Hoppa yfir valmynd

850/2019. Úrskurður frá 15. nóvember 2019

Úrskurður

Hinn 15. nóvember 2019 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 850/2019 í máli ÚNU 19050009.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 2. maí 2019, kærði A ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. („Herjólfs“) um synjun beiðni um aðgang að upplýsingum um nöfn starfsmanna félagsins og starfssvið þeirra og nöfnum umsækjanda um störfin. Beiðni kæranda var synjað með erindi, dags. 23. apríl 2019, með þeim rökum að Herjólfur sé opinbert hlutafélag.

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Herjólfi með bréfi, dags. 14. maí 2019, og veittur kostur á að koma á framfæri umsögn og afritum af gögnum sem kæran lýtur að.

Í umsögn Herjólfs, dags. 19. ágúst 2019, kemur fram að Herjólfur sé opinbert hlutafélag og falli skv. 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. upplýsingalaga undir gildissvið laganna. Vísað er til þess að í 7. gr. upplýsingalaga sé fjallað um rétt almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfi hjá aðilum sem lögin taki til. Þá er vísað til þess að í 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga segi að réttur til upplýsinga um málefni starfsmanna nái ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um störf. Þó komi fram í 2. mgr. að varðandi opinbera starfsmenn sé skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um störf þegar umsóknarfrestur sé liðinn. Það ákvæði eigi ekki við um Herjólf enda starfi þar ekki opinberir starfsmenn. Á þeim grundvelli hafni Herjólfur beiðni kæranda um upplýsingar um umsækjendur starfa. Að lokum segir að skv. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga beri að veita almenningi upplýsingar um nöfn starfsmanna og starfssvið þeirra sem starfi hjá aðilum eins og Herjólfs sem séu í meirihlutaeigu opinbers aðila, í samræmi við það muni Herjólfur veita kæranda aðgengi að yfirliti yfir nöfn starfsmanna og starfssvið þeirra. Meðfylgjandi umsögninni var slíkur listi.

Umsögn Herjólfs var kynnt kæranda með bréfi, dags. 2. september 2019, og veittur kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum í ljósi hennar. Í athugasemdum kæranda, dags. 6. september 2019, ítrekar hann kröfu um afhendingu umbeðinna gagna.

Niðurstaða

Í málinu er deilt um ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. um synjun beiðni kæranda um upplýsingar um nöfn umsækjenda um störf hjá Herjólfi en fyrir liggur að Herjólfur veitti kæranda upplýsingar um nöfn starfsmanna og starfssvið þeirra eftir að kæra barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Upplýsingalög nr. 140/2012 taka skv. 2. mgr. 2. gr. til aðila sem teljast að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera, ríkisins eða sveitarfélaga. Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga er tekið fram að skylt sé, ef þess sé óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. - 10. gr. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum.

Í 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er fjallað rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til skv. 2. gr. laganna. Er meginreglan sú að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna taki ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Í 2.- 4. mgr. 7. gr. koma fram undantekningar frá þessari reglu. Í 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga koma fram fimm undantekningar frá meginreglunni þegar um er að ræða opinbera starfsmenn. Kemur þar fram í 2. tölul. að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf, þegar umsóknarfrestur er liðinn.

Í 4. mgr. 7. gr. er að finna tvær undantekningar frá meginreglunni í tilviki starfsmanna lögaðila sem falla undir upplýsingalög. Segir þar að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn starfsmanna og starfssvið, sbr. 1. tölul. og launakjör æðstu stjórnenda og upplýsingar um menntun þeirra, sbr. 2. tölul. málsgreinarinnar. Eins og fram kemur í umsögn Herjólfs mun félagið veita kæranda þær upplýsingar og er því ekki um að ræða synjun beiðni um aðgang að gögnum í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga.

Samkvæmt framangreindu er gerður greinarmunur á þeim upplýsingum sem skylt er að veita aðgang að eftir því hvort um sé að ræða opinbera starfsmenn eða starfsmenn lögaðila. Ekki er skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjanda í starf hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, öfugt við það sem gildir um umsækjendur í starf hjá hinu opinbera. Því er staðfest ákvörðun Herjólfs um að synja beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um nöfn þeirra sem sóttu um starf hjá félaginu.

Úrskurðarorð:

Staðfest er ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. um að synja beiðni kæranda A að því er varðar upplýsingar um umsækjendur um störf hjá félaginu.


Hafsteinn Þór Hauksson
formaður


Sigurveig Jónsdóttir Friðgeir Björnsson

Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum