Hoppa yfir valmynd

1011/2021. Úrskurður frá 11. maí 2021.

Úrskurður

Hinn 11. maí 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1011/2021 í máli ÚNU 21050007.

Kæra og málsatvik

Með erindi til Herjólfs ohf., dags. 1. apríl 2021 óskaði A eftir nöfnum þeirra sem sóttu um sumar- og framtíðarstörf háseta og þerna á Herjólfi. Þann 26. apríl 2021, synjaði Herjólfur ohf. beiðninni á þeim grundvelli að opinberum hlutafélögum sé ekki skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda um auglýst störf.

Í kæru, dags. 28. apríl 2021, kemur fram að kærandi óski þess að Herjólfi iohf. verði gert að afhenda umbeðnar upplýsingar. Með kærunni fylgdi svar forsætisráðuneytisins við erindi kæranda, dags. 29. janúar 2021, þar sem fram kemur að upplýsingalög gildi um Herjólf ohf. og að félagið sé ekki að finna á lista yfir lögaðila sem eru undanþegnir ákvæðum upplýsingalaga. Jafnframt er í kærunni gerð sú krafa að þau erindi sem úrskurðarnefndin hefur vísað frá á hendur Herjólfi ohf. verði tekin til úrskurðar á ný.

Eins og þetta mál er vaxið taldi úrskurðarnefndin óþarft að beita heimild 2. mgr. 22. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 til að veita Herjólfi ohf. kost á að láta nefndinni í té rökstutt álit á málinu. Þá þykir óþarft að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niðurstaða

Í málinu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að nöfnum umsækjenda um sumar- og framtíðarstörf þerna og háseta á Herjólfi. Þrátt fyrir að ekki sé vísað til lagaákvæða verður ráðið af svari Herjólfs ohf. til kæranda að synjunin félagsins byggi á 7. gr. upplýsingalaga.

Upplýsingalög nr. 140/2012 taka skv. 2. mgr. 2. gr. til aðila sem teljast að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera, ríkisins eða sveitarfélaga. Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga er tekið fram að skylt sé, ef þess sé óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. - 10. gr. Sama gildir þegar óskað er aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum.

Í 7. gr. upplýsingalaga er fjallað um rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lögin taka til samkvæmt 2. gr. laganna. Er meginreglan sú að réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna taki ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti. Í 2.- 4. mgr. 7. gr. koma fram undantekningar frá þessari reglu.

Í 2. mgr. 7. gr. upplýsingalaga koma fram fimm undantekningar frá meginreglunni þegar um er að ræða opinbera starfsmenn. Kemur þar fram í 2. tölul. að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf, þegar umsóknarfrestur er liðinn. Í 4. mgr. 7. gr. er að finna tvær undantekningar frá meginreglunni í tilviki starfsmanna lögaðila sem falla undir upplýsingalög. Segir þar að skylt sé að veita upplýsingar um nöfn starfsmanna og starfssvið, sbr. 1. tölul. og launakjör æðstu stjórnenda og upplýsingar um menntun þeirra, sbr. 2. tölul. málsgreinarinnar.

Samkvæmt framangreindu er gerður greinarmunur á þeim upplýsingum sem skylt er að veita aðgang að eftir því hvort um sé að ræða opinbera starfsmenn eða starfsmenn lögaðila. Ekki er skylt að veita aðgang að upplýsingum um nöfn umsækjenda í starf hjá lögaðilum sem falla undir upplýsingalög, ólíkt því sem gildir um umsækjendur um starf hjá hinu opinbera. Af þessu leiðir að þrátt fyrir að starfsemi Herjólfs ohf. falli vissulega undir gildissvið upplýsingalaga líkt og kærandi vísar til þá hefur löggjafinn ákveðið að undanskilja sérstaklega tilteknar upplýsingar upplýsingarétti almennings í tilviki slíkra lögaðila, þ. á m. upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um störf. Því er staðfest ákvörðun Herjólfs ohf. um að synja beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum um nöfn þeirra sem sóttu um starf hjá Herjólfi ohf.

Í kærunni er þess jafnframt krafist að úrskurðarnefndin endurskoði fyrri úrskurði nefndarinnar þar sem kærum kæranda á hendur Herjólfi ohf. hefur verið vísað frá. Með úrskurði úrskurðarnefndarinnar nr. 1000/2021 sem kveðinn var upp þann 28. apríl 2021 synjaði úrskurðarnefndin beiðni kæranda um endurupptöku allra úrskurða sem varða Herjólf ohf. og úrskurðarnefndin hefur vísað frá eða staðfest ákvörðun félagsins. Úrskurðarnefndin lítur svo að beiðni kæranda hafi þegar verið afgreidd með fyrrgreindum úrskurði. Af þeim sökum er beiðni kæranda um endurupptöku úrskurða í málum Herjólfs ohf. vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Úrskurðarorð:

Staðfest er synjun Herjólfs ohf., dags. 26. apríl 2021, á beiðni A um nöfn umsækjenda um störf þerna og háseta á Herjólfi.

Beiðni kæranda um endurupptöku úrskurða í málum Herjólfs ohf. er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.


Hafsteinn Þór Hauksson
formaður

Kjartan Bjarni Björgvinsson Sigríður Árnadóttir













Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum