Hoppa yfir valmynd
10.06.2016 Dómsmálaráðuneytið

Fangelsið á Hólmsheiði tekið í notkun

Fangelsið á Hólmsheiði tekið í notkun 10. júní 2016
Ávarp Ólafar Nordal innanríkisráðherra


Góðir gestir – til hamingju með daginn.

Við tökum í dag í notkun þessa vönduðu byggingu, nýtt fangelsi hér á Hólmsheiði og því ber vissulega að fagna. Sérhannað og sérsmíðað fangelsi hefur ekki verið byggt á Íslandi í nær hálfa aðra öld. Við höfum notast við byggingar sem ætlað var annað hlutverk en vissulega breytt þeim og lagað þær að því hlutverki sem fangelsi þarf að gegna. En nú eru tímamót og við færum fangelsismálin inn í nútímann með þessu skrefi.

Það má kannski segja að það sé með eilítið blendnum huga að fagna áfanga sem þessum. Við fögnum því að sjálfsögðu aldrei að þurfa að svipta menn frelsi sínu og loka á samvistir þeirra við ættingja og vini og útiloka þá frá því að vera nýtir þegnar í þjóðfélaginu. Jafnvel ekki þó að við bjóðum þeim nýtt hús og fullkomna aðstöðu til alls.

En refsidómar og fangavist eru fylgifiskar réttarríkisins. Tilgangur refsinga er í senn sá að einstaklingur sem virðir ekki þær reglur sem samfélagið setur sér sé látinn axla ábyrgð og svara til saka en jafnframt viljum við að refsingin hafi í för með sér betrun. Verkefni okkar er að sjá til þess að fullnusta dóma í fangelsum sé mannúðleg – hún sé til þess fallin að bæta viðkomandi og byggja upp til þess að hann geti stigið út í samfélagið sem betri manneskja.

Hér á Hólmsheiði eru allar aðstæður ákjósanlegar.

Það hlýtur að þýða að dvölin verður bærilegri.

Hér er öryggi – það hlýtur að hafa í för með sér ákveðinn frið.

Hér eru góðar aðstæður – það hlýtur að gera það að verkum að menn eigi auðveldara með að byggja sig upp til bjartari framtíðar.

Hér er hugsað fyrir mannlega þættinum – og þá ekki síst að því leyti að fangar geti átt samskipti við fjölskyldu sína við eins góðar aðstæður og kostur er á.

Loks langar mig að nefna að með þessu nýja fangelsi erum við að stórbæta aðstöðu fyrir kvenfanga sem hafa allt of lengi búið við óviðunandi aðstæður.

Lengi hefur bygging nýs fangelsis verið á dagskránni og margir fyrrverandi ráðherrar fangelsismála komið að málum með einum eða öðrum hætti. Fyrir það ber að þakka. Það er langþráður áfangi að geta nú tekið þetta hús í notkun. Fyrstu skóflustunguna tók Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra, í apríl 2013 og ber að þakka honum fyrir forystu hans í því að ýta verkefninu úr vör, sem og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem tók við keflinu. Margir hafa að sjálfsögðu lagt hönd á plóg í þessu verki og verður gerð grein fyrir því öllu hér á eftir. Ég nefni hér Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, formann verkefnisstjórnar um bygginguna, en hún hefur á fimmta ár stýrt þessu verki yfir allar hindranir og í þennan farsæla farveg. Ég vil einnig nefna forstjóra Fangelsismálastofnunar, Pál E. Winkel, fyrir þátt hans í málinu. Hann hefur talað fyrir nauðsyn þess að bæta aðstöðu fanga í áraraðir og aldrei misst móðinn.

Og hingað erum við nú komin.

Með þessari nýju byggingu leggjum við af gamla Hegningarhúsið við Skólavörðustíg í Reykjavík. Við höfum einnig lagt niður starfsemina í fangelsinu í Kópavogi. Þannig er lögð af starfsemi í byggingum sem þjónuðu ekki lengur hlutverki sínu og við munum finna Hegningarhúsinu nýjan tilgang. Þar eru nokkrar hugmyndir á lofti og geri ég ráð fyrir að við getum með haustinu ákveðið hvaða verðuga hlutverk þetta virðulega hús muni fá.

Góðir gestir.

Ég skal ekki lengja þessa tölu frekar – ég endurtek hamingjuóskir í tilefni af þessum áfanga og horfi þá ekki síst til Fangelsismálastofnunar og allra starfsmanna hennar. Vil ég á þessum tímamótum nota tækifærið og þakka þeim fyrir þjónustu þeirra í áraraðir. 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta