Hoppa yfir valmynd
25. júlí 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 363/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. júlí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 363/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040084

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. mars 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. október 2018. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun hjá pólskum stjórnvöldum var þann 17. október 2018 beiðni um viðtöku kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Póllandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá pólskum yfirvöldum, dags. 19. október 2018, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 25. mars 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 26. mars 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 9. apríl 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 17. apríl 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að pólsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Póllands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Póllands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til viðtala sinna hjá Útlendingastofnun, en þar hafi hann m.a. lýst ástæðum flótta hans frá heimaríki. Þá hafi kærandi mótmælt því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera sendur til Póllands þar sem mikil andstaða væri við [...] þar í landi en hann hafi m.a. orðið fyrir áreiti og svívirðingum á flugvellinum í Gdansk. Kærandi telji ólíklegt að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar þar í landi og að honum verði brottvísað þaðan til [...]. Kveði kærandi að í [...] eigi hann engan öruggan stað til að vera á. Þá kveði kærandi sig eiga við [...] að stríða, hann verði fljótt þreyttur, fái svima og verði flökurt auk þess sem hann ætti á hættu að fá of háan blóðþrýsting. Kærandi kveði sig jafnframt glíma við andlega kvilla sem tengja mætti m.a. við föðurmissi og einelti sem hann hafi orðið fyrir á skólagöngu sinni í heimaríki.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun í greinargerð sinni, m.a. við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum í Póllandi. Kærandi vísar m.a. til þess að Pólland sé meðal þeirra landa sem hafi einna hæsta synjunarhlutfall af umsóknum um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi, en auk þess sé nánast öllum umsóknum umsækjenda frá [...] synjað. Þá bendi alþjóðlegar heimildir til þess að aðgangur að hæliskerfinu í Póllandi sé erfiðleikum bundinn og að einstaklingum sé ítrekað meinað um að sækja um alþjóðlega vernd þar, m.a. með því að snúa umsækjendum við á landamærum landsins. Kærandi vísi einnig til alþjóðlegra skýrslna þar sem m.a. komi fram að varðhaldi sé beitt í óhóflegum mæli á innflytjendur og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Póllandi. Þá komi fram í sömu heimildum að einstaklingar sem endursendir séu til Póllands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar séu að öllum líkindum hnepptir í varðhald við komu til landsins, þeir séu venjulega álitnir efnahagsflóttamenn.

Þá gerir kærandi athugasemd við að ekki skuli vera tekin afstaða til þess í hinni kærðu ákvörðun hvort kærandi muni mæta fordómum eða mismunun í Póllandi. Vísar kærandi til þess að heimildir bendi til þess að andúð í garð innflytjenda hafi aukist verulega í Póllandi síðustu ár með auknum straumi flóttafólks til Evrópu og hafi stjórnmálamenn m.a. haldið á lofti kenningum um að flóttamenn ógni þjóðaröryggi landsins. Þá vísi kærandi til þess að tiltekinn stjórnmálamaður hafi látið hafa eftir sér að innflytjendur beri með sér alls konar sníkjudýr sem geti verið landsmönnum hættuleg og öryggi þjóðarinnar vera ógnað. Þá hafi Pólland ekki uppfyllt kröfur Evrópusambandsins um viðtöku flóttafólks og hafi Evrópuráðið vísað máli til Evrópudómstólsins vegna þessa. Telji kærandi ljóst að réttarkerfið í Póllandi standi óstyrkum fótum og hæliskerfið þar í landi sé ekki í stakk búið að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd þá vernd sem þeir eigi tilkall til.

Kærandi telur að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og viðkvæmur einstaklingur í skilningi 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til stuðnings kröfu sinni vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sem og til 32. gr. reglugerðar nr. 540/2017, með síðari breytingum, og telur að þar sem hann sé viðkvæmur einstaklingur þá séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi umrædds lagaákvæðis og því beri að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Þá vísi kærandi einnig til fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála um túlkun á framangreindu ákvæði, m.a. til úrskurðar nr. 550/2017 frá 10. október 2017, en af honum megi ráða að rannsaka þurfi ítarlega aðstæður í viðtökuríki sem og aðstæður og upplifun umsækjanda í viðtökuríki við mat á sérstökum ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá sé ekki gert að skilyrði að einstaklingur teljist sérstaklega viðkvæmur í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga til þess að sérstakar ástæður teljist vera fyrir hendi í málum. Vísi kærandi þá til þeirra fordóma sem hann hafi upplifað í Póllandi og að þær beri saman við heimildir um ástandið þar í landi. Árlegar skýrslur óháðra félagasamtaka bendi til þess að réttarríki og lýðræðið í Póllandi eigi undir högg að sækja. Telji kærandi því að aðstæður hans í Póllandi myndu verða verulega síðri en staða almennings í Póllandi og því beri að taka mál hans til efnismeðferðar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Póllands á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun til Póllands. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja pólsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einhleypur karlmaður á fertugsaldri. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi glíma við [...] og stoðkerfisvandamál. Þá greinir kærandi frá því í greinargerð sinni að hann glími við andlega kvilla sem tengja megi m.a. við að hafa misst föður sinn þegar hann var barn. Engum heilsufarsgögnum er þó til að dreifa í máli kæranda nema vottorði um að hann hafi undirgengist heilsufarsskoðun á Göngudeild sóttvarna.

Það er mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Póllandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Póllandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:• 2018 Country Reports on Human Rights Practices – Poland (United States Department of State, 13. mars 2019);

• 2018 Report on International Religious Freedom: Poland (United States Department of State, 21. júní 2019);

• Amnesty International Report 2017/18 – Poland (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• Asylum Information Database, Country Report: Poland (European Council on Refugees and Exiles, 11. mars 2019);

• Current migrant situation in the EU: Oversight of reception facilities (European Union: European Agency for Fundamental Rights, 22. september 2017);

• The Detention of asylum seekers in Europe. Constructed on shaky ground? (European Council on Refugees and Exiles, júní 2017);

• ECRI Report on Poland (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 9. júní 2015);

• ECRI conclusions on the implementation of the recommendations in respect of Poland. Subject to Interim follow-up (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);

• Freedom in the World 2019 – Poland (Freedom House, 4. febrúar 2019);

• Upplýsingar af vefsíðu Mannréttinda- og lýðræðisstofnunar ÖSE (Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, http://hatecrime.osce.org/poland) og gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og útlaga (http://www.asylumineurope.org/reports/country/poland/statistics);

• Victims, suspects, accused: Rights of foreigners in criminal proceedings – a guide (Helsinki Foundation for Human Rights, 18. apríl 2017) og

• World Report 2019 – European Union (Human Right Watch, 17. janúar 2019).

Í framangreindum skýrslum kemur fram að einstaklingar geti óskað eftir alþjóðlegri vernd í Póllandi hjá pólsku landamæravörslunni (p. Straz Graniczna). Pólska útlendingastofnunin (Szef Urzędu do Spraw Cudzoziemców) tekur ákvarðanir varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd. Samkvæmt pólskum lögum skulu ákvarðanir liggja fyrir innan sex mánaða frá því að umsókn var lögð fram. Í undantekningartilfellum er hægt að framlengja þann frest í 15 mánuði. Umsækjendur eiga rétt á viðtali hjá pólsku útlendingastofnuninni ásamt því að stofnunin skuli tryggja fullnægjandi túlkaþjónustu. Umsækjendur eiga þá rétt á að fá afrit af skýrslu þar sem allar spurningar og svör umsækjanda koma fram, þó ekki sé um beint endurrit að ræða. Þó kemur fram að umsækjendur átta sig oft ekki á mikilvægi viðtalsins, m.a. að þeir skuli gera ítarlega grein fyrir umsókn sinni og hvernig svör þeirra eru rituð í skýrsluna. Ákvarðanir pólsku útlendingastofnunarinnar eru kæranlegar til kærunefndar (p. Rada do Spraw Uchodźców). Úrskurði nefndarinnar er þá hægt að bera undir stjórnsýsludómstól (p. Wojewódzki Sąd Administracyjny w Warszawie), um lagaleg atriði, og dómum hans er hægt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (p. Naczelny Sąd Administracyjny). Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð á fyrsta stjórnsýslustigi umfram leiðbeiningar frá starfsfólki útlendingastofnunar en slík aðstoð á að vera í boði þegar ákvarðanir eru kærðar til kærunefndar, lögum samkvæmt. Heimildir bera með sér að erfitt geti verið að nálgast slíka þjónustu. Af framangreindum gögnum verður ráðið að einstaklingar sem eru endursendir til Póllands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi aðgang að viðhlítandi málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd þar í landi.

Þá verður ekki annað ráðið af framangreindum skýrslum en að fáar hindranir séu í reynd á aðgengi að hæliskerfinu í Póllandi og útlendingum sé almennt ekki meinað um að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi. Þó séu dæmi um að á landamærum Póllands og [...] hafi einstaklingum verið meinað um að sækja um alþjóðlega vernd í landinu. Umsóknir einstaklinga, sem yfirgefa landið áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og eru fjarverandi í meira en níu mánuði, sæta í kjölfarið ekki hefðbundinni málsmeðferð við endurkomu til Póllands heldur er litið á þær sem viðbótarumsóknir. Þá tekur pólska útlendingastofnunin ákvörðun um hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar eða ekki, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, m.a. hvort nýjar málsástæður liggi fyrir.

Af framangreindum gögnum má ráða að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Póllandi eiga rétt á húsnæði og annarri þjónustu þegar þeir hafa lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi og skráð sig í eina af móttökumiðstöðvum landsins, þ. á m. félagslegri þjónustu sem einkum felst í fjárhagslegri aðstoð. Lögum samkvæmt eiga umsækjendur rétt til heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, til jafns við sjúkratryggða pólska ríkisborgara. Heilbrigðisþjónusta er veitt að nokkru leyti í móttökumiðstöðvum en einnig geta umsækjendur leitað til sjúkrastofnana. Tungumálaerfiðleikar geri þó bæði umsækjendum og heilbrigðisstarfsfólki erfitt fyrir, en engin gjaldfrjáls túlkaþjónusta er í boði nema þá einkum í gegnum frjáls félagasamtök. Þá séu dæmi um að fjarlægð frá móttökumiðstöðvum að sjúkrastofnunum sé mikil, sem geri umsækjendum erfitt fyrir að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Þeir umsækjendur sem endursendir eru til Póllands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eiga sama rétt á þjónustu og aðstoð og aðrir umsækjendur þar í landi, en árið 2015 tóku í gildi lög í Póllandi sem innleiddu tilskipanir Evrópusambandsins nr. 2013/32/ESB og 2013/33/ESB um málsmeðferð og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd.Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki aðgang að vinnumarkaðnum í Póllandi fyrr en sex mánuðum eftir að þeir lögðu fram umsókn sína þar í landi en umsækjendur fá þá útgefin tímabundin skilríki sem veitir þeim heimild til að vinna í landinu. Fullorðnir umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga almennt ekki rétt til menntunar innan pólska menntakerfisins en í móttökumiðstöðvunum eru þó í boði tungumálakennsla í pólsku. Þá bjóða frjáls félagasamtök upp á ýmis konar námskeið og starfsþjálfun en sökum skorts á fjármögnun eru slík námsskeið oft af skornum skammti.Samkvæmt nýjustu ársskýrslu Asylum Information Database sætti hluti umsækjenda um alþjóðlega vernd varðhaldi í Póllandi árið 2018. Samkvæmt pólskum lögum er einungis heimilt að beita varðhaldi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, s.s. þegar auðkenni umsækjenda er ekki staðfest, vegna hættu á flótta, vegna öryggisráðstafana og þegar fara á fram endursending til annars ríkis á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Frjáls félagasamtök hafa gagnrýnt pólsk yfirvöld á undanförnum árum fyrir að meina umsækjendum um alþjóðlega vernd, sem koma landleiðina í gegnum [...], um inngöngu í landið en í tengslum við slíkar aðgerðir hefur varðhaldi stundum verið beitt. Varðhald má samkvæmt úrskurði dómstóla almennt ekki vara lengur en í 60 daga í senn og að hámarki í sex mánuði.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindi í Póllandi fyrir árið 2018 kemur fram að fordómar og útlendingahatur sé vandamál þar í landi. Á vefsíðu Mannréttinda og lýðsræðisstofnunar ÖSE kemur fram að fá mál sem varða hatur sem tilkynnt séu til lögreglu endi með sakfellingu fyrir dómi en meðal skráðra hatursglæpa á árinu 2017 hafi verið líkamsárásir, eignatjón, íkveikjur, röskun á grafhelgi og árásir á tilbeiðslustaði. Þá kemur fram, m.a. í framangreindri skýrslu Helsinki mannréttindastofnunarinnar í Varsjá frá árinu 2017, að útlendingar sem eru þolendur glæpa, þ. á m. glæpa af völdum kynþáttahyggju, geti leitað til löggæsluyfirvalda í Póllandi sem hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd. Þá eigi útlendingar rétt á túlki við meðferð mála fyrir dómstólum, auk þess sem þeir geti átt rétt á endurgjaldslausri réttaraðstoð, t.d. í þeim tilvikum þegar þeir hafa ekki efni á að greiða sjálfir fyrir slíka þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta þá leitað til umboðsmanns (p. Rzecznik Praw Obywatelskich) telji þeir á sér brotið í samskiptum sínum við stjórnvöld.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Póllandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í Póllandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað, m.a. með einstaklingsbundnu mati á umsóknum um alþjóðlega vernd. Af gögnum um aðstæður í Póllandi er ekki að sjá að umsóknir [...] ríkisborgara sæti annarri málsmeðferð en ríkisborgarar annarra ríkja sem sækja þar um vernd. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Póllandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Póllandi eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, í samræmi við pólsk lög.

Kærandi hefur þá borið fyrir sig að hafa orðið fyrir áreiti og svívirðingum á flugvellinum í Gdansk í Póllandi, en þar í landi sé mikil andstaða við [...]. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda þó til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti í Póllandi geti hann leitað ásjár löggæsluyfirvalda eða annarra þar til bærra pólskra stjórnvalda. Gögn málsins benda ekki til þess að [...] sé mismunað umfram aðra í Póllandi.

Þá tekur kærunefnd fram að þau gögn sem nefndin hefur kynnt sér um aðstæður í Póllandi benda ekki til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem endursendir eru til Póllands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, séu almennt hnepptir í varðhald við komuna til landsins. Kærunefnd tekur einnig fram að staðhæfing kæranda þess efnis að einstaklingum sé ítrekað meinað um að sækja um alþjóðlega vernd í Póllandi, svo sem fram kemur í greinargerð kæranda fá ekki stoð í þeim skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér. Í þeim skýrslum sem kærandi vísar til í greinargerð sinni er fjallað um afmörkuð tilvik á landamærastöð í Terespol við landamæri Póllands og [...] og verður að mati kærunefndar ekki jafnað við stöðu almennra umsækjenda um alþjóðlega vernd í Póllandi.

Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda að öðru leyti séu ekki þess eðlis að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 frá 10. október 2017. Kærunefnd telur ekki hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í umræddum úrskurði m.a. vegna þess að ekki er um að ræða sama viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 6. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. október 2018.

Athugasemdir við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun sem áður hafa verið raktar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 11. október 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 12. október 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Póllands innan tilskilins frests, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa pólsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Póllands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Ívar Örn Ívarsson                                                                           Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum