Hoppa yfir valmynd
3. júní 2020 Utanríkisráðuneytið

Þrjátíu milljóna króna viðbótarframlag til Jemen

Ljósmynd: UNICEF/Almahbashi - mynd

Utanríkisráðuneytið tilkynnti á áheitaráðstefnu um Jemen í gær um 30 milljóna króna viðbótarframlag til verkefnis sem Ísland hefur stutt á vegum Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Verkefnið snýr að bættri kyn- og frjósemisheilsu kvenna í Jemen.

Í gær var haldin sérstök áheitaráðstefna á vegum Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) með það markmið að safna áheitum um framlög til að fjármagna lífsbjargandi mannúðaraðgerðir í landinu. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ávarpaði ráðstefnuna og sagði að það væri mikilvægt að vinna að því að binda enda á stríðið í Jemen, þörfin fyrir mannúðaraðstoð væri gríðarleg í landinu.

Stefnt var að því að safna 2,4 milljörðum Bandaríkjadala á ráðstefnunni en aðeins tókst að fá vilyrði fyrir 1,35 milljarði.

Neyðarástand ríkir í Jemen og þörfin fyrir aðstoð við íbúa er gríðarleg. Rúmlega 24 milljónir manna þarfnast aðstoðar eða um 80 prósent þjóðarinnar. Átökin hafa haft gríðarleg neikvæð efnahagsleg áhrif í landinu og öll grunnþjónusta við almenning er í molum. Um 13 milljónir einstaklinga fá mannúðaraðstoð í hverjum mánuði.

COVID-19 faraldurinn kyndir undir neyðina sem var ærin fyrir, en í Jemen eru stærstu mannúðaraðgerðir í heiminum með þátttöku rúmlega 200 mannúðarsamtaka og stofnana. Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er ein þeirra stofnana og veitti um það bil einni milljón kvenna og stúlkna heilbrigðis- og neyðarþjónustu á síðasta ári í öllum fylkjum landsins.

Ísland hefur stutt við verkefni á vegum UNFPA sem snúa að bættri kyn- og frjósemisheilsu kvenna í Jemen og utanríkisráðuneytið lagði til 650 þúsund Bandaríkjadali, eða um 78 milljónir íslenskra króna, til verkefnisins árið 2019.

UNFPA er ein af áherslustofnunum Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum