Hoppa yfir valmynd
10. desember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 550/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. desember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 550/2018

í stjórnsýslumálum nr. KNU18110044 og KNU18110045

 

Beiðni [...], [...] og barna þeirra um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 388/2018, dags. 27. september 2018, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 11. júlí 2018, um að taka umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir M), [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir K) og barna þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum þann 1. október 2018. Kærendur lögðu fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 8. október 2018 og þann 12. október sl. barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku málanna. Beiðnum kærenda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og endurupptöku málanna var hafnað af kærunefnd með úrskurðum nr. 487/2018 og 468/2018, dags. 19. nóvember sl.

Þann 30. nóvember sl. lögðu kærendur öðru sinni fram beiðni um endurupptöku, ásamt beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar nr. 388/2018. Með beiðninni lögðu kærendur fram greinargerð og fylgigögn.

Í ljósi meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar munu mál kærenda er varða beiðnir um endurupptöku haldast í hendur í úrskurði þessum.

Krafa kærenda um endurupptöku mála þeirra er byggð á 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá fara kærendur fram á frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í málum þeirra.

II. Málsástæður og rök kærenda

Kærendur byggja beiðni sína um endurupptöku á 24. gr. stjórnsýslulaga, annars vegar þar sem aðstæður hafi breyst frá því að ákvarðanir voru teknar í málum þeirra og hins vegar að ákvarðanirnar hafi verið byggðar á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik.

Í sameiginlegri greinargerð kærenda kemur fram að úrskurður kærunefndar í fyrra endurupptökumáli þeirra hafi verið kveðinn upp þrátt fyrir að lögmaður þeirra hafi tilkynnt kærunefnd að von hafi verið á frekari gögnum. Þau gögn hafi nú verið lögð fram og að mati kærenda sé endurupptaka málanna nú óhjákvæmileg í ljósi innihalds hinna nýju gagna og með hliðsjón af þeim forsendum sem hafi legið til grundvallar úrskurði kærunefndar frá 27. september sl., þar sem ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja kærendum um efnislega meðferð hafi verið staðfestar.

Þá vísa kærendur í greinargerð til framlagðs læknisvottorðs, dags. 14. nóvember sl., en þar komi m.a. fram að A hafi verið vísað til nánari rannsókna og eftirlits hjá [...] á [...]. Þá sé mikilvægt að hún sæti reglulegu eftirliti vegna hættu á [...] og öðrum [...]. Að mati kærenda séu framangreind atriði einstaklega mikilvæg af augljósum ástæðum og varði líf og heilsu [...] ára barns sem hafi verið metið í viðkvæmri stöðu. Að mati kærenda feli framangreindar upplýsingar í sér, hvort tveggja í senn, nýjar upplýsingar og breyttar aðstæður.

Í úrskurði kærunefndar frá 27. september sl. hafi komið fram að A notaði [...] en ekki fengist séð að heilbrigðisstarfsfólk hefði að öðru leyti metið það svo að A hefði þörf fyrir frekari heilbrigðisþjónustu. Með tilliti til hins nýja læknisvottorðs sé, að mati kærenda, framangreindri forsendu í úrskurði kærunefndar frá 27. september sl. kollvarpað. Úrskurður kærunefndar hafi því byggst á ófullnægjandi upplýsingum að því er varði heilsu A. Kærendur telji að afla þurfi upplýsinga um hvaða rannsóknir hafi verið gerðar og hvers konar eftirlit sé fyrirhugað. Vísa kærendur í því sambandi til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá beri nefndinni, við ákvörðunartöku, að hafa að leiðarljósi 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013.

Þá kemur fram í greinargerð kærenda að andlegt ástand K sé afar bágborið og hafi versnað. Vísa kærendur í því sambandi til framlagðrar greinargerðar sálfræðings, dags. 26. nóvember sl., en þar segi að sálfræðingurinn óttist viðbrögð K ef reynt verði að senda kærendur úr landi. Þá sé mikilvægt að taka tillit til andlegs ástands hennar í þeim aðstæðum. Að mati kærenda sé fullt tilefni til að framkvæma mat á því hvort K sé hæf til flutnings á þessum tímapunkti, með hliðsjón af andlegu ástandi hennar.

Fallist kærunefnd ekki á endurupptöku málanna fara kærendur þess á leit að nefndin fresti þegar í stað réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar þannig að kærendur geti borið mál sín undir dómstóla. Þá vísa kærendur til þess að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild Ríkislögreglustjóra standi til, að öllu óbreyttu, að framkvæma frávísun fjölskyldunnar þann 11. desember nk. og með hliðsjón af því sé þess óskað að beiðni kærenda verði sinnt eins hratt og kostur er svo að niðurstaða liggi fyrir áður en til flutnings kemur.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, dags. 27. september 2018, var komist að þeirri niðurstöðu að endursending kærenda til Ítalíu bryti ekki gegn 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. eða 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Að mati kærunefndar var staða K og M þess eðlis að fjölskyldan í heild var talin vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá var ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki talið eiga við í málum kærenda, þ.e. að kærendur hefðu ekki slík sérstök tengsl við landið eða að aðstæður þeirra væru að öðru leyti svo sérstakar að taka ætti umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi.

Svo sem fram hefur komið byggja kærendur aðra endurupptökubeiðni sína m.a. á því að skoða verði betur framlögð gögn og fyrirliggjandi upplýsingar um [...] A og andlega heilsu K. Með beiðni kærenda lögðu þau fram vottorð [...], dags. 14. nóvember sl., vegna [...] A, og greinargerð sálfræðings, dags. 26. nóvember sl., varðandi andlega vanlíðan K. Í framlögðu vottorði [...] kemur m.a. fram að A hafi sögu um meðfætt [...] á [...] og hafi verulega skerta [...] á [...] og þá sé hún [...] á [...]. Hún sé nú notandi á [...]. Þá er tekið fram í vottorðinu að [...] í bernsku sé mikilvægur liður í [...] og ekki síður almennum þroska [...] barna. Á [...] fái A hjálpartæki, fræðslu og ráðgjöf, kennsluráðgjöf og aðlagað námsefni eftir þörfum og henni hafi verið vísað til nánari rannsókna og eftirlits hjá [...] á [...]. Enn fremur segir í vottorðinu að mikilvægt sé að A sæti reglulegu eftirliti hjá [...] vegna aukinnar hættu á [...] og öðrum [...] sem geti fylgt hennar meðfædda [...] og valdið frekari versnun á [...].

Í framlagðri greinargerð sálfræðings kemur fram að í viðtali þann 13. nóvember sl. hafi líðan K alls ekki verið góð. Hún hafi verið mjög kvíðin og sé [...] ef einhver banki á dyrnar, af ótta við að lögreglan sé komin að flytja fjölskylduna burt. Þá vilji hún fremur [...] en að verða send úr landi. Hún sé full vonleysis, gráti stöðugt, sé þreytt og dofin og eigi mjög erfitt með svefn. Þá óttist hún m.a. að lenda á götunni við flutning til Ítalíu og að fjölskyldunni verði skipt upp, en M hafi ekki fengið að gista á sama stað og hún og börnin á Ítalíu.

Kærunefnd hefur nú farið yfir aðra beiðni kærenda um endurupptöku á úrskurði nefndarinnar nr. 388/2018 frá 27. september sl., ásamt áðurgreindum fylgigögnum sem liggja fyrir í málunum. Í framangreindum úrskurði nefndarinnar var, sem fyrr segir, m.a. byggt á því að A notaði [...] en ekki fengist séð að heilbrigðisstarfsfólk hefði að öðru leyti metið það svo að A hefði þörf fyrir frekari heilbrigðisþjónustu. Læknisvottorð sem kærendur hafa lagt fram með beiðni sinni um endurupptöku ber með sér að A hafi raunar þörf á frekari heilbrigðisþjónustu, þ. á m. stuðningi með hjálpartækjum og ráðgjöf fyrir athafnir daglegs lífs auk reglulegs eftirlits.

Það er mat kærunefndar þegar litið er til eðlis gagnanna, forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 388/2018 og málanna í heild að fallast beri á að ný gögn og upplýsingar hafi komið fram sem sýni fram á að aðstæður í máli A hafi breyst verulega frá birtingu úrskurðar kærunefndar og tilefni sé til þess að skoða mál fjölskyldunnar aftur í ljósi þeirra nýju upplýsinga sem liggja fyrir.

Kærunefnd fellst því á beiðni kærenda um endurupptöku málanna.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, m.a. viðtöl við K og M hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, þ. á m. varðandi börnin A og B. Að mati kærunefndar gefa gögn málanna til kynna að fjölskyldutengsl A og B við foreldra sína séu sterk. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kærendum veitt viðbótarvernd á Ítalíu sem að mati kærunefndar felur í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eru því skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Líkt og fram hefur komið eru kærendur í málinu hjón með tvö börn, [...]og [...] ára. Endurrit viðtala við M hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn gefa til kynna að hann glími við varanlega fötlun á [...] eftir sprengjuárás í heimaríki. Þá glími M við svefnleysi og þunglyndi og hafi m.a. verið ávísað lyfjum við verkjum og [...]. Samkvæmt frásögn K í endurriti viðtala hjá Útlendingastofnun er hún illa læs og þá kveðst hún hafa sætt ofbeldi í heimaríki. Þá kemur fram í framlögðum heilsufarsgögnum K að hún eigi erfitt með gang, sé með vöðvabólgu, spennuhöfuðverk og hafi fengið ávísað lyfjum og verið í sjúkraþjálfun vegna þess. Þá glími hún m.a. við kvíða og aðra andlega vanlíðan, sem fyrr segir, og hafi fengið ávísað lyfjum sökum þess. Upplýsingar úr uppfærðum heilsufarsgögnum A hafa þegar verið raktar. Samkvæmt frásögn K og M er heilsufar B almennt gott.Líkt og fram kom í úrskurði kærunefndar nr. 388/2018 frá 27. september sl. er það mat kærunefndar að fjölskyldan í heild sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.Aðstæður og málsmeðferð á ÍtalíuKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Turn the Tide – Refugee Education in Crisis (UNHCR, 29. ágúst 2018);
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu Social Protection (http://socialprotection.org/);• Upplýsingar af vefsíðu Istituto Nazionale della Previdenza Sociale/INPS (https://www.inps.it);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þar er m.a. greint frá vanköntum á aðlögun einstaklinga með alþjóðlega vernd að ítölsku samfélagi. Í framangreindum gögnum kemur einnig fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga ekki rétt á þeim stuðningi sem umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veittur enda sé gert ráð fyrir því að einstaklingar sjái fyrir sér sjálfir eftir að hafa verið veitt alþjóðleg vernd. Þótt sveitarfélögum beri að veita íbúum félagsþjónustu, þ.m.t. aðgang að félagslegu húsnæði fyrir þá sem þess þurfa, er framboð af slíkum úrræðum takmarkað. Þó bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á einhverja gistiaðstöðu en gistirými séu hins vegar af skornum skammti og því séu margir einstaklingar sem njóti verndar heimilislausir eða búi í yfirgefnum byggingum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, en þeir þurfa að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar hafa ekki efni á því. Til að fá aðgang að heilbrigðisþjónustu umfram grunnþjónustu þurfa einstaklingar að vera með skráð lögheimili. Þegar einstaklingar hafa skráð lögheimili sitt eiga þeir rétt á að fá sjúkrakort frá sveitarfélögum, en sjúkrakort veitir einstaklingum til dæmis aðgang að heimilislæknum og öðrum sérfræðilæknum sem annars falla ekki undir grunnheilbrigðisþjónustu. Eðli máls samkvæmt getur lögheimilisskráning reynst vandamál, t.d. fyrir einstaklinga sem eru heimilislausir. Þó bera gögn málsins með sér að frjáls félagasamtök hafi aðstoðað einstaklinga við slíka skráningu.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu sem er veitt af tryggingastofnun ríkisins (í. Istituto Nazionale della Previdenza Sociale/INPS). Þjónustan felur m.a. í sér félagslega aðstoð í formi atvinnuleysisbóta, fæðingarorlofs, fjölskyldubóta og félagslegs húsnæðis. Búseta á tilteknu svæði er ekki skilyrði fyrir félagslegri aðstoð en þó er í sumum tilfellum gerð krafa um tveggja ára samfellda búsetu á Ítalíu fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sem getur reynst vandamál fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið þar í landi og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna vinnu, sérstaklega ef þeir tala ekki tungumálið eða menntun þeirra eða reynsla fæst ekki metin. Þar að auki er möguleiki þeirra á því að fá félagslega aðstoð takmarkaður enda byggir kerfið að miklu leyti á því að einstaklingar eigi þar fjölskyldu sem veitt geti þeim stuðning.

Í skýrslu Asylum Information Database og skýrslu samtakanna Education International kemur m.a. fram að ítölsk lög kveða á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Skólaskyldan nær jafnt til ítalskra barna sem og erlendra. Erlend börn, 16 ára og yngri, sem stödd eru á Ítalíu eiga því sama rétt til menntunar án endurgjalds og aðgangs að menntastofnunum og ítölsk börn, sama hver staða þeirra er í samfélaginu. Þá eiga erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóða sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggja fram umsókn um skólavist þá er krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum og skortur á framlagningu gagna á ekki að koma í veg fyrir að barn sé skráð í skólann. Tilfelli þekkjast þar sem starfsmönnum viðkomandi menntastofnunar er ókunnugt um lagalegan rétt erlendra barna til menntunar. Þá þekkist einnig tregða af hálfu starfsmanna sumra menntastofnana að skrá mikinn fjölda erlendra nemenda við skólann. Jafnframt er skortur á skólaplássum í skólum nálægt búsetuúrræðum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Synjun starfsmanna viðkomandi menntastofnunar við að skrá erlend börn í skólann er hægt að kæra til yfirvalda sem fara með menntamálefni (e. provincial educational authority).

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæður kærenda hafa þegar verið raktar, þ. á m. varðandi fötlun M og A, svo og kvíða, [...] og aðra andlega erfiðleika K og M. Þá hafa verið raktar aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu, þ. á m. tilteknar hindranir í aðgengi að heilbrigðisþjónustu á borð við skilyrði um skráningu inn í heilbrigðiskerfið og skráningu lögheimilis. Síðan kærendur komu hingað til lands hafa þau notið aðgangs að heilbrigðisþjónustu vegna áðurgreindra heilsufarsvandamála sinna. Þá liggur fyrir að A, sem er barn að aldri, sætir nú reglulegu eftirliti og þjónustu hér á landi vegna [...] sinnar og að hætta er á því að [...] hennar kunni að versna frekar ef því eftirliti er ekki sinnt. Þrátt fyrir að gögn málsins beri með sér að einstaklingar með alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi rétt á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu þar í landi er það mat kærunefndar, eins og hér háttar sérstaklega til, að ekki sé tryggt að foreldrar A sem einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu hafi til að bera seiglu og bjargráð, m.t.t. áðurgreindra aðgangshindrana, til að tryggja A aðgengi að viðhlítandi og óslitinni heilbrigðisþjónustu á Ítalíu sem hún þarf á að halda vegna [...] sinnar.

Það er því mat kærunefndar að það sé ekki í samræmi við hagsmuni A að fara aftur til Ítalíu, sbr. sérviðmið varðandi börn og ungmenni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Við mat á bestu hagsmunum A hefur kærunefnd einkum litið til viðkvæmrar stöðu barnsins í ljósi [...] þess, aldurs og viðkvæmrar stöðu foreldranna, sbr. m.a. almenna athugasemd barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 14, um rétt barnsins til að allar ákvarðanir sem það varði séu byggðar á því sem því sé fyrir bestu.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur á, að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki tilefni til að taka afstöðu til kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa.

Samantekt

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála, eins og hér stendur á, að taka beri mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi.

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated.

The Directorate shall examine the merits of the applicants‘ applications for international protection in Iceland.

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                             Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum