Safetravel.is
Góðir gestir
Ég vil byrja á því að óska Landsbjörgu, íslenskri ferðaþjónustu og landsmönnum öllum til hamingju með þetta átak.
Tímasetningin gæti varla verið betri því nú eru Íslendingar allir að bjóða gestum heim og markaðsátakið Inspired by Iceland í fullum gangi. Þjóðarátakið hefur gengið vel, sem dæmi sóttu 2 milljónir manns myndbandið á Facebook og 3,5 milljónir á Twitter.
Þar leggjum við áherslu á að kynna Ísland eins og það er, eftir vægast sagt öfgakenndar fréttir af efnahagshruni og eldgosi sem stoppaði allt flug í Evrópu.
Við erum auðvitað líka að reyna að yfirvinna óvissu sem skapaðist gegn Íslandi sem áfangastað eftir eldgosið í Eyjafjallajökli.
Markmiðinu um fjölgun ferðamanna fylgir ábyrgð , náttúran/upplifun, dreifing um landið yfir árið, en það er ekki nóg, öryggi er lykilatriði.
Ég er afar ánægð með Safetravel og Landsbjörgu. Þarna er fagfólk fram í fingurgóma og með mikla þekkingu á þessu sviði. Ég er ánægð með samstarfið.
Skilaboð okkar eru að hér sé ekki bara gott að vera heldur einnig öruggt ef eðlilegum varúðarreglum er fylgt.
Staðfesting á því að okkur sé umhugað um öryggi og velferð ferðamanna og að til staðar sé viðbúnaður ef eitthvað fer úrskeiðis er mikilvæg skilaboð.
Stór hluti ferðamanna kemur hingað til að upplifa stórbrotna náttúru lands sem enn er í mótun.
Hluti af þeirri upplifun er að vera á ferð meðal náttúruaflanna.
Kynningarefni Safetravel dregur svo sannarlega fram fegurð og fjölbreytileika þessarar náttúru og um leið og farið er yfir öryggisatriði vegna hinna ýmsu ferðamáta og áfangastaða er það um leið eins og listi yfir leiðirnar til að njóta hennar.
Þessi staður sem við stöndum á hér er okkur áminning um hvers náttúran er öflug og að gæta verður varúðar.
Hér eru gígar eftir sprengingar í hverum og skemmst er að minnast þess að 1999 breytti einn fjölsóttasti hluti hverasvæðisins mjög um svip.
Safetravel átakið fellur líka afar vel að áherslum iðnaðarráðuneytisins og Ferðamálastofu í öryggis- og gæðamálum ferðaþjónustunnar.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um ferðamál þar sem gert er ráð fyrir að ferðaskipuleggjendur geti þurft að skila inn gögnum um ábyrgðartryggingar um leið og sótt er um leyfi til Ferðamálastofu. Þetta mun þó einungis eiga við ef starfsemi þeirra með þeim hætti að áhættusamt geti talist. Einnig er nú unnið að reglugerð um öryggismál í ferðaþjónustu sem reiknað er meðað líti dagsins ljós í haust.Þar er lögð áhersla á samstarf um öryuggismál og starfsleyfi
Ásamt þessu er unnið að því að aðlaga nýsjálenskt gæðakerfi í ferðaþjónustu íslenskum aðstæðum. Kerfið kallast Qualmark og nær til flestra þátta í ferðaþjónustu. Með slíku kerfi koma til staðlar sem eu leiðbeinandi fyrir þá sem reka fyrirtækin ásamt því að vera mikilvægt markaðstæki. Gæði eru og verða lykilatriðið í velgengni íslenskrar ferðaþjónustu. Án þeirra mun greinin aldrei ná þeim árangri sem við höfum einsett okkur og öryggið skilar okkur gæðum, því mikilvægt skref er stigið hér í gæðamálum.
Ég vil að lokum óska okkur öllum góðs og farsæls ferðasumars og megi allir koma heilir heim.
Með fyrirvara um orðalag þar sem farið var út fyrir efnið.