Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2021

Fimmtudaginn 14. janúar síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2021, sbr. reglugerð nr. 1324/2020.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088), samtals 4.800 stk., á meðalverðinu 103 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 89 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 115 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093), samtals 6.900 stk., á meðalverðinu 108 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 97 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 118 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 6.000 stk., á meðalverðinu 59 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 56 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 60 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 15.500 stk., á meðalverðinu 44 kr./stk.  Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 30 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 53 kr./stk.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 264.250 stk. á meðalverðinu 47 kr./stk.  Hæsta boð var 56 kr./stk. en lægsta boð var 21 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 54 kr./stk.

Atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.600

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

600

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.400

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

600

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Rósir janúar – júní 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

1.000

Samasem ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

500

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

8.500

Samasem ehf

 

Afskorin blóm janúar – júní 2021

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

6.593

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

50.000

Grænn markaður ehf

109.657

Samasem ehf

 

Reykjavík, 20. janúar 2021  

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum