Hoppa yfir valmynd
22. desember 2015 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs á tekjutapi vegna fasteignaskatts, tekjujöfnunar og útgjaldajöfnunar

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlaga vegna tekjutaps vegna fasteignaskatts, vegna tekjujöfnunarframlags og vegna útgjaldajöfnunarframlags.

fasteignaskattsframlog-2015
fasteignaskattsframlog-2015

Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlags til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2015, skv. reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðunin tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlagsins.

Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur 3.730,4 m.kr. Nú þegar hafa 3.459,1 m.kr. komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins að fjárhæð 271,3 m.kr. koma til greiðslu mánudaginn 28. desember nk.

Tekjujöfnunarframlög 2015

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2015, skv. 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2014.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1.250,0 m.kr. Um 3/4 hlutar framlaganna að fjárhæð 935,3 m.kr. komu til greiðslu í október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 314,7 m.kr. koma til greiðslu mánudaginn 28. desember nk.

Útgjaldajöfnunarframlög 2015

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2015, skv.13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Vegna verulegrar hækkunar á tekjum Jöfnunarsjóðs af 2,12% lögbundinni hlutdeild sjóðsins í innheimtum skatttekjum ríkissjóðs hefur heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár verið hækkuð um 1.200,0 m.kr eða um 19,8% frá áætlun ársins og nema framlögin samtals 7.250,0 m.kr. Þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu samtals að fjárhæð 750,0 m.kr. Til greiðslu á árinu hafa komið samtals 4.846,9 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 2.403,1 m.kr. koma til greiðslu á mánudaginn 28. desember nk. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur úr dreifbýli á árinu 2015 umfram tekjur að fjárhæð 175,0 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum