Hoppa yfir valmynd
17. júní 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar

Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita,

„1. til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit,

2. til að styrkja útgáfur slíkra rita annars kostar og

3. til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildarrita“

Enn fremur segir „Öll skulu rit þessi lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum“ Á árinu 1974 var bætt við ákvæði þess efnis „að þegar sérstök ástæða þyki til, megi verja fé til viðurkenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum“

 

  • Umsækjendur um verðlaun úr sjóðnum skulu senda nefndinni þrjú eintök þeirra rita er þeir óska að tekin verði til álita. Miðað er við rit, gefin út frá 1.september 2020. Æskilegt er að þeim fylgi umsögn viðurkenndra fræðimanna, sérfróðra um efnið.
  • Sækja þarf um rafrænt á Eyðublaðavef Stjórnarráðsins og þremur eintökum af ritum skal skilað til Menningar-og viðskiptaráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, merkt verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar, fyrir 1.september næstkomandi

 

Reykjavík 17. júní 2022

Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar

Sigrún Magnúsdóttir

Sólveig Pétursdóttir

Guðmundur Andri Thorsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum