Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 12/2021 Úrskurður 24. febrúar 2021

Mál nr. 12/2021                     Eiginnafn:      Theo (kk.)

 

Hinn 24. febrúar 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 12/2021 en erindið barst nefndinni 19. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan, en nafnið getur ekki talist ritað í samræmi við íslenskar ritreglur miðað við að eðlilegur framburður nafnsins sé Teó. Íslensk karlmannsnöfn enda yfirleitt ekki á o og samstafan th er ekki í samræmi við íslenskar ritreglur. Þess vegna er einungis hægt að fallast á þennan rithátt ef hann telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera fimm drengir, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Theo, sá elsti er fæddur 2012. Miðað við þessar forsendur hefur mannanafnanefnd áður komist að þeirri niðurstöðu að eiginnafnið Theo (kk.) hafi ekki unnið sér hefð í íslensku, sbr. úrskurð frá 19. mars 2020 í máli nr. 17/2020, úrskurð frá 26. janúar 2018 í máli nr. 2/2018 (sjá einnig úrskurð frá 19. mars 2008 í máli nr. 16/2008).

Til nánari útskýringar á niðurstöðu téðra úrskurða er rétt að benda á að í lagaákvæðinu sem um ræðir, þ.e. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr., er talað um hefð fyrir rithætti tiltekins nafns, en ekki um hefð fyrir tilteknum bókstaf eða samstöfu. Til þess að hægt sé að fallast á að ritháttur nafns, sem víkur frá almennum ritreglum íslensks máls, hafi unnið sér hefð í íslensku verða að jafnaði að vera ákveðið mörg dæmi um þennan rithátt nafnsins, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Ritháttur annars nafns myndar aftur á móti ekki grundvöll hefðar fyrir nafnið sem um ræðir. Til dæmis er nafnið Walter ekki ritað í samræmi við almennar íslenskar ritreglur þar sem bókstafurinn w er ekki hluti af íslensku stafrófi. Hins vegar er Walter á mannanafnaskrá með þessum rithætti þar sem nafnið telst hafa unnið sér hefð í íslensku. Þetta hefur þó ekki í för með sér að bókstafurinn w hafi unnið sér hefð og leiðir ekki til þess að önnur nöfn rituð með w, t.d. Wilma, teljist hafa unnið sér hefð í málinu. Sama gildir um samstöfuna th. Ekki er til dæmis hægt að fallast á að hefð sé fyrir rithættinum Thalía þótt th komi fyrir í upphafi nafnsins Thelma sem hefur unnið sér hefð í íslensku. Þessi túlkun er í samræmi við texta laga, nr. 45/1996, um mannanöfn og greinargerð með frumvarpi að lögunum.

Aftur á móti eru í sumum tilvikum sérstök tengsl á milli nafna. Dæmi um það eru mismunandi ritmyndir sama nafns, sbr. t.d. Nathalia ~ Natalía og Marzellíus ~ Marsellíus. Þetta á einnig við nöfn sem telja má orðhlutalega skyld, svo sem kvenmannsnöfn sem leidd eru af karlmannsnöfnum, t.d. Einara leitt af Einar og Baldína leitt af Baldur, og gælunöfn sem leidd eru af öðrum nöfnum, t.d. Jónsi leitt af Jón og Stína leitt af Kristín. Þegar metið er hvort tiltekinn ritháttur nafns hafi unnið sér hefð í íslensku virðist eðlilegt að líta til þess hvort samsvarandi ritháttur tíðkist í öðru nafni sem hefur sérstök tengsl – á borð við þau sem hér var lýst – við nafnið sem verið er að meta. Ekki verður séð að þessi undantekning hafi veruleg áhrif á gildi þeirrar reglu að hefð í skilningi 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. mannanafnalaga skírskoti til ritháttar ákveðinna nafna en ekki til tiltekinna bókstafa eða samstafna. Jafnframt er þessi túlkun að ákveðnu leyti í samræmi við mikilvæga reglu í íslenskri stafsetningu, þ.e. að stofn orða hafi sem líkasta ritmynd þrátt fyrir framburðarmun á milli ólíkra orðmynda, sbr. dæmi á borð við marg-ur og marg-t, hag-i og hag-a og vatn-i og vatn-s (yfirleitt vass í framburði).

 

Eiginnafnið Theo getur að uppruna talist gælunafn leitt af eiginnafninu Theodór með því að fella niður síðasta atkvæði þess, -dór. Þar sem hefð er fyrir því að rita tvö fyrstu atkvæði nafnsins Theodór með samstöfunni th og sérhljóðanum o lítur mannanafnanefnd svo á að umbeðinn ritháttur nafnsins Theo styðjist við hefð í íslensku.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Theo (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnanna Teó (kk.) og Theó (kk.).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum