Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2016 Innviðaráðuneytið

Viðbótarframlag vegna þjónustu við fatlað fólk

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarjóðs sveitarfélaga frá 24. júní síðastliðnum um úthlutun sérstaks viðbótarframlags á árinu 2016 vegna þjónustu við fatlað fólk. Nemur upphæðin 300 milljónum króna.

Samkvæmt greiðslu- og rekstraráætlun sjóðsins er gert ráð fyrir að samtals 400 milljónum króna verði ráðstafað vegna viðbótarframlaga á árinu 2016.

Á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 179/2016 um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2016 er heimilt að veita sérstök viðbótarframlög til þeirra þjónustusvæða þar sem kostnaður við reksturinn er verulega íþyngjandi.

Útreikningi viðbótarframlags nú er einkum ætlað að koma til móts við þau þjónustusvæði þar sem rekstrarafkoma síðasta árs var hvað verst hlutfallslega, borið saman við önnur svæði. Útreikningur á skiptingu 300 milljóna króna framlagsins byggir á eftirfarandi forsendum:

  1. Rekstrarniðurstöðu þjónustusvæða á árinu 2015.
  2. Rekstrarniðurstaðan er reiknuð niður á íbúa á hverju þjónustusvæði sem er grunnur að framlagi til svæðanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum