Hoppa yfir valmynd
16. september 2019 Utanríkisráðuneytið

Alvarleg vannæring ógnar lífi barna í Mósambík

Ljósmynd: OCHA/Saviano Abreu - mynd

Tæplega ein milljón íbúa Mósambíkur býr við vannæringu og matarskort, þar af 160 þúsund börn yngri en fimm ára, segir í tilkynningu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), sem álítur að ástandið eigi eftir að versna á komandi mánuðum. Þetta hörmungarástand er bein afleiðing fellibyljanna Idai og Kenneth sem herjuðu á Mósambík og grannríki í mars og apríl á þessu ári.

Fellibyljirnir skildu eftir sig slóð eyðileggingar í miðríkjum og norðurhluta landsins, flóð eyðilögðu akra á 780 þúsund hektara svæði og tugir þúsunda íbúa þurftu að flýja heimili sín. Að mati fulltrúa UNICEF eru miklar líkur á því að börnum sem búi við alvarlega vannæringu fjölgi á þessum slóðum og að þau verði allt að 200 þúsund í febrúar á næsta ári. Um 38 þúsund börn gætu orðið svo alvarlega vannærð að þau gætu dáið, segir í frétt UNICEF.

Að sögn Marcoluigi Corsi fulltrúa UNICEF í Mósambík hafa afleiðingar flóðanna, sem fylgdu í kjölfar fellibyljanna, á landbúnað leitt til þess að börn fá ekki nægilega næringarríkan mat til þess að þroskast á heilbrigðan hátt. Að nokkrum mánuðum liðnum verði ástandið orðið enn alvarlegra og því sé bráðnauðsynlegt að fá stuðning við áframhaldandi mannúðaraðastoð.

Hann bendir jafnframt á að á tímum matarskorts sé hætta á að öryggi barna sé ógnað. Stighækkandi verð á matvælum geti leitt til þess að fjölskyldur grípi til óyndisúrræða eins og að gifta dætur sínar barnungar eða senda börnin í nauðungarvinnu. Corsi segir að nýleg könnun bendi til þess að barnabrúðkaupum sé að fjölga og dæmi séu um að stúlkur yngri en 13-14 ára séu komnar í hjónaband.

Neyðarkall mannúðarsamtaka vegna barna í Mósambík

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum