Hoppa yfir valmynd
29. desember 2023 Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs vegna NPA-þjónustu nema 1.097 m.kr. árið 2023

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) á árinu 2023, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 192/2023.

Alls voru gerðir 97 NPA samningar á árinu 2023 og nemur heildarfjárhæð þeirra 4.388 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir 25% af þeim kostnaði og því nema framlög sjóðsins vegna NPA samtals 1.097 m.kr. á árinu 2023. Framlögin hafa þegar komið til greiðslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum