Hoppa yfir valmynd

995/2021. Úrskurðrur frá 30. mars 2021.

Úrskurður

Hinn 30. mars 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 995/2021 í máli ÚNU 21030018.

Kæra og málsatvik

Með erindi til Herjólfs ohf., dags. 6. mars 2021 óskaði A eftir nöfnum þeirra sem sóttu um starf á skrifstofu félagsins. Þann 10. mars 2021, synjaði Herjólfur ohf. beiðninni á þeim grundvelli að opinberum hlutafélögum sé ekki skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um auglýst störf. Það sé mat stjórnar Herjólfs ohf. að óskir umsækjenda um nafnleynd og persónuverndarsjónarmið vegi þyngra en upplýsingagjöf til almennings um hverjir voru meðal umsækjenda.

Niðurstaða

Í málinu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að nöfnum umsækjenda um starf á skrifstofu Herjólfs ohf. Þrátt fyrir að ekki sé vísað til lagaákvæða verður ráðið af svari Herjólfs ehf. til kæranda að synjunin félagsins byggi á 7. gr. upplýsingalaga.

Upplýsingalög nr. 140/2012 taka skv. 2. mgr. 2. gr. til aðila sem teljast að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera, ríkisins eða sveitarfélaga. Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga er tekið fram að skylt sé, ef þess sé óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. - 10. gr. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum.

Í 7. gr. upplýsingalaga er fjallað um rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til samkvæmt 2. gr. laganna. Er meginreglan sú að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna taki ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Í 2.- 4. mgr. 7. gr. koma fram undantekningar frá þessari reglu.

Í 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga koma fram fimm undantekningar frá meginreglunni þegar um er að ræða opinbera starfsmenn. Kemur þar fram í 2. tölul. að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf, þegar umsóknarfrestur er liðinn. Í 4. mgr. 7. gr. er að finna tvær undantekningar frá meginreglunni í tilviki starfsmanna lögaðila sem falla undir upplýsingalög. Segir þar að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn starfsmanna og starfssvið, sbr. 1. tölul. og launakjör æðstu stjórnenda og upplýsingar um menntun þeirra, sbr. 2. tölul. málsgreinarinnar.

Samkvæmt framangreindu er gerður greinarmunur á þeim upplýsingum sem skylt er að veita aðgang að eftir því hvort um sé að ræða opinbera starfsmenn eða starfsmenn lögaðila. Ekki er skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda í starf hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, ólíkt því sem gildir um umsækjendur um starf hjá hinu opinbera. Því er staðfest ákvörðun Herjólfs ohf. um að synja beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um nöfn þeirra sem sóttu um starf á skrifstofu Herjólfs ohf.

Úrskurðarorð:

Staðfest er synjun Herjólfs ohf. á beiðni A um nöfn umsækjenda um stöðu á skrifstofu Herjólfs ohf.



Hafsteinn Þór Hauksson
formaður

Símon Sigvaldason Sigríður Árnadóttir













Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum