Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland eykur framlag sitt til loftslagstengdrar þróunarsamvinnu

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ávarpaði í dag viðburð Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) sem haldinn var af tilefni loftlagsráðstefnunarinnar í Glasgow, COP26. Þar tilkynnti hann jafnframt þátttöku Íslands í fjármögnun verkefnis UNDP til stuðnings loftslagstengdrar þróunarsamvinnu. Framlag Íslands nemur 150 milljónum króna til næstu þriggja ára.  

„Ísland er staðfast í að leggja sín lóð á vogarskálarnar þegar kemur að alþjóðlegum aðgerðum gegn loftlagsbreytingum. Aðstoð við þróunarríki er lykilatriði og við munum halda áfram að auka framlög okkar til loftlagstengdrar þróunarsamvinnu. Hér spilar stuðningur okkar við verkefni UNDP mikilvægan þátt og við hlökkum til samstarfsins,“ sagði ráðherra meðal annars í ávarpi sínu.

Markmið viðburðarins var að varpa ljósi á árangur þróunarríkja við að takast á við loftlagsbreytingar, og þá sérstaklega hvernig UNDP og samstarfaðilar hafa, undir verkefninu „UNDP Climate Promise“, aðstoðað 120 þróunarríki við að skila metnaðarfullum landsákvörðuðum framlögum til Parísarsamningsins. Þá var einnig tilkynnt um næsta áfanga verkefnisins, sem miðar að því veita breiðan stuðning til hundrað þróunarríkja við framkvæmd landsákvarðaðra framlaga þeirra.

UNDP er leiðandi stofnun á sviði umhverfistengdrar þróunarsamvinnu og spilar lykilhlutverk í aðstoð Sameinuðu þjóðanna við framkvæmd Parísarsamningsins í þróunarríkjum. 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum