Hoppa yfir valmynd
25. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 25/2019 Úrskurður 25. mars 2019

Mál nr. 25/2019                    Eiginnafn:     Lynd (kvk.)

 

 

Hinn 25. mars 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2019 en erindið barst nefndinni 13. mars 2019.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Umsækjandi í þessu máli vill breyta rithætti nafns síns, Lind, svo það verði ritað Lynd. Nafnið Lind telst dregið af nafnorðinu lind sem merkir ýmist ‘uppspretta, vatnsrás’ eða ‘linditré’ og það samræmist ekki ritreglum íslensks máls að rita þetta nafn Lynd. Þannig getur nafnið Lynd ekki talist ritháttarafbrigði af nafninu Lind. Hins vegar má líta svo á að nafnið Lynd sé dregið af sagnorðinu lynda og þá er um annað nafn að ræða.

Eiginnafnið Lynd (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lyndar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lynd (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum