir kæranda hafi þá séð fyrir honum um tíma en kærandi telji að bróðir hans geti ekki séð fyrir honum yrði hann endursendur til Grikklands þar sem bróðir kæranda hafi yfirgefið hann og væru þeir ekki í samskiptum. Kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og getað farið á heilsugæslustöð þar sem hann hafi fengið lyf á hálfvirði. Kærandi hafi þó ekki þurft að leita sér læknishjálpar í Grikklandi. Þá óttist kærandi lögregluna í Grikklandi, sem hafi komið fram við kæranda með fordómafullum hætti og talað á niðrandi máta til hans en hann hafi sem flóttamaður ekki getað tilkynnt um atvikið til lögreglunnar. Þá hafi kærandi verið berskjaldaður fyrir árásum þar sem hann hafi sofið á götum úti og greint frá því að hópur fólks hafi ráðist að honum með hnífum og hann hafi þurft að hlaupa undan til að bjarga sér.

Í greinargerð kæranda er m.a. fjallað um aðstæður og réttindi flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi í tengslum við heilbrigðis- og félagskerfið, aðgengi að húsnæði og atvinnumöguleika þar í landi. Þá er einnig fjallað um hversu algengir ofbeldisglæpir séu gagnvart flóttafólki í Grikklandi og fyrirhugaðar lagabreytingar sem miði að því að veikja réttarstöðu flóttafólks í Grikklandi. Í umfjöllun sinni vísar kærandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana máli sínu til stuðnings.

Kærandi gerir athugasemd við mat Útlendingastofnunar á skilyrðum reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 um að kærandi eigi ekki á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun eða að staða hans muni koma til með að verða verulega síðri en staða almennings þar í landi. Kærandi andmælir fyrrgreindu og bendir á að hann sé [...] gamall og hafi greint frá því að stríðið í [...] hafi haft mikil áhrif á sig. Kærandi hafi nú þegar orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi og fyrir fordómum af hálfu lögreglunnar þar í landi. Sé ljóst að staða hans verði verulega síðri en staða almennings verði hann endursendur til Grikklands.

Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnismeðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 og áreiðanlegum heimildum telji kærandi fullvíst að hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi verði honum gert að snúa aftur þangað. Þá muni staða hans verða verulega síðri en staða almennings í Grikklandi í ljósi stöðu hans sem flóttamanns og kynþáttar. Kærandi telur með tilliti til ástands flóttamannamála í Grikklandi, þess ofbeldis og fordóma sem kærandi hafi mætt og megi búast við að mæta aftur snúi hann á ný til Grikklands og erfiðu aðgengi að félagsaðstoð séu horfur hans svo slæmar að ekki sé unnt að endursenda kæranda í slíkar aðstæður. Séu því uppi sérstakar ástæður í máli kæranda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vekur athygli á orðalagi 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018, sem kveði á um breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, um að þau viðmið sem séu sett fram í reglugerðinni séu nefnd í dæmaskyni og sé því ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við og geti með engum hætti komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda.

Kærandi vísar þá til þess að Útlendingastofnun telji áhrif Covid-19 faraldursins ekki slík að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi við í málinu. Kærandi telur mat Útlendingastofnunar ekki standast skoðun hvað þetta varðar. Vegna mikillar óvissu sem sé uppi vegna Covid-19 faraldursins telji kærandi rétt að kærunefnd leggi jafnframt, með hliðsjón af áhrifum og afleiðingum faraldursins, mat á hvort taka skuli umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir kröfu um að kærunefnd kanni aðstæður í Grikklandi og hvernig aðstæður flóttafólks hafi breyst í kjölfar faraldursins, einkum þeirra sem hafi fengið dvalarleyfi í Grikklandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar.

Kærandi byggir jafnframt á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Lýsingar kæranda á aðstæðum sínum í Grikklandi komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi, m.a. varðandi atvinnu, húsnæði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Með vísan til þess verði að telja að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi ákvörðunin brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Íslenskum stjórnvöldum beri því skylda til að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og hefur m.a. framvísað dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 20. júní 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 21. janúar 2021) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 21. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum.

Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitalna (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefið kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði uppá gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmerið útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fara út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM), hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Þar sem umsóknarferlið fer einungis fram á grísku geta umsækjendur leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (Manpower Employment Organization (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans væri góð en að andleg heilsa hans væri slæm. Kærandi greindi frá því að aðstæður í heimaríki hans og það sem hann hafi upplifað þar hafi haft slæm áhrif á andlega heilsu hans.Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 15. desember 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu en engin frekari gögn bárust. Við meðferð þessa máls hefur kærandi notið stuðnings löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands.

Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur þá m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem hann hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi.

Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar, er kærandi almennt heilbrigður og vinnufær karlmaður sem kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og kennitölu, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann hafi orðið fyrir ofbeldi og fordómum í Grikklandi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi minnkað verulega undanfarnar vikur eftir nokkuð öran vöxt fram yfir miðjan nóvember, en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Grikklandi síðustu 2 vikur með því lægsta í Evrópu. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að greiða fyrir áframhaldandi málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála (e. Asylum Service Offices) í Grikklandi opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Hyggist einstaklingar sækja um vernd þurfa þeir að bóka viðtal í gegnum forritið Skype. Skipulögð viðtöl við umsækjendur um alþjóðlega vernd fara þó fram með venjubundnum hætti og hafa aðrar ráðstafanir verið gerðar í tengslum við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, þ. á m. viðkvæmra einstaklinga og umsókna um fjölskyldusameiningu. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Eins og áður sagði hefur nýgengi smita fækkað á síðustu vikum eftir fjölgun í haust. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á tveimur tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá er það jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí sl., telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Jafnframt bárust fréttir af erfiðleikum grískra stjórnvalda við að ná tökum á aðstæðum. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí sl. m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi fyrr í haust, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 23. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 25. ágúst 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á verði ákvörðun um að hann verði sendur til annars ríkis framfylgt þurfi að ná mjög háu alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulaus.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemd við mat stofnunarinnar á skilyrðum reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að taka umsókn hans ekki til efnismeðferðar með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau eru útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 25. ágúst 2020. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                          Bjarnveig Eiríksdóttir  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum