Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynningarfundur um Loftslagssjóð

Kynningarfundur um Loftslagssjóð fer fram í Norræna húsinu á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember, og í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir í sjóðinn. Stofnun Loftslagsjóðs er ein af aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Loftslagssjóður er nýr samkeppnissjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur ráðherra falið Rannís umsjón með honum. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir eru meðal annars ætlaðir til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun.

Kynningarfundur um sjóðinn fer sem fyrr segir fram í Norræna húsinu á morgun, 28. nóvember, og stendur frá kl. 12:00-13:00. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, heldur ávarp, Hildur Knútsdóttir formaður stjórnar Loftslagssjóðs fer yfir áherslur stjórnar og Ása Guðrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís fer yfir handbók sjóðsins, umsóknarkerfi og faglegt matsferli.

Húsið verður opnað kl. 11:30 og boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir fundinn. Verið öll velkomin en fundargestir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig.

Einnig verður streymt frá fundinum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum