Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2018 Innviðaráðuneytið

Fjarvinnslustöðvar fá 30 milljónir króna í verkefnastyrki

Frá Ísafirði - myndHugi Ólafsson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Að þessu sinni var 30 milljónum króna úthlutað vegna fjarvinnslustöðva. Alls bárust 16 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 180 m.kr. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum.

Markmiðið með framlögum vegna fjarvinnslustöðva er annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni.

Við mat á umsóknum var stuðst við þætti eins og íbúaþróun, samsetningu atvinnulífs og atvinnustig og þróun á starfsmannafjölda viðkomandi stofnunar undanfarin ár.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna. Verkefnin fjögur sem hljóta styrk eru:

  • Skönnun og skráning þinglýstra skjala. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum hlýtur styrk til að skanna og skrá þinglýst skjöl. Verkefnið verður styrkt um 6 m.r. á ári í þrjú ár, árin 2018-2020, samtals 18 m.kr.
  • Þjóðfræðistofan á Ströndum. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Ströndum – Þjóðfræðistofa hlýtur styrk til að safna upplýsingum og skrá menningararf. Verkefnið verður styrkt um 6 m.kr. á ári í þrjú ár árin 2018-2020, samtals 18 m.kr.
  • Fjarvinnsla á Djúpavogi. Minjastofnun Íslands fær styrk til að skrá minningarmörk. Verkefnið verður styrkt um 9 m.kr. árið 2018 og 12 m.kr. árið 2019, samtals 21 m.kr.
  • Gagnagrunnur sáttanefndabóka. Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra hlýtur styrkinn til að vinna að gagnagrunninum. Verkefnið verður styrkt um 9 milljónir kr. árið 2018.

Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. starfsmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem var formaður. Með valnefnd störfuðu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum