Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2016 Utanríkisráðuneytið

Fundað um samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála

Benjamin Ziff,  Jim Townsend, Robert Barber og utanríkisráðherra.
Benjamin Ziff, Jim Townsend, Robert Barber og utanríkisráðherra.

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Jim Townsend, aðstoðarvarnamálaráðherra Bandaríkjanna, og Benjamin Ziff, aðstoðarutanríkisráðherra, um samstarf þjóðanna á sviði öryggis- og varnarmála. Fundurinn er hluti af reglubundnu samráði landanna um öryggis- og varnarmál með þátttöku fulltrúa úr forsætisráðuneyti og innanríkisráðuneyti, auk utanríkisráðuneytis.

Fjallað var um breytt öryggisumhverfi í Evrópu og í Miðausturlöndum og hvaða áhrif það hefur á Evrópu, t.d. með auknum straumi flóttamanna. Aukin hætta á hermdar- og hryðjuverkum var rædd. Þá var fjallað um vaxandi hernaðarumsvif Rússa á Norður-Atlantshafi og viðbrögðum Atlantshafsbandalagsins til að styrkja eigin varnir.

Einnig var rætt um aðkomu bandaríska hersins á Íslandi að loftrýmisgæslu, kafbátaleit og þátttöku í æfingum, sem er hluti af vörnum landsins og sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins, sem byggir á aðild okkar að bandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin frá 1951. Engar viðræður hafa farið fram um fasta viðveru bandaríska hersins á Íslandi og engar óskir lagðar fram þar að lútandi.

Að loknum fundi utanríkisráðherra áttu embættismenn beggja landa ítarlegan samráðsfund um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála og voru, auk ofangreindra mála, einnig til umræðu löggæslumál og netvarnir, og gerð var grein fyrir tillögu til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum