Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2020

Kaup og sala greiðslumarks í sauðfé

Innlausn greiðslumarks í sauðfé og úthlutun til þeirra framleiðenda sem óskuðu eftir kaupum hefur farið fram.  Framkvæmdin er í samræmi við breytingar sem gerðar voru á sauðfjársamningi við endurskoðun hans sl. vetur og tóku gildi með breytingum á reglugerð 1262/2018 þann 19. nóvember sl.

Um úthlutunina gilda forgangsreglur sem tilgreindar eru í fyrrgreindri reglugerð.  Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 60% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði.  Það skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa.  Það greiðslumark sem þá er eftir skal boðið öðrum kaupendum sem og þeim aðilum er nutu forgangs, hlutfallslega í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa.

Óskir um innlausn á greiðslumarki voru 97 talsins og er innleysir ríkið greiðslumark samtals sem nemur 6.625 ærgildum.  Óskir um kaup á greiðslumarki voru 182 talsins og var óskað alls eftir 46.493 ærgildum.   Í heildina er hlutfall til úthlutunar  14,2% af óskum um kaup.  Óskir um kaup í forgangshópi nema 39.500 ærgildum og er 3.975 ærgildum ráðstafað til forgangshóps (60%).    Þá var  2.650 ærgildum úthlutað til alls hópsins sem er þá 6,2% af ósk um kaup.

Hver framleiðandi í forgangshópi fær því alls 15,7% af kaupósk sinni úthlutað en framleiðandi í almennum hópi fær úthlutað 6,2% af kaupósk sinni.

Niðurstaða úthlutunar er birt í umsókn hvers og eins á heimasvæði hvers framleiðanda í AFURÐ, greiðslukerfi landbúnaðarins..  Frestur kaupenda greiðslumarks til að ganga frá greiðslu er til og með 14. janúar. Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er að finna í umsókn viðkomandi í AFURÐ. Ekki er hægt að veita frekari greiðslufrest, þar sem ganga frá bráðabirgðaáætlun um heildarframlög til bænda eigi síðar en 18. janúar nk. 

 

Fréttin hefur verið uppfærð, þar sem röng tala kom fram í almennum hópi framleiðanda. Rétt er að framleiðandi í almennum hópi fær úthlutað 6,2% af kaupósk sinni. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum