Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 413/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 3. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 413/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16090010

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 9. september 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. ágúst 2016 um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara gerir kærandi þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands 13. mars 2016 og sótti um hæli þremur dögum síðar hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 15. júlí 2016 ásamt talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. ágúst 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið var birt honum þann 6. september 2016. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 9. september sl. Kærunefnd hefur borist greinargerð kæranda, dags. 12. október 2016.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að hann óttist öryggi sitt og telji sig algjörlega réttindalausan í [...] af ástæðum sem tengist stjórnmálum. Kærandi kvaðst hafa verið virkur félagi í [...] í [...] sem hafi verið við völd í landinu [...]. Kærandi sagði föður sinn og afa jafnframt hafa verið háttsetta í flokknum. [...] kærandi misst vinnuna vegna tengsla sinna við [...]. Hann hafi ekki getað sótt um vinnu síðan af sömu ástæðu. Þá nyti kærandi ekki málfrelsis vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærandi kvaðst ekki hafa orðið fyrir ofsóknum þar sem hann hafi flúið til norðanverðar [...]. Hins vegar hafi lögreglan handtekið fólk sem hafi tekið þátt í mótmælum. Kærandi sagði að í [...] færu menn ekki eftir lögum heldur væri spilling ríkjandi. Kærandi kvaðst enn fremur óttast [...].

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er rakið að mismunun á grundvelli stjórnmálaskoðana sé óheimil samkvæmt stjórnarskrá [...]. Upplýsingar um aðstæður í [...] bendi ekki til þess að andstæðingar ríkjandi stjórnar sæti mismunun eða ofsóknum. Þá segir að heimildir um [...] beri með sér að eftirfylgni við afbrotum sé góð, að íbúar landsins njóti almennra mannréttinda og að þeir geti leitað til yfirvalda telji þeir á sér brotið. Vísar Útlendingastofnun til þess að miklar framfarir hafi orðið í [...] við að uppræta spillingu hjá lögreglu og dómstólum. Kærandi geti því leitað verndar yfirvalda telji hann sig í hættu.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar var ekki fallist á framburð kæranda þess efnis að honum hafi verið sagt upp starfi vegna stjórnmálaskoðana. Að mati Útlendingastofnunar sé jafnframt ekkert sem bendi til þess að [...] stjórnvöld séu óviljug eða ófær um að rannsaka afbrot, sækja glæpamenn til saka og veita borgurum landsins viðeigandi aðstoð þegar lög séu brotin. Útlendingastofnun taldi að í ljósi atvika málsins yrði einnig litið svo á að umsókn kæranda byggði á efnahagslegum ástæðum. Í því sambandi er vísað til þess að af flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga megi ráða að efnahagslegar aðstæður skapi ekki grundvöll fyrir alþjóðlegri vernd. Að framangreindu virtu var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi ætti ekki á hættu ofsóknir eða meðferð sem verði jafnað til ofsókna í [...] og var honum því synjað um hæli samkvæmt 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi ætti ekki á hættu illa meðferð samkvæmt 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga í [...] og var honum synjað um hæli á þeim grundvelli.

Útlendingastofnun skoðaði þessu næst hvort grundvöllur væri fyrir því að veita kæranda dvalarleyfi samkvæmt 12. gr. f laga um útlendinga. Með vísan til fyrirliggjandi upplýsinga um aðstæður í [...] taldi Útlendingastofnun að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f vegna erfiðra almennra aðstæðna í landinu. Þá tæki ákvæðið ekki til neyðar af efnahagslegum rótum. Var kæranda því synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 12. gr. f útlendingalaga. Þá var kæranda synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið samkvæmt 1. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun tilkynnti jafnframt kæranda að kæra frestaði ekki framkvæmd ákvörðun hennar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er framburður hans í viðtali hjá Útlendingastofnun rakinn, m.a. um að ríkjandi stjórnvöld beiti flokksmenn [...] ofsóknum sem feli í sér brot gegn grundvallarmannréttindum, t.d. tjáningarfrelsi. Ráðandi öfl hafi komið í veg fyrir að kærandi fengi atvinnu í [...]. Fjölmargir fjölskyldumeðlima kæranda hafi flúið frá [...] vegna aðstæðna þar í landi. Þá kemur fram að kærandi óttist [...], sem hafi hótað kæranda líkamsmeiðingum og lífláti.

Í umfjöllun um aðalkröfu er í greinargerð kæranda fjallað almennt um aðstæður í [...]. Þar segir að staða efnahagsmála sé afar erfið og að fátækt og atvinnuleysi hafi aukist á undanförnum árum. Þá eigi einungis lítið brot þeirra sem séu atvinnulausir rétt á atvinnuleysisbótum, auk þess sem fjárhæð bótanna sé lág. Spilling sé viðvarandi í landinu og fyrirfinnist í öllum þáttum hins opinbera geira, ekki hvað síst í dómskerfinu. Refsileysi sé jafnframt alvarlegt vandamál í [...] þrátt fyrir að stjórnvöld taki fastari tökum á því en áður. Spilling í réttarkerfinu sé útbreidd og pólitískur þrýstingur og afskipti komi illa niður á dómskerfinu. Þá sé spilling innan lögreglunnar viðvarandi vandamál og mörg dæmi þess að réttindi borgaranna séu brotin í samskiptum við lögregluna. Að því er varðar [...] byggir kærandi á því að viðleitni [...] stjórnvalda til að vernda fjölskyldur sem standa í slíkum deilum sé ófullnægjandi. Alvarlegir annmarkar séu á meðhöndlum lögreglu á slíkum málum í ljósi vangetu lögreglunnar og spillingu innan hennar. Vísar kærandi til alþjóðlegra skýrslna framangreindu til stuðnings.

Af hálfu kæranda er byggt á því að hann, sem aðili að [...], falli undir skilgreiningu 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga um aðild að „tilteknum þjóðfélagshópi“. Vísar kærandi í þessu sambandi til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um [...]. Þar komi fram að fjölskylda geti talist falla undir skilgreininguna þegar líkur séu á því að meðlimir ákveðinnar fjölskyldu séu í hættu á að verða fyrir pyndingum eða vanvirðandi meðferð við endursendingu.

Í greinargerð kæranda er fjallað um hugtakið ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna megi draga þá ályktun af 33. gr. flóttamannasamningsins að það séu ávallt ofsóknir þegar lífi eða frelsi sé ógnað m.a. á grundvelli stjórnmálaskoðana eða fyrir að tilheyra ákveðnum félagsmálaflokkum. Í handbókinni segi jafnframt að við ákvörðun um stöðu flóttamanns beri fyrst og fremst að leggja mat á framburð umsækjanda fremur en aðstæður í ættlandi hans. Með vísan til frásagnar kæranda og þeirra heimilda sem vísað sé til í greinargerðinni telur kærandi sig hafa sýnt fram á að ótti hans við ofsóknir yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana og vegna hótana um líflát og ofbeldi á grundvelli [...] sé ástæðuríkur. Kærandi mótmælir því að lagt sé til grundvallar að hann geti leitað ásjár yfirvalda vegna vandamála sinna. Heimildir beri vott um skort á getu og vilja lögreglunnar í [...] til að veita borgurum landsins vernd. Þá byggir kærandi á því að fórnarlömb ofsókna eigi takmarkaða möguleika á því að flytja innanlands í því skyni að leita verndar. Með hliðsjón af framangreindu beri að veita kæranda hæli á grundvelli 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Þegar horft sé til ástæðuríks ótta kæranda við ofsóknir brjóti ákvörðun um frávísun hans til [...] í bága við „non-refoulement“ ákvæði 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Varakrafa kæranda er byggð á sömu sjónarmiðum og að framan greinir. Í ljósi fyrri umfjöllunar verði að telja að kærandi eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til [...]. Þá verði lífi hans jafnframt stofnað í hættu. Vegna þrautavarakröfu kæranda er m.a. vísað til greinargerðar með ákvæði 12. gr. f laga um útlendinga. Þar segi m.a. að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé í málum samkvæmt VII. kafla laganna, svo sem almennra aðstæðna í heimalandi hælisleitanda, þar á meðal hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Miðað sé við að heildarmat fari fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í [...] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[...] [...] Í framangreindum skýrslum og gögnum sem kærunefndin hafði til skoðunar bendir ekkert til þess að ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana tíðkist í [...]. Af gögnunum má ráða að spilling sé enn til staðar í [...] að einhverju leyti og að spilling tengist stjórnmálum og stjórnmálamönnum. [...] stjórnvöld hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að landinu hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu, bæði hjá lögreglu og dómstólum. Þá kemur fram að fram að atvinnuleysi sé mikið í [...] en að landið hafi almennt náð að viðhalda jákvæðum hagvexti og fjárhagslegum stöðugleika þrátt fyrir viðvarandi efnahagskreppu. [...] stjórnvöld hafi, m.a. í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar, unnið að úrbótum í atvinnumálum. Einnig hafi verið unnið að því að bæta félagslega aðstoð fyrir þá sem þarfnist slíkrar aðstoðar. Þeir sem eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum geti því leitað eftir aðstoð frá því sveitarfélagi þar sem þeir séu búsettir.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína annars vegar á því að hann verði fyrir ofsóknum vegna stjórnmálaskoðana og hins vegar að öryggi hans sé í hættu vegna [...] hans.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Eins og fram hefur komið er aðalkrafa kæranda annars vegar reist á því að hann verði fyrir pólitískum ofsóknum í [...] sem feli í sér mismunun og brotum á grundvallarmannréttindum, svo sem tjáningarfrelsi. Kærandi og fjölskyldumeðlimir hans hafi verið virkir í [...]. Eftir það hafi pólitískir andstæðingar flokksins beitt flokksmenn hans ofsóknum. Kærandi hafi tekið þátt í starfi flokksins, m.a. fjöldafundum, og hafi í kjölfar eins slíks fundar flúið sveitir lögreglumanna og hers, en þeir sem voru handsamaðir hefðu verið í varðhaldi í 6-7 klukkustundir á lögreglustöð. Þá kveðst kærandi hafa misst vinnuna [...] vegna stjórnmálaskoðana og ekki fengið vinnu síðan. Þrátt fyrir að kærunefnd útlendingamála dragi ekki í efa fullyrðingar kæranda um þátttöku í stjórnmálastarfi og fjöldafundum og að hann hafi misst atvinnu sína styðja gögn og skýrslur sem kærunefnd hefur skoðað ekki þá fullyrðingu kæranda að hann hafi „ástæðuríkan ótta við ofsóknir“ í skilningi 44. gr. útlendingalaga, sbr. 1. mgr. 44. gr. a s.l. Í því sambandi hefur kærunefnd litið til þess að í framangreindum skýrslum og gögnum sem kærunefndin hafði til skoðunar bendi ekkert til þess að ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 44. gr. útlendingalaga tíðkist í [...].

Aðalkrafa kæranda er hins vegar einnig reist á því að líf hans sé í hættu þar sem hann standi frammi fyrir [...]. Maðurinn hafi hótað kæranda líkamsmeiðingum og lífláti.

Kærunefnd fellst á það sjónarmið kæranda að meðlimir fjölskyldu sem blóðhefnd beinist að geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga. Kærunefnd telur hins vegar ekkert í máli kæranda benda til þess að hann eigi [...] og sé í hættu af þeirri ástæðu.

Af hálfu kæranda er staðhæft að [...] stjórnvöld hafi ekki vilja til þess að veita honum nauðsynlega vernd gagnvart þeirri hættu sem hann telur sig vera í. Kærandi hefur ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hans af þeirri atburðarás sem hann hefur lýst. Þá hefur kærandi ekki leitað aðstoðar yfirvalda í [...]. Sú staðhæfing kæranda að enga aðstoð sé að fá frá lögreglu og yfirvöldum í [...] fær lítinn sem engan stuðning í þeim gögnum sem kærunefndin hefur skoðað við meðferð málsins. Er það mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að yfirvöld geti eða vilji ekki veita kæranda viðeigandi vernd, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem fela í sér ofsóknir. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Við mat á hvort aðstæður séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmálans, sem bannar pyndingar og ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki eru fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum, sbr. t.d. úrlausn Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi (mál nr. 38851/09 og 39128/09) frá 25. janúar 2011.

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur m.a. fram að stjórnvöld í [...] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þó nokkur árangur náðst síðustu ár þó að enn sé þörf á frekari umbótum. Kærandi hefur ekki leitað aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í heimalandi sínu vegna þeirra hótana sem hann kveðst hafa orðið fyrir. Þó að rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í [...] þá hafa átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofbeldi í heimalandi sínu, af hálfu þess aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda. Heimildir styðja því ekki þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda viðeigandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Kærunefnd telur með vísan til orðalags ákvæðisins um „rík mannúðarsjónarmið“ og „ríka þörf á vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í greinargerð kæranda er vísað til bágra efnahagslegra aðstæðna hans þar sem hann hefur verið atvinnulaus. Í greinargerð með frumvarpi því sem færði 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga í núverandi horf kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þeirri greinargerð.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar upplýsingar um heimaland kæranda og gögn málsins eru virt í heild sinni er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga.Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Þá tekur kærunefndin jafnframt undir niðurstöðu Útlendingastofnunar um að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á landinu í tengslum við umsókn sína um hæli og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum