Hoppa yfir valmynd
2. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Ofsaveður sífelld algengari en mannskaði minnkar

Ljósmynd: © Boris Jordan. - mynd

Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að skráðum tilvikum veðurofsa hafi fjölgað fimmfalt á síðustu fimmtíu árum en mannskaði í þeim náttúruhamförum hafi dregist saman. Skýrslan er gefin út af Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (World Meteorological Organization).

Í skýrslunni er staðhæft að veðurfarslegar hörmungar hafi orðið að jafnaði hvern einasta dag á síðustu hálfri öld, orðið 115 manns að fjörtjóni dag hvern og valdið fjárhagslegu tjóni sem nemur 202 milljónum bandarískra dala.

Dregið hefur verulega úr mannfalli af völdum slíkra hamfara, einkum vegna betri viðvörunarkerfa og bættrar hamfarastjórnunar. Það á reyndar einkum við efnameiri þjóðir því 91% allra veðurfarstengdra dauðsfalla verða í lágtekju- og millitekjuríkjum.

Mami Mizutori, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna um að viðbúnað við hamfaraáhættu, sagði þegar skýrslan var kynnt að upplýsingar í henni væru „ógnvekjandi“. Hún benti á að síðastliðinn júlímánuður væri heitasti mánuðurinn í sögunni með tilheyrandi hitabylgjum og flóðum um heim allan. Hún sagði rannsóknir sýna að sífellt fleiri þjáist af völdum þessarar þróunar.

Á síðasta ári leiddu ofsaveður til dauðsfalla 31 milljónar manna eða því sem næst jafn margra og féllu í stríðsátökum. Fram kemur í skýrslunni að árlega sé að jafnaði 26 milljónum manna ýtt út í fátækt. Heimsfaraldur kórónuveiru yki á vandann.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum