Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2024 Matvælaráðuneytið

Ráðist í kynbætur á byggi, hveiti og höfrum

Matvælaráðuneytið hefur undirritað samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands (Lbhí) um framkvæmd verkefnis vegna kynbóta á byggi, hveiti og höfrum til ræktunar á Íslandi.

Verkefnið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en ekki hefur verið unnið að kynbótum áður á hveiti og höfrum hérlendis. Nýjustu aðferðum við kynbætur í nytjaplöntum, sem ekki hefur verið nýtt hérlendis áður, er beitt í verkefninu. Þær aðferðir hraða mjög kynbótum og skila fyrr árangri.

Verkefni um kynbætur á byggi hófst í apríl 2023 sem byggir á tillögu úr skýrslunni Bleikum ökrum sem Lbhí vann um um eflingu kornræktar og kom út í mars sama ár. Hlé hefur verið á kynbótastarfi á byggi um nokkurt skeið en verulegt starf var unnið á árum áður undir forystu Þorsteins Tómassonar og Jónatans Hermannssonar. Verkefnið markar nýtt upphaf kornkynbóta á Íslandi.

Helsta markmið verkefnisins er að þróa og kynbæta yrki byggs, , hafra og hveitis löguð að íslenskum aðstæðum. Annað markmið er að byggja upp hæfni og getu í plöntukynbótum og plöntuerfðafræði á Íslandi.

Gert er ráð fyrir að framlengja samkomulagið árlega til eins árs í senn fram til ársloka 2028. Niðurstöður tilrauna verða gefnar út fyrir bændur, ráðgjafa og sáðvöruinnflytjendur.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum