Nýtt öryggisfangelsi rís að Stóra Hrauni
Í síðustu viku samþykkti ríkisstjórnin tillögu dómsmálaráðherra um að ráðast í byggingu öryggisfangelsis að Stóra Hrauni. Þetta verður fyrsta fangelsið sem er sérstaklega hannað og byggt sem öryggisfangelsi á Íslandi. Með byggingu þess verður hægt að tryggja nauðsynleg öryggisskilyrði og bætta aðstöðu fyrir fanga og starfsfólk. Gert er ráð fyrir að í fyrsta áfanga verði byggð rými fyrir 92 fanga og er áætlaður kostnaður við hann 17,8 ma. króna.
„Þetta er stærsta framfaraskref í fangelsismálum á Íslandi í áratugi og lykilatriði til að mæta breyttum áskorunum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Öryggisfangelsið er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og verður jafnframt stærsta fangelsi landsins en eins og flest vita þá hefur fangelsiskerfið lengi glímt við alvarlegan húsnæðisskort og bágborinn aðbúnað. Því ætlum við að ráða bót á.“
Öryggisfangelsi að norrænni fyrirmynd
Fangelsinu að Stóra Hrauni verður skipt í öryggisstig sem hafa verið skilgreind í samræmi við norræna staðla og var sérstaklega litið til Danmerkur í þeim efnum. Öryggisstigin eru flokkuð frá eitt til þrjú, þar sem öryggisstig eitt gerir ráð fyrir mesta öryggi og öryggisstig þrjú minnsta. Með þeirri skiptingu verður unnt að bæta heildaröryggi innan fangelsiskerfisins sem og aðgreina fanga eftir alvarleika brota og draga úr líkum á tengslum milli skipulagðra brotahópa.
„Það er mikilvægt að geta tryggt uppskiptingu fangahópsins á einum stað. Með því má stuðla að faglegra starfi sem og tryggja betur öryggi allra,“ segir Þorbjörg Sigríður og segir að gert sé ráð fyrir að fangelsið að Stóra Hrauni verði að meginstefnu til með öryggisstigi tvö, en jafnframt verði þar aðstaða fyrir deildir með bæði hærra og lægra öryggisstig.
Alex Poulsen arkitektar (AP) og VA arkitektar komu að for- og frumhönnun verkefnisins en AP eru danskir ráðgjafar sem hafa hannað mörg sambærileg verkefni. Í dag er Arkís aðalhönnuður verkefnisins ásamt mörgum öðrum sérhæfðum hönnuðum og AP gegna ráðgefandi hlutverki.
Fyrsti áfangi kosti 17,8 milljarða króna
Nýja fangelsið kemur í stað fyrirhugaðra endurbóta á Litla Hrauni þar sem ástand húsnæðisins reyndist mun verra en áður hafði verið talið. Stóra Hraun, sem er í næsta nágrenni við Litla Hraun, verður byggt upp í áföngum. Áætlað er að kostnaður við þennan fyrsta og stærsta áfanga verði 17,8 ma. kr. og fellur sá kostnaður undir fjármálaáætlun fyrir árin 2026-2030. Sá hluti framkvæmdanna verður boðinn út á næstunni og munu framkvæmdir við hann væntanlega hefjast fljótlega. Stefnt er að því að framkvæmdir við næsta áfanga hefjist svo í beinu framhaldi af þeim fyrri.
Í fyrsta áfanga verksins er gert ráð fyrir 84 klefum á Stóra Hrauni og þangað til fangelsið verður fullbyggt verði nokkrir klefar á Litla Hrauni notaðir samhliða. Er því gert ráð fyrir að pláss verði fyrir um 90 til 98 fanga á hverjum tíma. Þegar fangelsið að Stóra Hrauni verður fullbyggt er gert ráð fyrir að það geti hýst allt að 128 fanga.