Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 497/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 497/2021

Fimmtudaginn 20. janúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 26. maí 2020. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 7. júlí 2020, var kæranda tilkynnt að umsóknin hefði verið samþykkt með 100% bótarétti. Þann 5. ágúst 2020 var kæranda tilkynnt að hann hefði fyrir mistök fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir júnímánuð 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, var kæranda tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir júnímánuð 2020, að fjárhæð 330.896 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. september 2021. Með bréfi, dags. 28. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 27. október 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa spurt um leið og hann hafi fengið greiðsluna hvort hún væri rétt og fengið jákvætt svar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þann 26. maí 2020 og reiknast með 100% bótarétt. Þann 5. ágúst 2020 hafi kærandi fengið tölvupóst frá stofnuninni þar sem fram hafi komið að mistök hafi verið gerð af hálfu stofnunarinnar þar sem kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir allan júnímánuð samhliða fullum launum frá fyrrum vinnuveitanda. Í framhaldinu hafi umrædd mistök verið leiðrétt og þann 6. ágúst 2020 hafi kærandi fengið tilkynningu frá stofnuninni um ofgreiddar atvinnuleysisbætur og vegna þess hafði myndast skuld við Vinnumálastofnun, að fjárhæð 300.896 kr., án álags. Ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi verið innheimtar án álags þar sem um hafi verið að ræða mistök af hálfu stofnunarinnar. Kærandi hafi verið afskráður af atvinnuleysisbótum þann 2. júlí 2020 og hafi því einungis fengið greiðslur úr Atvinnuleysistryggingarsjóði vegna júnímánaðar og greiðslur frá 1. til 2. júlí 2020.

Samkvæmt uppsagnarbréfi frá B hafi síðasti starfsdagur kæranda verið þann 30. júní 2020 en kærandi hafi hins vegar fengið atvinnuleysisbætur samhliða launum júnímánaðar þegar kærandi hafi fyrst átt rétt til atvinnuleysisbóta frá 1. júlí 2020. Kærandi hafi fengið greidd laun frá B vegna júnímánaðar, að fjárhæð 672.768 kr. og samhliða því hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 363.622 kr. Eðli máls samkvæmt eigi kærandi ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en starfstímabili hans ljúki hjá fyrrum vinnuveitanda. Þá fyrst eigi kærandi rétt á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Með bréfi, dags. 23. september 2021, hafi verið farið þess á leit að kærandi greiddi skuld sína vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta, annars yrði málið sent til Innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi til frekari innheimtu. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að umrædd ofgreiðsla hefði áður verið tilkynnt kæranda, bæði með útgáfu greiðsluseðla, með skuldastöðu á hverjum tíma og með tilkynningum á „Mínum síðum“. Í erindinu hafi kæranda verið leiðbeint um rétt hans til endurupptöku á málinu fyrir viðeigandi stjórnvaldi, heimild hans til að óska eftir rökstuðningi og að heimilt væri að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Fyrir liggi í máli þessu að kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur vegna júnímánaðar, þrátt fyrir að starfstímabili hans hjá B hafi ekki lokið fyrr en 30. júní 2020. Kærandi hafi því fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir sama tíma og hann hafi verið við vinnu hjá B.

Í a.-i. liðum 1. mgr. 14. gr. laganna sé fjallað um hvað felist í virkri atvinnuleit en sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem uppfylli skilyrði 14. gr. laganna. Í g. lið 1. mgr. 14. gr. laganna segi: ,,á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við.“ Ljóst sé að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði g. liðar 1. mgr. 14. gr. laganna þegar hann hafi verið í vinnu hjá B. Kæranda beri í samræmi 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur en í ákvæðinu segi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt framangreindu ákvæði sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Kæranda beri að endurgreiða stofnuninni í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunnar að rétt hafi verið staðið að útreikningi skuldamyndunar í máli kæranda. 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir júnímánuð 2020, að fjárhæð 330.896 kr.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. Í g. lið 1. mgr. 14. gr. segir að sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem meðal annars eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit, nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við.

Kærandi fékk greidd laun frá fyrrum vinnuveitanda sínum í júnímánuði 2020 en um var að ræða laun í uppsagnarfresti. Kærandi var því ekki tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 þann mánuð en vegna mistaka Vinnumálastofnunar fékk hann þó greiddar atvinnuleysisbætur.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2021, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum