Hoppa yfir valmynd
9. júní 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 217/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 217/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040035

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. apríl 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. apríl 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 8. febrúar 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. 28. mars 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Í fyrrnefndu viðtali framvísaði kærandi argentínsku dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 5. apríl 2028, en þar kemur fram að hún sé handhafi ótímabundins dvalarleyfis þar í landi. Útlendingastofnun ákvað 12. apríl 2022 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 19. apríl 2022 og kærði hún ákvörðunina 20. apríl 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. maí 2022. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um viðtökuríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kærandi hefði gilt dvalarleyfi í Argentínu. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Argentínu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Argentínu.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi orðið fyrir fordómum í Argentínu vegna uppruna síns og að henni hafi reynst erfitt að fá atvinnu þar í landi sökum aldurs. Fjallað er almennt um aðstæður í Argentínu, Kólumbíu, Venesúela og Sýrlandi. Kemur m.a. fram að í Argentínu sé mikil spilling til staðar innan lögreglu og dómskerfis. Þá sé staða innflytjenda mjög erfið þar í landi. Vísar kærandi til alþjóðlegra mannréttindaskýrslna máli sínu til stuðnings.

Hvað varðar málsástæður og lagarök vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar, dags. 3. apríl 2022. Þar vísar kærandi m.a. til þess að óumdeilt sé að hún hafi ekki fengið alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða að hún hafi hlotið virka vernd í samræmi við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna. Kærandi vísar til þess að þó að stjórnvöld hafi heimild til að hafna því að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar þar sem hún geti fengið alþjóðlega vernd í sínu fyrsta griðlandi, þá verði stjórnvöld að ganga úr skugga um að ekki sé verið að senda hana til ríkis þar sem hún þurfi að óttast ofsóknir eða að hún verði send áfram til heimaríkis síns, í andstöðu við meginregluna um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi vísar til þess að spilling ríki í Argentínu, m.a. innan lögreglunnar. Þá sé staða innflytjenda í Argentínu erfið. Kærandi geti ekki flutt til eiginmanns síns í Kólumbíu þar sem hún telji sig einnig í hættu þar í landi. Þá sé Argentína, Venesúela og Kólumbía ekki á lista Útlendingastofnunar yfir örugg ríki. Kærandi vísar til þess að samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga  sé ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hafi ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr. sömu laga. Þá beri að hafa í huga að kærandi sé hugsanlega einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu sökum líkamlegs og andlegs heilsufars hennar.

Í greinargerð kæranda er fjallað um 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 en þar komi fram viðmið við mat á því hvenær eigi að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi sé kvenmaður, sýrlenskur ríkisborgari sem og ríkisborgari Venesúela. Kærandi telur að staða hennar af þeim sökum verði verulega síðri en almennings í Argentínu. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki skoðað þennan vinkil málsins í ákvörðun sinni.

Kærandi fjallar um 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og telur að verulega skorti á að mál hennar sé nægjanlega upplýst. Til að mynda hafi ekki verið upplýst hver staða eldri kvenna af arabískum uppruna sé í Argentínu. Þá hafi ekki verið upplýst hver staða hennar í Kólumbíu og Sýrlandi sé.

Þá vísar kærandi til þess að sökum fjölskylduaðstæðna hennar geti hún ekki dvalið í Argentínu. Verði hún send þangað þýði það í raun að verið sé að senda hana til Kólumbíu en ástandið þar í landi sé ótryggt. Kærandi vilji því frekar fara til Sýrlands þrátt fyrir ástandið sem þar ríki.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Kærandi er [...]kona sem stödd er einsömul hér á landi. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hafa lagt á flótta frá Venesúela til Argentínu m.a. vegna óöryggis og að hún hafi viljað betri framtíð fyrir dóttur sína. Kærandi hafi dvalið í Argentínu frá árinu 2015 en hún er handhafi ótímabundins dvalarleyfis þar í landi. Kærandi greindi frá því að dóttir hennar væri búsett í Argentínu og stundaði þar læknanám. Þá væri eiginmaður kæranda búsettur í Kólumbíu vegna atvinnu hans þar í landi, en kærandi hefði ekki áhuga á að búa í Kólumbíu. Kærandi hafi yfirgefið Argentínu þar sem hún hafi upplifað fordóma vegna uppruna síns og að engin starfstækifæri væru fyrir hana þar í landi. Kærandi hafi því lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 8. febrúar 2022. Samkvæmt frásögn kæranda er hún með hnúta í brjósti og sé í þörf fyrir læknisskoðun á 6 mánaða fresti sökum þess. Þá greindi kærandi frá því að vera þunglynd.

Aðstæður í Argentínu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Argentínu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Argentina (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices: Argentina (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2021/22: The State of the World‘s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Argentina Country Security report (OSAC, 31. ágúst 2021);
  • Cartagena Declaration on Refugees (UNHCR, ódagsett);
  • Fact Sheet: Argentina (UNHCR, júní 2020);
  • Freedom in the World 2021 – Argentina (Freedom House, 3. mars 2021);
  • Freedom in the World 2022 – Argentina (Freedom House, 24. febrúar 2022);
  • Guidelines on International Protection No. 12: Claims for refugee status related to situations of armed conflict and violence undir Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relation to the Status of Refugees and the regional refugee definitions (UNHCR, 2. desember 2016);
  • Health in the Americas+. Summary: Regional Outlook and Country Profiles (Pan American Health Organization, uppfært 12. desember 2017);
  • International Migration Outlook 2021 (OECD, 28. október 2021);
  • Stjórnarskrá Argentínu (http://www.biblioteca.jus.gov.ar/Argentina-Constitution.pdf, sótt 9. júní 2022);
  • Summary Conclusions on the interpretation of the extended refugee definition in the 1984 Cartagena Declaration (UNHCR, 7. júlí 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu Angloinfo Argentina (https://www.angloinfo.com/argentina, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu INADI (https://www.argentina.gob.ar/inadi, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu innanríkisráðuneytis Argentínu (https://www.argentina.gob.ar/interior/migraciones/residencias, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu Migration Policy Institute (https://www.migrationpolicy.org/article/south-american-migration-crisis-venezuelan-outflows-test-neighbors-hospitality, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu Pan American Health Organization (https://www3.paho.org/salud-en-las-americas-2017/?p=2706, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. júní 2022);
  • World Report 2021 Argentina (Human Rights Watch, 13. janúar 2021) og
  • World Report 2022 Argentina (Human Rights Watch, 10. janúar 2022).

Á framangreindum vefsíðum Angloinfo og innanríkisráðuneytis Argentínu kemur fram að einstaklingar geti verið handhafar tímabundins eða ótímabundins dvalarleyfis í Argentínu. Varanleg dvalarleyfi veiti einstaklingum rétt til að dvelja og starfa í Argentínu um óákveðinn tíma. Einstaklingar geti sótt um varanleg dvalarleyfi séu þeir skyldir argentínskum ríkisborgara eða eftir að haft fasta tímabundna búsetu í landinu um ákveðinn tíma. Til að fá útgefið ótímabundið dvalarleyfi þurfi m.a. að leggja fram sakavottorð auk fæðingar- og hjúskaparvottorðs. Þá sé hægt að sækja um tímabundið dvalarleyfi í allt að eitt ár í senn sem megi endurnýja að þeim tíma liðnum. Jafnframt gildi sérstakar reglur fyrir ríkisborgara Brasilíu, Bólivíu, Ekvador, Paragvæ, Perú, Úrúgvæ og Venesúela, en ríkisborgarar þessara landa geti sótt um tímabundið dvalarleyfi til tveggja ára. Þá kemur fram á vefsíðu Migration Policy Institute að löggjöf í Argentína og Úrúgvæ sé hliðhollari ríkisborgurum Venesúela en löggjöf annarra ríkja í Suður-Ameríku. Hafi argentínsk yfirvöld veitt ríkisborgurum Venesúela ótakmarkaðar vegabréfsáritanir sem geri þeim kleift að búa og starfa í landinu í tvö ár en að þeim tíma liðnum sé hægt að sækja um endurnýjun. Þá hafi Argentína framlengt tímafresti til að leggja fram nauðsynleg skjöl fyrir umsækjendur frá Venesúela þar sem reynst hafi erfitt að fá útgefin opinber skjöl frá Venesúela. Jafnframt kveða argentínsk lög á um að hægt sé að sækja um ríkisborgararétt eftir tveggja ára búsetu í landinu. Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2020 kemur fram að fjöldi Venesúelabúa sem flytji löglega til Argentínu hafi aukist jafnt og þétt síðan árið 2014 en stjórnvöld í Argentínu hafi gripið til ýmissa aðgerða til að greiða fyrir löglegri dvöl þeirra í landinu.

Samkvæmt framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022 kemur fram að kveðið sé á um veitingu alþjóðlegrar verndar eða stöðu flóttamanns í lögum Argentínu auk þess sem Argentína sé aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt skýrslunni sé til staðar kerfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd til að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og þá tryggi lög landsins að þeir sem hljóta alþjóðlega vernd þar í landi njóti verndar þarlendra yfirvalda. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 að félagsmálaráðherra Argentínu, fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og forseti Flóttamannanefndarinnar skrifað undir samkomulag um að bæta félagslega og efnahagslega aðlögun flótta- og farandfólks í Argentínu. Stofnaður hafi verið vinnuhópur á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og sveitarfélaga til að afhenda matvæli og hreinlætisvörur fyrir flóttafólk sem dvelji í höfuðborg landsins. Þá kemur fram í framangreindri samantekt og leiðbeiningum UN High Commissioner for Refugees (UNHCR) að Argentína sé aðili að Cartagena yfirlýsingunni sem sé samkomulag milli ríkja í Suður-Ameríku sem varði málefni flóttamanna. Orðalag yfirlýsingarinnar bendi til þess að skilgreining hennar á flóttamannahugtakinu sé rýmri en t.a.m. í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og geti þannig tekið til einstaklinga sem séu í þörf fyrir alþjóðlega vernd en falli ef til vill ekki undir skilgreiningu flóttamannasamningsins á hugtakinu. Sú skilgreining á hugtakinu flóttamaður sem fyrirfinnst í Cartagena yfirlýsingunni hafi verið innleidd í löggjöf ýmissa ríkja Suður-Ameríku, þ. á m. Argentínu. Þá árétti yfirlýsingin m.a. grundvallarregluna um bann við endursendingum og rétt einstaklinga til alþjóðlegrar verndar.

Stjórnarskrá Argentínu mælir fyrir um að öllum skuli tryggður réttur til heilbrigðisþjónustu jafnvel þó ekki sé um að ræða ríkisborgara landsins. Á vefsíðu Pan American Health Organization kemur fram að heilbrigðiskerfi landsins skiptist í þrjá hluta, þ.e. í fyrsta lagi ríkisrekinn hluta sem samanstandi af sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum sem veiti öllum sem þurfi á að halda ókeypis þjónustu og þá sérstaklega þeim sem séu tekjulágir eða ekki tryggðir í gegnum almannatryggingakerfið. Í öðru lagi sé heilbrigðisþjónusta veitt í gegnum skyldubundna almannatryggingakerfið víðs vegar um landið. Í þriðja lagi séu til staðar einkareknar heilbrigðisstofnanir sem veiti þjónustu til fyrirfram tryggðra aðila. Biðlistar eftir þjónustu á sjúkrahúsum séu oft langir og því hafi einstaklingar þurft að sækja sér heilbrigðisþjónustu hjá einkageiranum.

Samkvæmt framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022 kveða argentínsk lög á um bann við hvers kyns nauðungarvinnu og hafa stjórnvöld almennt verið skilvirk í að framfylgja lögunum. Refsingar við slíkum brotum í argentínskum lögum séu hliðstæðar refsingum við öðrum alvarlegum glæpum, s.s. mannránum. Þrátt fyrir það tíðkist nauðungarvinna í Argentínu. Vinnumálastofnun Argentínu fari þó reglulega í eftirlitsferðir víðs vegar um landið og stjórnvöld hafi sett af stað átak í að draga gerendur til saka. Þá starfi embætti sérstaks saksóknara fyrir mansal og misnotkun í Argentínu sem rannsaki slíka glæpi. Jafnframt kveða argentínsk lög á um bann við mismunun á atvinnumarkaði á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, félagslegrar stöðu og stjórnmálaskoðana. Almennt hafi þessum lögum verið framfylgt af stjórnvöldum. Þá hafi viðurlögum verið komið á með lögum til að framfylgja þessum réttindum. Algengustu tilvikin um mismunun á atvinnumarkaði hafi verið á grundvelli fötlunar, kyns og aldurs auk þess sem HIV jákvæðir einstaklingar hafi greint frá mismunun.

Í Argentínu er starfrækt stofnun sem heyrir undir dóms- og mannréttindaráðuneytið og vinnur gegn mismunun, útlendingahatri og kynþáttafordómum (s. Instituto Nacional contra la Discriminación, la Xenofobia y el Racismo, INADI). Helstu markmið stofnunarinnar sé að tryggja framkvæmd og markmið laga um mismunun auk þess sem stofnunin taki á móti kvörtunum vegna mismununar, útlendingahaturs og kynþáttafordóma. Þá útbúi stofnunin skýrslur og tillögur að úrbótum i málaflokknum. Jafnframt geti einstaklingar fengið ókeypis ráðgjöf hjá stofnuninni auk þess sem stofnunin veiti ríkissaksóknurum og dómstólum ráðgjöf hvað varðar málaflokkinn. Þá standi þolendum mismununar, útlendingahaturs og kynþáttafordóma til boða að fá ráðgjöf og leggja fram kvartanir í gegnum síma alla daga vikunnar.

Í áðurnefndum skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að alríkis-, héraðs- og sveitarstjórnarlögregla beri ábyrgð á löggæslu í Argentínu. Alríkislögreglan heyri undir ráðuneyti öryggismála en héraðs- og sveitarstjórnarlögregla heyri undir ráðuneyti eða skrifstofu innan hverrar lögsögu. Í skýrslu OSAC kemur fram að spilling sé landlægt vandamál í Argentínu, en spilling finnist víðs vegar innan stjórnsýslunnar. Þá sé skortur á að lögum um spillingu sé framfylgt og refsingar við brotum gegn spillingu því sjaldgæfar. Jafnframt má ráða af skýrslunni að í Argentínu sé til staðar virkt löggæslukerfi og lögreglan bregðist almennt við lögbrotum.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-lið ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Við túlkun lagaákvæðisins ber að líta til þess að heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er undantekning frá meginreglunni um að allar umsóknir skuli teknar til efnismeðferðar sem beri að túlka þröngt.

Í athugasemdum við 36. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga segir að í a-lið 1. mgr. 36. gr. laganna sé um að ræða regluna um fyrsta griðland (e. country of first asylum). Vísað er til athugasemda í frumvarpi því sem varð að þágildandi lögum um útlendinga nr. 96/2002 þar sem kveðið sé á um að með ákvæðinu sé miðað við að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og veitt getur honum vernd. Í því frumvarpi segir enn fremur í athugasemdum  við c-lið 1. mgr. 46. gr. laganna, sem er, að því leyti sem máli skiptir sambærilegur a-lið 1. mgr. 36. gr. núgildandi laga um útlendinga, að í umræddu ákvæði sé kveðið á um regluna um fyrsta griðland. Samkvæmt þeirri reglu skuli umsókn um alþjóðlega vernd afgreidd í fyrsta ríki sem flóttamaður kemur til og veitt getur honum vernd. Reglunni sé ætlað að varna því að flóttamenn verði sendir frá einu ríki til annars án þess að mál þeirra fái viðeigandi meðferð. Miðað sé við að útlendingur hafi átt færi á að koma umsókn um alþjóðlega vernd á framfæri við stjórnvöld í ríkinu og að í því sambandi sé nægjanlegt að hlutaðeigandi hafi átt þar mjög stutta dvöl, til dæmis farið um vegabréfaeftirlit á flugvelli. Í athugasemdum er vísað til þess að þessari reglu sé beitt með einum eða öðrum hætti í flestum löndum og komi m.a. fram í Schengen- og Dyflinnarsamningnum. Þá kemur fram í athugasemdum að forsenda þess að reglu þessari sé beitt sé að hlutaðeigandi ríki samþykki að taka við útlendingum.

Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða III. og IV. kafla laganna eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, um túlkun samningsins og laga um útlendinga. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram tiltekin viðmið er varðar beitingu reglunnar um fyrsta griðland. Að mati stofnunarinnar verður að líta til þess hvort grundvallarmannréttindi umsækjanda verði virt í þriðja ríki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og hvort að raunhæf vernd sé veitt gegn því að einstaklingum sé brottvísað þangað sem lífi þeirra eða frelsi kunni að vera stefnt í hættu (non-refoulement) eða þar sem hætta er á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá sé rétt að líta til aðstæðna í viðtökuríki, s.s. með hliðsjón af einstaklingsbundinni stöðu viðkomandi og möguleika hans á að sjá sér farborða. Þá er beiting reglunnar háð því skilyrði að þriðja ríki taki við umsækjanda.

Kærunefnd áréttar að við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd geti snúið aftur til viðtökuríkis geti annað hvort legið til grundvallar samskipti við viðkomandi ríki eða staðfesting á því að viðkomandi einstaklingur hafi gilda heimild til dvalar í því ríki. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kærandi dvalið í Argentínu undanfarin ár og er með gilt dvalarleyfi þar í landi. Þá verður ekki annað ráðið af framangreindri umfjöllun, um aðstæður í Argentínu, en að kærandi hafi átt þess kost að óska eftir alþjóðlegri vernd í viðtökuríki og hafi möguleika á því við endurkomu þangað. Að mati kærunefndar liggur fyrir fullnægjandi sönnun þess að kærandi hafi heimild til dvalar í viðtökuríki og engar lögformlega hindranir séu á því að kærandi geti snúið sjálfviljug aftur til viðtökuríkis. Þá er ljóst samkvæmt gögnum málsins og framangreindri umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki að kærandi hafi ekki ástæðu til að óttast ofsóknir í Argentínu, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu að hún sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Kærunefnd hefur við framangreint mat m.a. litið til þess að stjórnvöld í Argentínu eru aðilar að Cartagena yfirlýsingunni þar sem veitt er vernd gegn endursendingum einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Þá eru stjórnvöld í Argentínu aðilar að mannréttindasáttmála Ameríku þar sem m.a. er mælt fyrir um bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Falla því aðstæður kæranda í viðtökuríki undir skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og verður umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi því ekki tekin til efnismeðferðar.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með hnúta í brjóstum og hafa verið í eftirliti á 6 mánaða fresti í Argentínu vegna þess. Þá greindi kærandi frá því að vera þunglynd. Jafnframt hefur kærandi lagt fram heilsufarsgögn frá Argentínu.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, hinn 28. mars 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar hinn 22. apríl 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust og ekki var óskað eftir fresti til að leggja fram frekari gögn. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, svo sem áskilið er í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Argentínu verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá bera gögn málsins með sér að kærandi hafi notið heilbrigðisþjónustu í Argentínu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hafa orðið og eiga á hættu að verða fyrir fordómum og mismunun í Argentínu vegna þjóðernis. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár yfirvalda í Argentínu verði hún fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hann vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að aðstæður í Argentínu vegna faraldursins séu þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið bólusett gegn gegn Covid-19 auk þess sem að þær upplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér bera með sér að bólusetning sé vel á veg komin í viðtökuríkinu.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að aðgerðir stjórnvalda í Argentínu vegna Covid-19 faraldursins og mögulegar takmarkanir á endursendingum til Argentínu geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hinn 28. mars 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 8. febrúar 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hafa orðið fyrir mismunun vegna þjóðernis í viðtökuríki og að hún hafi fullt tilefni til að óttast ofsóknir þar í landi. Líkt og að framan greinir gefa þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til kynna að einstaklingar geti orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis í viðtökuríki. Þrátt fyrir það bendir heildarmat á gögnum málsins ekki til þess að slík mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga. Þá er það mat kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að vegna stöðu hennar í viðtökuríki verði endursending hennar þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einkum með vísan til framangreindrar umfjöllunar um alþjóðlegar skuldbindingar Argentínu á sviði mannréttindamála og flóttamannaréttar. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við aðstæður hennar í Argentínu.

Vegna umfjöllunar kæranda í greinargerð um að hún kunni að vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hennar var henni leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar hennar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Í ljósi framangreinds fellst kærunefnd ekki á að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 8. febrúar 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Gunnar Páll Baldvinsson


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum