Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fyrsta beina flugið milli Cardiff og Akureyrar

Á myndinni eru auk ráðherra: Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar og tveir fulltrúar Super Break. - mynd

Fyrst beina flugið frá Bretlandi til Ak­ur­eyr­ar á veg­um ferðaskrif­stof­unn­ar Super Break var í dag. Við upphaf ferðarinnar í Cardiff fylgdi Akureyringurinn og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson farþegum úr hlaði en hann spilar með Cardiff City. Við komuna til Akureyrar var tekið á móti farþegunum með viðhöfn  og klipptu Eiríkur Björn bæj­ar­stjór­i og Þórdís Kolbrún ráðherra ferðamála á borða eft­ir að farþegar gengu frá borði. 

Í vetur mun Super Break bjóða ferðir til Akureyrar frá ýmsum borgum á Englandi og segja forsvarsmenn ferðaskrifstofunnar að viðtökurnar hafi farið fram úr vonum og munu um 2.500 breskir ferðamenn koma til Akureyrar í janúar og febrúar. 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum