Hoppa yfir valmynd
20. maí 2015 Utanríkisráðuneytið

Áhersla á sjálfbæra orku fyrir kynslóðir framtíðar

Gunnar Bragi ræðir sjálfbæra orku á Se4all

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í ráðstefnu um sjálfbæra orku fyrir kynslóðir framtíðar. Að henni standa Sameinuðu þjóðirnar og SE4ALL-vettvangurinn, (sjálfbær orka fyrir alla) en Ísland er í hópi sjö ríkja sem hafa stutt við rekstur hans, auk alþjóðastofnana á borð við SÞ. Þá á forseti Íslands sæti í ráðgefandi stjórn SE4ALL- vettvangsins.  Sjónum ráðstefnunnar er beint að fjármögnun og þróun sjálfbærra orkugjafa. 

Gunnar Bragi tók þátt í pallborðsumræðum þar sem sérstaklega var fjallað um leiðir til að mæta kröfunni um að allir jarðarbúar hefðu aðgang að endurnýjanlegri orku árið 2030. Í framsögu sinni lagði hann áherslu á stefnu Íslands á alþjóðavettvangi um nýtingu jarðhita á heimsvísu. Ísland er í dag aðalsamstarfsaðili Alþjóðabankans í jarðhita og í sameiningu er nú unnið að framkvæmd nokkurra jarðhitaverkefna í Austur Afríku eins og í Eþíópíu og Tansaníu.

Utanríkisráðherra skýrði frá frumkvæði Íslands og IRENA samatakanna um stofnun samstöðuhóps um nýtingu jarðhita á heimsvísu sem fyrirhugað er að ýta formlega úr vör í París í desember nk. á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Fram kom í máli Gunnars Braga að Ísland leggur mikla áherslu á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa til lausnar loftslagsvandanum. Með áherslu á samvinnu við helstu stofnanir alþjóðasamfélagsins í orkumálum, Alþjóðabankann og IRENA, hefur tekist að fá stuðning fjölmargra ríkja, svæðabundinna þróunarbanka og loftslagssjóða við jarðhitanýtingu. Þannig hafa náðst fram margfeldisáhrif sem eftir er tekið.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ, setti SE4ALL á fót 2011 til að stuðla að því að allir í heiminum hafi aðgang að hreinni endurnýjanlegri orku. Nánar má lesa um SE4ALL á heimasíðu verkefnisins: www.se4all.org

Síðar í dag á Gunnar Bragi fund með Jan Eliasson, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, en þeir munu m.a. ræða  um vinnu sem stendur  yfir um þessar mundir um ný markmið um sjálfbæra þróun. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum