Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 34/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 34/2021

Föstudaginn 30. apríl 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. janúar 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2020, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. nóvember 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 23. nóvember 2020. Sama dag sendi kærandi erindi til Vinnumálastofnunar þar sem kemur fram að hann hafi fyrir mistök sótt um greiðslur frá 23. nóvember 2020 og óskaði eftir því að umsókn hans um greiðslu atvinnuleysistrygginga myndi gilda frá 1. nóvember 2020. Með ákvörðun, dags. 11. desember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100%. Beiðni kæranda um að umsóknin tæki gildi 1. nóvember 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þann 20. janúar 2021 bárust skýringar frá kæranda og var mál hans því tekið fyrir á ný. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 15. febrúar 2021, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun stofnunarinnar væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. janúar 2021. Með bréfi, dags. 26. janúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 4. mars 2021, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. mars 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Í skýringum kæranda, sem sendar voru til Vinnumálastofnunar þann 20. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi misst vinnuna eftir að hafa leitað til B vegna vangreiddra gjalda vinnuveitanda til Ríkisskattstjóra og lífeyrissjóðs. Kærandi greinir frá því að þetta hafi leitt til þess að honum hafi verið sagt upp störfum. Kærandi hafi beðið yfirmann sinn um staðfestingu á starfslokum en yfirmaður hans hafi sagt honum að hann myndi alfarið sjá um umsókn hans til Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi því ekki sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrr en 23. nóvember 2020 en hann hafi verið atvinnulaus frá 1. nóvember 2020. Kærandi óskar eftir því að umsókn hans um greiðslu atvinnuleysistrygginga taki gildi frá 1. nóvember 2020.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 23. nóvember 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi fyrst rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 23. nóvember 2020 og að hafna beri beiðni kæranda um afturvirkar greiðslur atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. nóvember 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 23. nóvember 2020 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. nóvember 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum