Hoppa yfir valmynd
11. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 585/2020-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 585/2020

Fimmtudaginn 11. mars 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 18. júlí 2020 og var umsókn hennar samþykkt 18. ágúst 2020. Í nóvember 2020 kom í ljós að við úrvinnslu umsóknar kæranda hafði farist fyrir að kanna hvort kærandi hefði ótakmarkaða heimild til atvinnu á Íslandi. Við þá skoðun kom í ljós að kærandi hefði ekki ótakmarkaða heimild til að starfa hér á landi þar sem hún væri með tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi. Stofnunin fjallaði að nýju um mál kæranda og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar væru stöðvaðar þar sem hún hefði ekki heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þá var kæranda tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 20. júlí 2020 til 31. október 2020, samtals að fjárhæð 597.875 kr.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 12. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 13. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 24. nóvember 2020 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. desember 2020. Athugasemdir bárust ekki. Þann 16. desember 2020 tók B við rekstri málsins.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að greiðslur frá Vinnumálastofnun byggi á þeirri ákvörðun stofnunarinnar að samþykkja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur. Því telur kærandi það mjög ósanngjarnt að henni beri að endurgreiða þær bætur. Hún sé einhleyp og afar illa stödd fjárhagslega og hafi enga aðra framfærslu en þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar. Með þessari synjun hafi kærandi enga innkomu og geti ekki framfleytt sér og X ára syni sínum á nokkurn hátt, hvað þá endurgreitt þá upphæð sem Vinnumálastofnun fari fram á.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál kæranda snúi að því hvort hún hafi uppfyllt skilyrði d-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar um að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segi meðal annars um 13. gr. laganna:

„Áfram verður gert skilyrði um ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi. Þar er um að ræða íslenska ríkisborgara og þá sem hafa leyfi til að starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana eða hafa verið undanþegnir kröfu um sérstök leyfi til að starfa hér samkvæmt íslenskum lögum.“

Samkvæmt framangreindu séu það íslenskir ríkisborgarar og útlendingar sem hafi heimild til að ráða sig til vinnu án takmarkana hérlendis sem geti átt rétt til atvinnuleysisbóta á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar. Þeir sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi geti einnig talist tryggðir samkvæmt lögunum. Það fari því eftir þeim lögum og reglum sem gildi hverju sinni um atvinnuréttindi útlendinga hvort útlendingur teljist hafa heimild til að ráða sig án takmarkana hér á landi í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í lögum nr. 97/2002 og reglugerð nr. 339/2005 um atvinnuréttindi útlendinga sé fjallað um atvinnuréttindi útlendinga. Í 22. gr. laga nr. 97/2002 séu taldir upp þeir aðilar sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi. Þeir séu ríkisborgarar í aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, útlendingar sem hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst ríkisborgararétt sinn, erlendir makar íslenskra ríkisborgara og börn þeirra, útlendingar í einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja, útlendingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða hafa fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi. Á þeim tíma sem kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta hafi hún hvorki verið undanþegin kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt 22. gr. laganna né fengið útgefið óbundið atvinnuleyfi á grundvelli 17. gr. laganna. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 18. júlí 2020 hafi hún ranglega fengið greiddar atvinnuleysisbætur og taldi stofnunin hana uppfylla skilyrði a-liðar 22. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga og þar með d-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þegar komið hafi í ljós að ekki hefði verið kannað hvort kærandi hefði ótakmarkaða heimild til dvalar- og atvinnu hafi stofnunin hins vegar kannað þá heimild í nóvember 2020. Þá hafi komið í ljós að kærandi dveldi hér á landi á grundvelli tímabundins dvalarleyfis fyrir íþróttafólk, sbr. [63.] gr. laga nr. 80/2016, og þurfi því tímabundið atvinnuleyfi til að starfa hér á landi, sbr. 13. gr. laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga. Kærandi hafi því ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga þann tíma sem hún hafi þegið greiðslur. Vinnumálastofnun bendi á niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 81/2015 og niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í málum nr. 134/2013 og 40/2009 er varði viðlíka álitaefni.

Þar sem kærandi hafi fengið ranglega greiddar atvinnuleysisbætur án þess að eiga rétt til þeirra hafi Vinnumálastofnun tekið þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum sem hún hafi fengið á tímabilinu 20. júlí 2020 til 31. október 2020. Sú ákvörðun grundvallist á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í ákvæðinu segi að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur en hann eigi rétt á beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Samkvæmt ákvæðinu sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem hafi verið ofgreiddar. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að ekki skyldi innheimta álag vegna ofgreiðslna til kæranda.

Með vísan til alls ofangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að henni beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 597.875 kr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til handa kæranda á þeirri forsendu að hún hafi ekki haft heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þá fór Vinnumálastofnun fram á að kærandi endurgreiddi ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 20. júlí 2020 til 31. október 2020, samtals að fjárhæð 597.875 kr.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 1. mgr. 13. gr. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 63. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga fyrir íþróttafólk. Kærandi er því með tímabundið atvinnuleyfi til starfa hér á landi á grundvelli 13. gr. laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga. Skilyrði d-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana er því ekki uppfyllt í máli kæranda. Það lá ekki fyrir þegar kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta á tímabilinu 20. júlí 2020 til 31. október 2020.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2020, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til handa A og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum