Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 75/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. febrúar 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 75/2022

í stjórnsýslumálum nr. KNU21100075 og KNU21100076

 

Beiðni um endurupptöku í

málum [...] , [...] og barna þeirra

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í málum nr. KNU21040010 og KNU21040011, dags. 9. september 2021, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 17. mars 2021, um að taka umsóknir einstaklinga er kveðast heita [...], vera fædd [...]og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir K) og [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M) og barna þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B) og [...], fd. [...]2021 (hér eftir C), ríkisborgarar Íraks um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu.

    Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum hinn 13. september 2021. Hinn 20. september 2021 lögðu kærendur fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Hinn 30. september 2021 var beiðni kærenda hafnað. Dagana 27. október 2021 og 26. janúar 2021 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku málsins. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kærenda bárust kærunefnd frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hinn 6. desember 2021 og Útlendingastofnun hinn 10. desember 2021.

    Af greinargerð kærenda má ætla að beiðni þeirra um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  2. Málsástæður og rök kærenda

    Í beiðni kærenda um endurupptöku, dags. 27. október 2021, er byggt á því að meira en 10 mánuðir séu nú liðnir frá því að þau lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á þeirra ábyrgð. Með vísan til 32. gr. c reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum skuli umsóknir þeirra því teknar til efnismeðferðar hér á landi.

    Í beiðni kærenda um endurupptöku dags. 26. janúar 2022, er byggt á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir síðan þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á þeirra ábyrgð. Með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU17090040 frá 24. október 2017, skuli umsóknir þeirra teknar til efnismeðferðar hér á landi

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 27. desember 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti hinn 27. desember 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsókna kærenda séu á ábyrgð þeirra sjálfra, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 2. desember 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsókna kærenda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kærenda. Svar stoðdeildar barst kærunefnd hinn 6. desember 2021. Þá barst svar Útlendingastofnunar hinn 10. desember 2021. Var það mat stoðdeildar og Útlendingastofnunar að kærendur hefðu ekki tafið mál sitt að nokkru leyti.

Af framangreindum upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild má því ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kærenda. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli þeirra og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að þau verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsókna sinna, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kærenda hér á landi síðan þau lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hinn 27. desember 2020, er það mat kærunefndar að atvik hafi breyst verulega í málum kærenda á þann hátt að þau eigi rétt á endurupptöku mála sinna, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, og er það niðurstaða kærunefndar að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í málum nr. KNU21110089 og KNU21110090 uppkveðnum 3. febrúar 2022 var það niðurstaða nefndarinnar að beiðnum um efnismeðferð á grundvelli 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, nr. 638/2019, skuli beint til Útlendingastofnunar. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu kærunefndar verður beiðni kærenda um endurupptöku, dags. 27. október 2021, ekki tekin til skoðunar hjá nefndinni.

 

Úrskurðarorð

:

 

Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á máli þeirri.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

 

The appellants‘ request for re-examination of the case is granted.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellants‘ applications for international protection in Iceland.

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum