Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 525/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 525/2019

Miðvikudaginn 12. febrúar 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 9. desember 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 10. september 2019 um greiðslu barnalífeyris vegna náms.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn 19. ágúst 2019 sótti kærandi um greiðslu barnalífeyris vegna náms hjá Tryggingastofnun ríkisins. Með bréfi, dags. 10. september 2019, synjaði stofnunin kæranda um barnalífeyri vegna náms á þeim grundvelli að eignir hennar væru yfir viðmiðunarmörkum 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar á aldrinum 18-20 ára.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. desember 2019. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 17. desember 2019, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. desember 2019. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að fallist verði á greiðslu barnalífeyris vegna náms.

Í kæru segir að Tryggingastofnun hafi neitað umsókn kæranda um barnalífeyri vegna náms á þeim grundvelli að hún eigi of mikla peningaeign í banka. Um sé að ræða líftryggingarfjárhæð sem hún hafi fengið eftir að […] lést í X 2018. Peningurinn sé ekki ætlaður til framfærslu heldur sé hann til að hjálpa henni að koma undir sig fótunum í framtíðinni. Kærandi sé á x og stefni á frekara nám í X eftir X. Allar líkur séu á að það verði erlendis en þar séu skólagjöld há og þá sé gott að eiga peninga í banka svo hún þurfi ekki að stofna sér í meiri skuldir en nauðsynlegt sé.

Móðir hennar sé á örorku og geti hún því ekki treyst mikið á hennar aðstoð við framfærslu annað en að hún fái að búa hjá henni án þess að borga leigu.

Kærandi stefni að því að klára stúdentsprófið í maí 2020 og auk þess stundi hún nám við söngskóla þar sem skólagjöld séu há en hún stefni á að klára […] 2021 eða þar til hún fari utan í nám.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærð sé synjun barnalífeyris vegna náms.

Málavextir séu þeir að með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 10. september 2019, hafi kæranda verið synjað um greiðslu barnalífeyris vegna náms þar sem eignir hennar í peningum eða verðbréfum væru hærri en 4 milljónir króna.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð er Tryggingastofnun heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18-20 ára ef annað foreldri eða báðir foreldrar séu látnir, enn fremur ef foreldrar séu ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Tryggingastofnun meti sönnun um skólavist og starfsþjálfun. Skilyrði sé að námið og þjálfunin taki að minnsta kost sex mánuði hvert ár.

Í 2. gr. reglugerðar nr. 140/2006 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna á aldrinum 18-20 ára segi að Tryggingastofnun meti sönnun um skólavist og starfsþjálfun og skuli ungmenni framvísa staðfestum gögnum frá skóla ásamt yfirliti yfir fyrri námsárangur í upphafi hverrar annar. Skilyrði sé að ungmenni stundi sannanlega nám og að námið eða þjálfunin taki að minnsta kosti sex mánuði hvert ár.

Í 6. gr. reglugerðarinnar segi að við mat á umsókn skuli Tryggingastofnun taka tillit til allra aðstæðna umsækjanda, félagslegra sem efnahagslegra, sem áhrif geti haft á það hvort samþykkja skuli umsókn eða hafna henni. Að jafnaði skuli miðað við að umsækjandi eigi ekki eignir í peningum eða verðbréfum yfir þeim viðmiðunarmörkum sem notuð séu hverju sinni varðandi heimild til greiðslu frekari uppbótar á lífeyri.

Reglugerð nr. [1200/2018] fjalli um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Í [11]. gr. reglugerðarinnar segi að uppbætur á lífeyri skuli aldrei greiddar til lífeyrisþega sem eigi eignir í peningum eða verðbréfum yfir 4.000.000 kr.

Kærandi hafi sótt um greiðslu barnalífeyris 19. ágúst 2019. Samkvæmt skattframtali kæranda fyrir tekjuárið 2018 sé bankaeign kæranda í árslok 2018 að fjárhæð 4.581.224 kr. Með vísan til framangreindra reglugerða hafi kæranda verið synjað um barnalífeyri vegna náms fyrir haustönnina 2019.

Samkvæmt upplýsingum í kæru sé umrædd inneign tilkomin vegna greiddrar líftryggingar eftir X kæranda. Ekki hafi borist upplýsingar um að kærandi ætti þessa inneign ekki lengur í banka. Þar sem engin heimild sé í lögum eða reglugerð til að gera greinarmun á því hvernig inneign sé tilkomin þá hafi Tryggingastofnun enga heimild til að breyta ákvörðun um synjun barnalífeyris vegna náms til kæranda vegna eigna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 10. september 2019, þar sem umsókn kæranda um barnalífeyri vegna náms var synjað.

Um barnalífeyri vegna náms er fjallað í 3. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í 1. málsl. 3. gr. laga um félagslega aðstoð er kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18-20 ára ef annað foreldri eða báðir séu látnir, enn fremur ef foreldrar séu ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Þá segir í 10. málsl. 3. gr. laganna að við ákvörðun á rétti til barnalífeyris sé heimilt að líta til efnahags barns og annarra tekna sem það hafi. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd þess.

Reglugerð nr. 140/2006 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna á aldrinum 18-20 ára hefur verið sett með framangreindri lagaheimild. Í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar segir að við mat á umsókn skuli Tryggingastofnun taka tillit til allra aðstæðna umsækjanda, félagslegra sem efnahagslegra, sem áhrif geti haft á það hvort samþykkja skuli umsókn eða hafna henni. Samkvæmt 4. tölul. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar skal að jafnaði miðað við að umsækjandi eigi ekki eignir í peningum eða verðbréfum yfir þeim viðmiðunarmörkum sem notuð séu hverju sinni varðandi heimild til greiðslu frekari uppbótar á lífeyri. Reglugerð nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri fjallar meðal annars um hámark uppbóta og tekju- og eignamörk. Í 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 segir:

„Uppbætur á lífeyri skulu aldrei greiddar til lífeyrisþega sem á eignir í peningum eða verðbréfum yfir 4.000.000 kr. eða hefur heildartekjur yfir 2.929.579 kr. á ári.“

Samkvæmt framangreindu skal að jafnaði ekki greiða barnalífeyri vegna náms ef eignir umsækjanda eru yfir 4.000.000 kr. Við árslok 2018 voru eignir kæranda samkvæmt skattframtali að fjárhæð 4.582.176 kr. Af málatilbúnaði kæranda má ráða að þessi inneign sé enn til staðar. Eignir kæranda eru því yfir viðmiðunarmörkum samkvæmt framangreindum reglugerðarákvæðum.

Kærandi byggir á því að umrædd peningaeign, sem sé líftrygging eftir X hennar, sé ekki ætluð til framfærslu heldur til að koma undir kæranda fótunum í framtíðinni. Móðir hennar sé öryrki, hún fái að búa hjá henni en hún geti ekki treyst á framfærslu frá henni. Bendir kærandi á að hún hafi í hyggju að nota umrædd fjárhæð vegna kostnaðar við framhaldsnám erlendis. Í 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006 er ekki tekið fram hvernig eignir í peningum eru tilkomnar. Samkvæmt ákvæðinu er því ekki gerður greinarmunur á því hver ástæðan sé fyrir peningaeigninni. Samkvæmt ákvæðinu skal jafnan miða við að eignir umsækjanda séu ekki meiri en þar segir. Mörkin eru því ekki afdráttarlaus. Peningaeign kæranda umfram tilgreind mörk nema greiðslu einfalds barnalífeyris í meira en 16 mánuði. Í því ljósi telur kærunefnd velferðarmála ekki efni til þess að víkja frá umræddu skilyrði 6. gr. reglugerðarinnar. Tryggingastofnun ríkisins var því að mati úrskurðarnefndar velferðarmála heimilt að synja kæranda um greiðslu barnalífeyris vegna náms.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 10. september 2019, um synjun á umsókn kæranda um barnalífeyri vegna náms, staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um barnalífeyri vegna náms er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum