Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Undanþágur frá starfsleyfi fyrir starfsemi Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. veittar með skilyrðum

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur veitt fyrirtækjunum Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. tímabundna undanþágu með skilyrðum, frá kröfu um starfsleyfi. Arctic Sea Farm hf. er þar með veitt heimild til að framleiða 600 tonn árlega og Fjarðalaxi hf. 3.400 tonn árlega af laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Framangreindar undanþágur munu falla úr gildi í síðasta lagi 5. september 2019.

Ráðuneytið veitir undanþágurnar á grundvelli ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Gert er ráð fyrir mun umfangsminni starfsemi fyrirtækjanna en þau óskuðu eftir í beiðni sinni um undanþágu og sem starfsleyfi Umhverfisstofnunar tók til, en starfsleyfin voru felld úr gildi í október sl. með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Fyrirtækjunum er gert skylt að fylgja þeim skilyrðum sem fram komu í fyrrgreindum starfsleyfum og þeim umhverfiskröfum sem koma fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar. Þá eru undanþágurnar bundnar þeim skilyrðum að fyrirtækin vinni með virkum hætti að því að bæta úr annmörkum á umhverfismati vegna framkvæmdanna og gera ráð fyrir að starfseminni sé haldið í lágmarki til að draga sem mest úr umhverfisáhrifum og mengun sem henni fylgir.

Við afgreiðslu málsins var aflað umsagna frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Matvælastofnun, sem mæltu með því að fyrirtækjunum yrði veitt tímabundin undanþága frá starfsleyfi.

Umhverfisstofnun hefur eftirlit með starfsemi fiskeldisfyrirtækjanna og ber að birta undanþágur ráðherra á vefsíðu sinni.

Undanþága Arctic Sea Farm frá starfsleyfi, 20. nóvember 2018, birt á vef Umhverfisstofnunar.

Undanþága Fjarðalax frá starfsleyfi, 20. nóvember 2018, birt á vef Umhverfisstofnunar























Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum