Hoppa yfir valmynd
29.05.2025 Innviðaráðuneytið

Stóraukið fjármagn í viðhald vega

Grein birt í Morgunblaðinu 29. maí 2025

Óhætt er að segja að sumarið fari vel af stað. Landsmenn brosa hringinn og dusta rykið af hjólhýsum í von um að blíðviðri síðustu daga boði langþráðan viðsnúning til betri tíðar í veðurfari. Enn hefur enginn veðurfræðingur gefið út bjartsýnisspá um rjómablíðu í sumar sem sumir segja til merkis um yfirvofandi veðursæld. 

Vonir um gott sumar eru skiljanlegar því greiður aðgangur að náttúru landsins er veigamikill þáttur í lífsgæðum okkar Íslendinga. Fegurð landsins og einstök náttúra laðar að ferðamenn víðs vegar að úr heiminum og er ferðaþjónustan orðin ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs. Samkvæmt spá Ferðamálastofu í mars er gert ráð fyrir að heildarfjöldi erlendra ferðamanna árið 2025 verði um 2,2 milljónir. 

Búið í haginn fyrir ferðasumar 

Mikill fjöldi ferðamanna og aukin umferð heimamanna reyna verulega á innviði landsins, ekki síst vegakerfið. Við vitum að ástand vegakerfisins kallar á tafarlausar aðgerðir. Samkvæmt mati Vegagerðarinnar er áætlað að einungis 35% burðarlaga og 37% slitlaga í vegakerfinu séu í góðu ástandi. Þetta undirstrikar brýna þörf fyrir úrbætur.  

Ríkisstjórnin hefur sett málefni innviða í forgang og er staðráðin í að vinna á uppsafnaðri viðhaldsskuld sem myndast hefur á undanförnum árum með því að auka verulega fjárfestingu í vegakerfinu. 

Á þessu ári er veitt þriggja milljarða króna viðbótarframlag til viðhalds í vegakerfinu. Til að setja það í samhengi jafngildir sú upphæð um það bil 25% aukningu miðað við meðaltal síðustu ára. Þessum fjármunum verður m.a. varið í aðkallandi verkefni eins og endurnýjun bundins slitlags og styrkingu burðarlags.  

Strax á næsta ári er stefnt að því að verja aukalega sjö milljörðum króna í viðhald og þjónustu við vegakerfið. Þetta aukna fjármagn er meðal annars tilkomið vegna breytinga á útreikningi veiðigjalda. Það mun einkum nýtast mikilvægum vegabótum á landsbyggðinni þar sem þörfin er mest.

Sókn til framtíðar 

Miðað við gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2026-2030 er gert ráð fyrir enn frekari sókn í þessum mikilvæga málaflokki. Áætlað er að árleg hækkun framlaga til viðhalds eingöngu muni nema á bilinu 4,5 til 5,5 milljörðum króna. Þetta jafngildir um 40-45% aukningu frá því sem verið hefur. Mestu máli skiptir að með þessari aukningu mun fjárfesting í viðhaldi vegakerfisins í fyrsta sinn í langan tíma ná því viðmiði sem Vegagerðin hefur metið sem viðunandi, eða um 20 milljarðar króna á ári. 

Með brýnum viðbótarframlögum strax í ár og á næsta ári rjúfum við kyrrstöðu og náum loksins að stöðva vöxt hinnar uppsöfnuðu viðhaldsskuldar. Við hyggjumst bretta upp ermar, sýna árangur í verki og bæta stöðu vegakerfisins til frambúðar.  

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta