Hoppa yfir valmynd

975/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

Úrskurður

Hinn 22. febrúar 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 975/2021 í málum ÚNU20100013, 20100016, 20100019, 20110003, 20110009, 20110012, 20110016, 20110017, 20110021, 20120002, 20120005, 21010012, 21010013, 21020007, 21020008, 21020010, 21020018 og 21020019.

Kærur, málsatvik og málsmeðferð

Kærandi, A hefur kært afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á nokkrum fjölda beiðna um aðgang að upplýsingum. Kærurnar lúta að því að beiðnunum hafi ekki verið svarað og verður að líta svo á að kærandi telji að bærinn hafi ekki fylgt sjónarmiðum um málshraða við afgreiðslu þeirra, sbr. 17. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Niðurstaða

Í máli þessu er deilt það hvort meðferð Vestmannaeyjabæjar á beiðnum kæranda um aðgang að gögnum samrýmist málshraðareglum stjórnsýslulaga og upplýsingalaga.

Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga skal taka ákvörðun um það hvort orðið verði við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða megi. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Af 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga leiðir að heimilt er að kæra óhæfilegan drátt á meðferð beiðni um aðgang að upplýsingum samkvæmt upplýsingalögum til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Í athugasemdum við ákvæði 17. gr. í greinargerð með frumvarpi til upplýsingalaga nr. 140/2012 segir að mikilsvert sé að beiðnir um aðgang að gögnum á grundvelli laganna verði ávallt afgreiddar fljótt og án ástæðulausra tafa. Þá er vikið að sjö daga reglu 2. málsl. 1. mgr. 17. gr. og tekið fram að reynslan sýni að fleiri en ein ástæða geti valdið því að farið sé fram yfir þau tímamörk. Í fyrsta lagi kunni að vera flókið að leysa úr máli, í öðru lagi geti verið rétt að leita álits þess sem mál snertir en í þriðja lagi kunni önnur verkefni að hafa forgang þannig að úrlausn um beiðni verði að bíða.

Við mat á því hvort Vestmannaeyjabær hafi afgreitt beiðnir kæranda í samræmi við málshraðareglu upplýsinga- og stjórnsýsluréttar verður að mati úrskurðarnefndarinnar í fyrsta lagi að líta til efnis beiðnanna. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera tiltölulega einfaldar og skýrt afmarkaðar. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að afgreiðsla hverrar beiðni gefi ekki tilefni til umfangsmikillar málsmeðferðar og Vestmannaeyjabæ ætti hæglega að vera unnt að afgreiða hverja þeirra innan sjö daga. Á hinn bóginn verður að hafa hliðsjón af því að kærandi hefur á sama tímabili beint fjölda beiðna um aðgang að gögnum til bæjarins. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ sem aflað var símleiðis berast bænum tugir beiðna frá kæranda í hverjum mánuði. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál getur kærandi við þessar aðstæður búist við því að afgreiðslutími hverrar beiðni verði lengri en ella, ekki síst þegar tekið er tillit til annarra verkefna sem sveitarfélögum eru falin með lögum.

Úrskurðarnefndin tekur fram að þrátt fyrir að sveitarfélög beri almennt ábyrgð á því að haga starfsmannahaldi sínu með þeim hætti að unnt sé að afgreiða mál sem þeim berast innan eðlilegra tímamarka verður ekki með sanngirni ætlast til þess að Vestmannaeyjabær ráði starfsfólk, eftir atvikum tímabundið, til að bregðast við slíkum fjölda erinda frá einum og sama aðilanum. Þá verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að talsverður hluti beiðnanna snúi að gögnum sem almenningi eru þegar aðgengileg á vef sveitarfélagsins. Ágreiningur aðila snýr því fremur að því hvort sveitarfélaginu kunni að vera skylt að aðstoða kæranda við að nálgast gögnin á grundvelli annarra laga, til að mynda laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, en beinlínis að rétti hans til aðgangs að þeim samkvæmt upplýsingalögum.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki hafi verið tilefni til að kæra meðferð beiðnanna sem hér um ræðir til nefndarinnar að liðnum 7-22 dögum frá því að þær voru póstlagðar til sveitarfélagsins. Þar sem ekki var um óhæfilegan drátt á afgreiðslu beiðnanna að ræða í ljósi aðstæðna, sbr. 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, verður kærum kæranda því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Úrskurðarorð:

Kærum kæranda, A, í málum ÚNU20100013, 20100016, 20100019, 20110003, 20110009, 20110012, 20110016, 20110017, 20110021, 20120002, 20120005, 21010012, 21010013, 21020007, 21020008, 21020010, 21020018 og 21020019 er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


Hafsteinn Þór Hauksson
formaður


Símon Sigvaldason Sigríður Árnadóttir



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum