Hoppa yfir valmynd
5. júní 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Efla þarf eftirlit með bótasvikum og svartri atvinnustarfsemi

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Um 1.500 störf hafa orðið til með átaksverkefninu Vinnandi vegur sem stjórnvöld og atvinnurekendur standa að og um 1.000 langtímaatvinnulausir hafa þegar fengið starf í tengslum við átakið. Stjórn Vinnumálastofnunar bendir á þetta í ályktun frá fundi sínum í morgun en segir jafnframt vísbendingar um að efla þurfi eftirlit með bótasvikum og svartri atvinnustarfsemi og endurskoða löggjöf sem þessu tengist.

Í ályktuninni lýsir stjórn Vinnumálastofnunar áhyggjum af því að of margir atvinnuleitendur hafi látið hjá líða að skrá sig í vinnumiðlun í tengslum við átaksverkefnið eða hafnað störfum sem í boði eru. Slíkt sé í einhverjum tilfellum merki um svarta atvinnustarfsemi en svört atvinnustarfsemi og bótasvik grafi undan grunni velferðarkerfisins og samfélagsins í heild.

Ályktun stjórnar Vinnumálastofnunar er svohljóðandi:

„Með átaksverkefninu Vinnandi vegur hafa stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðsins skapað um 1.500 ný störf fyrir atvinnuleitendur. Um þúsund langtímaatvinnuleitendur hafa þegar fengið ráðningu innan átaksins.

Stjórn Vinnumálastofnunar lýsir hins vegar áhyggjum sínum af því að of margir atvinnuleitendur hafa látið hjá líða að skrá sig í vinnumiðlun í tengslum við átaksverkefnið eða hafnað störfum sem í boði eru. Í einhverjum tilfellum er slíkt merki um svarta atvinnustarfsemi.

Stjórnin hvetur til þess að löggjöf varðandi viðurlög við bótasvikum og höfnun vinnu verði endurskoðuð af þessu tilefni. Jafnframt verði eftirlit með svartri atvinnustarfsemi eflt, bæði innan eftirlitsdeildar VMST og á vegum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Svört atvinnustarfsemi og bótasvik grafa undan grunni velferðarkerfisins og samfélaginu í heild.“

Stjórn Vinnumálastofnunar
5. júní 2012

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum