Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 156/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 22. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 156/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20030008 og KNU20040003

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 66/2020, dags. 27. febrúar 2020, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. október 2019, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. apríl 2019. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 2. mars 2020. Þann 6. mars 2020 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og barst nefndinni greinargerð í málinu þann 13. mars 2020. Þann 2. apríl 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins og þann 6. apríl 2020 barst kærunefnd frekari rökstuðningur fyrir endurupptöku.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ætla að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem 12 mánuðir séu að líða frá því að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Því skuli taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á Íslandi. Til stuðnings kröfu sinni um endurupptöku vísar kærandi einnig til viðtals við dómsmálaráðherra, dags. 31. mars 2020, þar sem fram hafi komið að ákveðinn hópur sem bíði niðurstöðu eða brottvísunar eigi möguleika á endurupptöku mála sinna sökum þess ástands sem nú sé uppi vegna Covid-19 veirunnar.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá telur kærunefnd að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 11. apríl 2019 og hefur hún ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum.

Þann 14. apríl 2020 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá Útlendingastofnun barst samdægurs og var það mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt meðan það hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni. Þann 15. apríl 2020 barst kærunefnd svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þar sem fram kom að deildinni hafi ekki borist verkbeiðni í máli kæranda.

Af upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda, má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af hennar völdum. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 11. apríl 2019, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli hennar á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kæranda hefur verið samþykkt leiðir það til þess að upphaflegur úrskurður kærunefndar nr. 66/2020 hefur fallið úr gildi. Hefur það því ekki þýðingu fyrir mál kæranda að taka upphaflega beiðni hennar um frestun réttaráhrifa, dags. 6. mars 2020, á umræddum úrskurði til úrlausnar og er henni hér með vísað frá.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant’s request for re-examination of her case is granted.

The appellant’s request to suspend legal effects is dismissed.The decision of the Directorate of Immigration is vacated.

The Directorate shall examine the merits of the applicant’s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson                                                                             Þorbjörg Inga Jónsdóttir  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum