Úrskurðir og álit
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
16. desember 2015 /Mál nr. 16/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um útreikning á skuldamyndun kæranda, sbr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, var ómerkt og málinu vísað til Vinnumálastofnunar til meðferðar að nýju.
-
16. desember 2015 /Mál nr. 46/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 4. mgr. 54. gr. laga atvinnuleysistryggingar er var felld úr gildi og Vinnumálastofnun gert að greiða kæranda atvinnuleysisbætur frá umsóknardegi.
-
16. desember 2015 /Mál nr. 55/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
03. desember 2015 /Mál nr. 54/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hann hafnaði starfi, var staðfest.
-
03. desember 2015 /Mál nr. 40/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
03. desember 2015 /Mál nr. 47/2015
Staðfest var sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunina skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar
-
03. desember 2015 /Mál nr. 53/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
10. nóvember 2015 /Mál nr. 49/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hún hafnaði atvinnutilboði var staðfest.
-
10. nóvember 2015 /Mál nr. 141/2011 - endurupptaka
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hún hafnaði atvinnuviðtali var staðfest.
-
10. nóvember 2015 /Mál nr. 52/2015
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti tveggja mánaða biðtíma skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna dvalar hans erlendis. Honum var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann fékk greiddar á sama tíma.
-
10. nóvember 2015 /Mál nr. 37/2015
Staðfest var sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunarinnar skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að leggja 15% álag á skuld kæranda var hins vegar hrundið og þeim hluta málsins vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.
-
10. nóvember 2015 /Mál nr. 92/2014 - endurupptaka
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að beita kæranda viðurlögum samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurkrefja hana um ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 39. gr. laganna var hrundið. Kæranda var gert endurgreiða atvinnuleysisbætur vegna tímabilisins frá 3. júlí til 11. júlí 2014 að viðbættu 15% álagi með vísan til 2. málsl. 2. mgr. 39. gr. laganna.
-
15. október 2015 /Mál nr. 8/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
15. október 2015 /Mál nr. 31/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að meta bótarétt kæranda 72% var staðfest með vísan til 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
15. október 2015 /Mál nr. 29/2015
Staðfest var sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunina skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. g lið 14. gr. laganna og 4. mgr. 51. gr. laganna.
-
15. október 2015 /Mál nr. 50/2015
Kæranda var synjað um endurupptöku máls hennar hjá úrskurðarnefndinni þar sem skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 voru ekki talin uppfyllt.
-
15. október 2015 /Mál nr. 39/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta á tímabilinu frá 5. janúar 2015 til 22. janúar 2015 með vísan til 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar var hrundið. Stofnunin gætti ekki nægilega að leiðbeiningarskyldu sinni skv. 7. gr. stjórnsýslulaga að mati úrskurðarnefndarinnar.
-
15. október 2015 /Mál nr. 96/2012 - endurupptaka
Kæranda var synjað um endurupptöku máls hennar hjá úrskurðarnefndinni þar sem skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 voru ekki talin uppfyllt.
-
22. september 2015 /Mál nr. 33/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að synja að endurupptaka eldri ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiðslu bóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna, var staðfest
-
22. september 2015 /Mál 32/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að synja að endurupptaka eldri ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiðslu bóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna, var staðfest
-
22. september 2015 /Mál nr. 45/2015
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þ.e. meginreglunni um að námsmenn eigi ekki tilkall til atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest og kæranda gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. sömu laga.
-
22. september 2015 /Mál nr. 24/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnun um niðurfellingu bótaréttar kæranda í þrjá mánuði sökum þess að hún hafi ekki tilkynnt um dvöl sína erlendis samkvæmt 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiðslu ofgreiddra bóta samkvæmt 39. gr. laganna, var staðfest.
-
22. september 2015 /Mál nr. 48/2015
Með vísan til 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar gat kærandi fyrst átt rétt á atvinnuleysisbótum frá og með þeim tíma sem umsókn um atvinnuleysisbætur barst Vinnumálastofnun. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
22. september 2015 /Mál nr. 34/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að synja að endurupptaka eldri ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiðslu bóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna, var staðfest
-
22. september 2015 /Mál nr. 27/2015
Ákvörðun Vinnumálstofnunar um að synja kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta á vorönn 2015 á þeim grundvelli að hún hafi verið skráð í nám án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina, sbr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, var hrundið. Úrskurðarnefndin taldi að Vinnumálastofnun hefði ekki veitt kæranda nauðsynlegar leiðbeiningar samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga að því er varðar umsókn um námssamning.
-
22. september 2015 /Mál nr. 18/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að synja kæranda um greiðslu tekjutengdra atvinnuleysisbóta samkvæmt 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á þeim grundvelli að hann hafi ekki verið starfandi á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili, var staðfest.
-
22. september 2015 /Mál nr. 35/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að synja að endurupptaka eldri ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og endurgreiðslu bóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna, var staðfest
-
22. september 2015 /Mál nr. 38/2015
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti tveggja mánaða biðtíma skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna dvalar hans erlendis. Honum var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann fékk greiddar á sama tíma.
-
22. september 2015 /Mál nr. 36/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í ljósi þess að hann hafi verið skráður í nám án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina, sbr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og endurkrefja hann um ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna, er staðfest.
-
22. september 2015 /Mál nr. 42/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja kæranda um greiðslu tekjutengdra atvinnuleysisbóta skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar var staðfest.
-
03. september 2015 /Mál nr. 3/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
03. september 2015 /Mál nr. 30/2015
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti tveggja mánaða biðtíma skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna dvalar hennar erlendis. Henni var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún fékk greiddar á sama tíma.
-
03. september 2015 /Mál nr. 26/2015
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafði ekki tilkynnt um lífeyrissjóðstekjur, var staðfest. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar bætur skv. 39. gr. laganna.
-
03. september 2015 /Mál nr. 25/2015
Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr., sbr. 2. mgr. 39. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna eingreiðslu frá lífeyrissjóði samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
03. september 2015 /Mál nr. 20/2015
Staðfest var sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunarinnar skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun lagði ekki 15% álag á skuld kæranda.
-
03. september 2015 /Mál nr. 23/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hann hafnaði atvinnuviðtali var staðfest.
-
03. september 2015 /Mál nr. 6/2015
Hin kærða ákvörðun þess efnis að kærandi skyldi einungis eiga rétt á atvinnuleysisbótum frá þeim tíma sem umsókn barst Vinnumálastofnun var staðfest með vísan til 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
25. ágúst 2015 /Mál nr. 4/2015
Vinnumálastofnun taldi að kærandi hefði misst starf sitt af ástæðum sem hann átti sjálfur sök á, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði var felld úr gildi.
-
25. ágúst 2015 /Mál nr. 83/2014
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafði ekki tilkynnt um tekjur frá Tryggingastofnun, var staðfest.
-
25. ágúst 2015 /Mál nr. 21/2015
Kæra kæranda barst að liðnum kærufresti skv. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var málinu því vísað frá úrskurðanefndinni.
-
25. ágúst 2015 /Mál nr. 13/2015
Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr., sbr. 2. mgr. 39. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 89/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 1/2015
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en kærandi var erlendis án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um það. Hin kærða ákvörðun, þess efnis að kærandi skyldi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefði starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði, sbr. 4. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 15/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar um tilfallandi vinnu.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 94/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 10/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli 30. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem minna en 24 mánuðir voru liðnir frá því að fyrra bótatímabili lauk, var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 14/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 5/2015
Staðfest sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að vegna fjarveru kæranda á boðað námskeið var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 2/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um atvinnu sína.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 79/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda skyldu stöðvaðar og að hún skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði á grundvelli 5. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál 85/2014
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti þriggja mánaða biðtíma skv. 59. gr., sbr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna dvalar hennar erlendis. Henni var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún fékk greiddar á sama tíma.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 78/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hún hafnaði atvinnutilboði var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 77/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði skv. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna þess að hún hafnaði atvinnutilboði var staðfest.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 9/2015
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að meta bótarétt kæranda 45% var staðfest með vísan til 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 74/2014
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þ.e. meginreglunni um að námsmenn eigi ekki tilkall til atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest og kæranda gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur sbr. 2. mgr. 39. gr. sömu laga.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 17/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta.
-
30. júlí 2015 /Mál nr. 28/2015
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar að atvinnuleit væri hætt.
-
01. júlí 2015 /Mál nr. 87/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
-
01. júlí 2015 /Mál nr. 84/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
01. júlí 2015 /Mál nr. 92/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnuna.
-
01. júlí 2015 /Mál nr. 82/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar að atvinnuleit væri hætt.
-
01. júlí 2015 /Mál nr. 60/2014
Hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um nýtt bótatímabil var staðfest. Úrskurðarnefndin taldi að Vinnumálastofnun hefði verið heimilt að afturkalla ákvörðun um að veita kæranda nýtt bótatímabil þar sem sú ákvörðun hafi verið ógildanleg, sbr. 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 25. gr. stjórnsýslulaga.
-
16. júní 2015 /Mál nr. 69/2014
Hin kærða ákvörðun var staðfest með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ekki var fallist á að annmarkar á málsmeðferð Vinnumálastofnunar veittu kæranda rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta umfram þrjú ár.
-
16. júní 2015 /Mál nr. 96/2012 - endurupptaka
Kæranda var synjað um endurupptöku máls hennar hjá úrskurðarnefndinni þar sem skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 voru ekki talin uppfyllt.
-
16. júní 2015 /Mál nr. 53/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði verið starfandi á innlendum vinnumarkaði samhliða töku atvinnuleysisbóta.
-
16. júní 2015 /Mál nr. 50/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar að atvinnuleit væri hætt.
-
02. júní 2015 /Mál nr. 65/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Það var mat úrskurðarnefndar að kærandi hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar að atvinnuleit væri hætt.
-
02. júní 2015 /Mál nr. 20/2014
Kæranda var synjað um endurupptöku máls hennar hjá úrskurðarnefndinni þar sem skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 voru ekki uppfyllt.
-
02. júní 2015 /Mál nr. 19/2015
Mál þetta lýtur að túlkun á 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefndin staðfesti þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að skerða bótarétt kæranda vegna makalífeyrisgreiðslna.
-
19. maí 2015 /Mál nr. 72/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði vegna þess að hann hafnaði atvinnutilboði/atvinnuviðtali var staðfest.
-
19. maí 2015 /Mál nr. 71/2014
Staðfest var sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunarinnar skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafði fallist á að fella niður 15% álagið á skuld kæranda og lýtur málið ekki að þeim þætti.
-
19. maí 2015 /Mál nr. 56/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að láta kæranda sæta 2,2 mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta vegna eldri viðurlaga var staðfest.
-
19. maí 2015 /Mál nr. 22/2015
Kæra barst að liðnum kærufresti. Ekki var fallist á að birting stjórnvaldsákvörðunar Vinnumálastofnunar hefði ekki verið fullnægjandi. Kæru var vísað frá.
-
-
05. maí 2015 /Mál nr. 70/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að synja beiðni um endurupptöku ákvörðunar var staðfest.
-
05. maí 2015 /Mál nr. 55/2014
Kærandi var endurkrafinn um greiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna greiðslu lífeyris frá Tryggingastofnun og ótilkynntra tekna. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
05. maí 2015 /M´l nr. 67/2014
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti tveggja mánaða biðtíma skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna dvalar hennar erlendis. Henni var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún fékk greiddar á sama tíma
-
17. apríl 2015 /Mál nr. 61/2014
Vinnumálastofnun taldi 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eiga við um úrlausnarefnið í máli þessu en úrskurðarnefndin taldi það falla undir 59. gr. laganna. Kærandi var á bótum og fór í nám en hætti þegar hann gerði sér grein fyrir því að það samræmdist ekki því að þiggja bætur.
-
17. apríl 2015 /Mál nr. 93/2014
Sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna kröfu kæranda þess efnis að stofnunin greiddi honum lífeyrisiðgjald ásamt dráttarvöxtum af greiðslu biðstyrks sem honum var greiddur á grundvelli reglugerðar nr. 47/2013 um styrki úr Atvinnuleysistryggingasjóði á árinu 2013 til atvinnuleitenda sem eru þátttakendur í verkefninu ,,Liðsstyrkur“ var staðfest.
-
17. apríl 2015 /Mál nr. 54/2014
Þar sem kærandi lét hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins og lífeyrisgreiðslur var háttsemi hans talin falla undir 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um tilkynningarskyldu á breytingu á högum.
-
17. apríl 2015 /Mál nr. 58/2014
Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta skv. 36. gr., sbr. 2. mgr. 39. gr., laga um atvinnuleysistryggingar vegna lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
17. apríl 2015 /Mál nr. 68/2014
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en kærandi var erlendis samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta án þess að tilkynna það.
-
09. apríl 2015 /Mál nr. 7/2015
Kæran var of seint fram komin og var henni vísað frá skv. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
09. apríl 2015 /Mál nr. 11/2015
Kæran var of seint fram komin og var henni því vísað frá sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
09. apríl 2015 /Mál nr. 64/2014
Kærandi lagði fram frekari gögn í málinu sem Vinnumálastofnun hafði ekki tekið afstöðu til. Ákvörðunin var því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.
-
26. mars 2015 /Mál nr. 51/2014
Staðfest var ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi sætti tveggja mánaða biðtíma skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistrygginga vegna dvalar hans erlendis. Honum var auk þess gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann fékk greiddar á sama tíma. Vísað var frá kröfum kæranda um að úrskurðarnefndin beitti sér fyrir ýmsum lagabreytingum með þeim rökum að nefndin hefur ekki önnur verkefni á höndum en um getur í 2. mgr. 11. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
26. mars 2015 /Mál nr. 52/2014
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. málsl. 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
13. mars 2015 /Mál nr. 59/2014
Kæra kæranda barst að liðnum kærufresti skv. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var málinu því vísað frá úrskurðanefndinni.
-
13. mars 2015 /Mál nr. 28/2014
Málið var talið varða við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest. Kærandi kvaðst hafa prófað að skrifa fréttir þegar hann hafi verið í starfskynningu og komið lítillega að störfum hjá tilteknu fyrirtæki. Á heimasíðu fyrirtækisins var kærandi titlaður verkefnisstjóri og blaðamaður.
-
26. febrúar 2015 /Mál nr. 49/2014
Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða var það ófullnægjandi birtingarháttur að birta kæranda greiðsluseðil eingöngu á ,,mínum síðum“ þar sem hann gat ekki vitað að hann þyrfti að kynna sér þá slóð. Hinni kærðu ákvörðun var vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og til nýrrar meðferðar Vinnumálastofnunar.
-
26. febrúar 2015 /Mál nr. 13/2012 - endurupptaka
Kærandi fór fram á endurupptöku máls síns á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis. Úrskurðarnefndin tali úrskurð sinn í máli kæranda réttilega hafa verið byggðan á 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að viðurlög kæranda hafi verið réttilega ákvörðuð á grundvelli ákvæðisins og var beiðni hans um endurupptök því hafnað.
-
26. febrúar 2015 /Mál nr. 7/2014
Kærandi óskaði endurupptöku málsins skv. 24. gr. stjórnsýslulaga eftir að ríkisskattstjóri hafði leiðrétt skráningu á launagreiðendaskrá kæranda afturvirkt. Forsendur fyrir niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndarinnar í málinu voru því brostnar og var það endurupptekið með vísan til 2. málsl. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur var felld úr gildi.
-
26. febrúar 2015 /Mál nr. 32/2014
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að kærandi að sæti viðurlögum skv. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar var staðfest. Kæranda var gert að starfa í tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hún getur átt rétt til atvinnuleysisbóta á ný auk þess sem henni var gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt útreikningi Vinnumálastofnunar.
-
26. febrúar 2015 /Mál nr. 36/2014
Úrskurðarnefndin féllst ekki á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi verið starfandi á vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur, sérstaklega í ljósi andmæla yfirmanns þess sem hann var talinn hafa unnið hjá. Háttsemi kæranda var ekki talin eiga við 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hinum kærða úrskurði hrundið.
-
17. febrúar 2015 /Mál nr. 45/2014
Ekki var uppi ágreiningur um niðurstöðu málsins, og í 2. mgr. 11. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að hlutverk úrskurðarnefndarinnar sé að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Málinu var því vísað frá úrskurðarnefndinni.
-
17. febrúar 2015 /Mál nr. 6/2014
Það var ekki talinn fullnægjandi birtingarháttur hjá Vinnumálastofnun að birta kæranda greiðsluseðil eingöngu á ,,mínum síðum“, þar sem kærandi gat ekki vitað að hann þyrfti áfram að kynna sér þá slóð. Málið var því tekið til efnislegrar úrlausnar þó svo að kæran hafi borist að liðnum kærufresti.
-
17. febrúar 2015 /Mal nr. 176/2012 - endurupptaka
Mál kæranda var endurupptekið skv. 24. gr. stjórnsýslulaga á grundvelli tilmæla umboðsmanns Alþingis vegna túlkunar úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða á 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrri ákvörðun úrskurðarnefndar var staðfest.
-
17. febrúar 2015 /Mál nr. 81/2012 - endurupptaka
Mál kæranda var endurupptekið skv. 24. gr. stjórnsýslulaga á grundvelli tilmæla umboðsmanns Alþingis vegna túlkunar úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða á 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrri ákvörðun úrskurðarnefndar var staðfest.
-
17. febrúar 2015 /Mál nr. 20/2012 - endurupptaka
Mál kæranda var endurupptekið skv. 24. gr. stjórnsýslulaga á grundvelli tilmæla umboðsmanns Alþingis vegna túlkunar úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða á 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrri ákvörðun úrskurðarnefndar var staðfest.
-
21. janúar 2015 /Mál nr. 121/2013
Kröfu kæranda um endurupptöku máls hennar fyrir úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða var hafnað. Kærandi hafði ekki lagt fram nein gögn, upplýsingar, skýringar eða lagaleg rök fyrir því að mál hennar yrði endurupptekið skv. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.
-
21. janúar 2015 /Mál nr. 38/2014
Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnun skv. 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem kærandi hélt af landi brott án þess að láta stofnunina vita af því.
-
21. janúar 2015 /Mál nr. 41/2014
Málið fjallar um það hvenær maður hefur áunnið sér rétt til nýs bótatímabils skv. 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.
-
21. janúar 2015 /Mál nr. 39/2014
Ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tekin var á grundvelli 59. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, þar sem kærandi hélt af landi brott án þess að láta stofnunina vita. Kærandi hafi áður sætt niðurfellingu bótaréttar á sama tímabili og var því um að ræða ítrekaða niðurfellingu bótaréttar sem olli ítrekunaráhrifum fyrri ákvörðunar skv. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
16. janúar 2015 /Mál nr. 43/2014
Staðfest sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að gera kæranda að endurgreiða höfuðstól skuldar sinnar við stofnunarinnar. Vinnumálastofnun hafði fallist á að fella niður 15% álagið á skuld kæranda og lýtur málið ekki að þeim þætti.
-
-
07. janúar 2015 /Mál nr. 29/2014
Kæranda var gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 36. gr., sbr. 39. gr., laga um atvinnuleysistryggingar.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.