Hoppa yfir valmynd
6. ágúst 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs janúar-júní 2015

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar – júní 2015 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Tekjujöfnuðurinn var jákvæður um 779 m.kr. þar sem innheimtar tekjur jukust um 14,2 ma.kr. milli ára en móti jukust greidd gjöld um 26,6 ma.kr. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 30,3 ma.kr. samanborið við jákvætt handbært fé upp á rúma 11 ma.kr. 2014. Þetta skýrist að stærstum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var á árinu 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015. Þetta hefur eingöngu áhrif á sjóðshreyfingar en ekki rekstrarstöðu ársins 2015 og hafði sambærileg jákvæð áhrif á handbært fé í lok árs 2014.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum